Morgunblaðið - 04.01.1985, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 04.01.1985, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1985 15 Jón öttar er sennilega að reyna að koma orðum að hinum almenna mengunarvanda okkar daga. Margir halda eins og hann, að leysa megi þennan mikla vanda með ríkisafskiptum einum. En hvað veldur mengun, þegar grannt er skoðað? Það er, að menn bera ekki sjálfir fulla ábyrgð á verkum sínum — mistök þeirra koma ekki niður á þeim sjálfum, heldur öðr- um. Með öðrum orðum stafar mengun gjarnan af því, að eign- arréttur hefur ekki verið skil- greindur á því, sem mengað er, og enginn er því til að gæta þess. Þetta kann að þykja of almennt til þess að vera fullnægjandi svar við spurningu Jóns óttars. En slys geta komið fyrir, hvort sem verk- smiðja er í eign ríkis eða einstakl- inga. Ekki verður við öllu séð. Á hvað á maður a treysta, sem er hræddur við mengun frá ríkis- verksmiðju? Eftirlit ríkisins? Við- tal við forstjórann? Sú spurning, sem máli skiptir, er sú, við hvort fyrirkomulagið verksmiðjustjórar hafi meiri tilhneigingu til að gæta öryggis. Og hafa þeir ekki meiri tilhneigingu til þess, ef fyrirtæki eru að fullu skaðabótaskyld? Ég geri ráð fyrir, að allir skyn- samir menn hljóti að komast að þeirri niðurstöðu við nokkra um- hugsun, að betri mengunarvarnir felist í einkaeignarrétti á auðlind- um og fullri skaðabótaskyldu fyrirtækja (og einstaklinga) held- ur en í afskiptum misviturra valdsmanna. Kíkisafskipti af vísinda- legum rannsóknum Að lokum segir Jón óttar: „Eða manninn sem vill vinna að rán- dýrum rannsóknum í þágu föður- landsins áður en samkeppnisþjóð- ir fá forskot, en fáir trúa honum. Hvert á hann að snúa sér? Til Fé- lags frjálshyggjumanna?" Já, hvert á hann að snúá sér? Jón Óttar telur, að hann eigi að snúa sér til þeirra, sem hafi fjár- veitingavaldið. Hann skilur það ekki, að slíkir menn eru miklu ólíklegri til djarflegra ákvarðana en menn úti í atvinnulífinu. Það kann að vera erfitt að sannfæra atvinnurekendur um, að eitthvert nýmæli sé hagkvæmt, en ég þori að fullyrða, að það er miklu erfið- ara að sannfæra stjórnmálamenn um það. Stjórnmálamenn hugsa í kjörtímabilum. Þeir veita fé til þess, sem þeir halda að afli at- kvæða, en síður til þess, sem kann að skila arði fyrir þjóðarbúið, þeg- ar til langs tíma er litið. Ég er með þessari athugasemd að reyna að vekja athygli á því, að menn, sem eru á undan sinni sam- tíð, eiga alls staðar í vandræðum með að útvega sér fé. En þeir eiga í miklu meiri vandræðum með að útvega það frá skriffinnum og stjórnmálamönnum (og þeim, sem slíkir menn kveða til) heldur en frá atvinnurekendum. Hér fer sem endranær, að það, sem Jón Óttar telur röksemd fyrir ríkisafskipt- um, er í rauninni sterk röksemd gegn þeim. „LátiÖ þiö menninguna í friöi“ Milton Friedmann reyndi að benda Jóni Óttari á þrjú atriði, þegar hann svaraði spurningu hans á Sögufundinum forðum um ríkisstyrki til lista og vísinda. Það er í fyrsta lagi ekki sjálfgefið, að þeir, sem hafa bestu hæfileikana til þess að útvega sér styrki frá ríkinu, hafi einnig bestu hæfileik- ana til listsköpunar eða visinda- legra rannsókna. Allir þeir, sem hafa einhverja nasasjón af því, hvernig slíkum styrkjum er út- hlutað á íslandi, ættu að geta tek- ið undir þetta. Síðan er það, að rikisstyrkir til Þú elur meðþér draum, við getum latið hann rætast. 15. janúar dregur til tíðinda. Breytist þín von í veruleika? HAPPDRÆTTI HASKÓLA ÍSLANDS milljón í hverjum mánuöi lista og visinda auka sennilega magn, en auka þeir gæði? Fleiri gerast sennilega listamenn eða vísindamenn við slíka styrki en ella, en ég leyfi mér að efast um, að þeir gerist betri listamenn eða vísindamenn. Þriðja atriðið skiptir mestu máli: Ymis óháð félög, rekin með gjafa- eða samskotafé, hljóta að sinna listum og vísindum, þótt ríkisstyrkir séu felldir niður (eins og þau gera með glæsibrag í Bandaríkjunum, en þar eru þessar greinar þjóðlífsins í miklum blóma). Og menn verða auðvitað því fúsari til að láta fé af hendi rakna til slíkra félaga sem ríkið leggur sjálft minna af mörkum til þeirra. Friedman kemst því að sömu niðurstöðu og ástsælt íslenskt skáld, sem sagði á sínum tíma við Vilmund landlækni eins og fleygt er orðið: „Æ, blessaðir látið þið menninguna í friði. Þá bjargar hún sér sjálfT Friedman tekur einnig undir með okkar gamla, góða menningarfrömuði, Ragnari í Smára, sem reit í bréfi til Björns Th. Björnssonar árið 1955: „Ekk- ert finnst mér hvimleiðara en sá hugsunarháttur að allt verði að bæta, endurbæta. Hin mesta viska er fólgin í því að lofa einhverju að vera í friði." Markmið ólíkra einstaklinga Jóni Óttari sést einkum yfir tvennt. í fyrsta lagi skilur hann það ekki, að menn hafa ólík markmið í lífinu og engum á að leyfast að neyða sínum markmið- um upp á aðra (svo framarlega sem allir gæta laga og réttar). Jóni Óttari á ekki að leyfast að neyða sínum markmiðum upp á mig, og mér á ekki að leyfast að neyða mínum markmiðum upp á hann. Heimurinn er því miður fullur af kappsmönnum eins og Jóni Óttari, sem sjá ekkert nema sín eigin markmið (þótt þeir saki aðra um þrfngsýni!). Þeir eru sjálfir frið- lausir og láta aðra ekki heldur í friði. Þeir eru sannfærðir um, að heimurinn farist, ef menn snæða ekki hollan mat, sækja ekki sin- fóniuhljómleika, eru ekki siles- andi. Þeir hafa ekki hugmynd um, að verkefnið hlýtur að dómi frjáls- lyndra manna í stjórnmálum að vera það eitt að reyna að samhæfa keppni ólíkra einstaklinga að markmiðum þeirra. Þessir kapps- menn gera sér enga grein fyrir því, að allt kostar sitt: ef þeir taka fé frá öðrum til að sinna sínum markmiðum, þá er það ekki lengur handbært til að sinna markmið- um. 1 öðru lagi skilur Jón Óttar það ekki, að valið er ekki um gott og illt. Það er um það að leggja vald yfir fólki í hendur misviturra manna eða leyfa fólki að leysa úr málum með nauðungarlausri sam- vinnu. Það er um ríkisafskipti eða einstaklingsframtak. Síðarnefndi kosturinn verður auðvitað aldrei fullkominn, en hann er gjarnan betri en hinn fyrrnefndi, því að hann opnar fremur en lokar leið- um til þróunar, vaxtar, nýmæla. Og fyrrnefndi kosturinn felur allt- af í sér mikla hættu. Hlægilegar umræöur? Jón Óttar hefur á vörunum ást- arjátningar til allrar menningar, en með höndunum seilist hann í vasa skattgreiðenda og óvirðir þannig val þeirra um hugmyndir, vörur og þjónustu. 1 grein sinni segir hann, að umræður okkar um ríkisstyrki til lista og vísinda séu í rauninni hlægilegar. En á meðan Jón Óttar bryður heilsukexið sitt og veltist um af hlátri, getum við óbreyttir alþýðumenn ekki annað en vikið smávegis við orðum Shakespeares og sagt honum: „En hlátur er ekki rök, herra minn!“ Hannes H. Gissunrson Inuk BA- prón i sngnírædi og heimspeki og cnnd. mng.-prófí í sngntræði fri Háskóln Islnnds og stundnr nú frnmhnldsnim í heimspeki. hag- fræói og stjórnfræói rið Oxford- hnskóln.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.