Morgunblaðið - 27.01.1985, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JANÚAR 1985
27
Tannburstun á að hefjast strax og fyrsta tönnin er komin.
Tannverndardagur
verður á þriðjudag
EINS og komið hefur fram í umfjöll-
un undanfarið, virðast að jafnaði
skemmast fleiri tennur í íslendingum
en í nokkurri annarri þjóð í heimin-
um.
Hinar Norðuriandaþjóðirnar
hafa sýnt fram á að hægt er að
fækka tannskemmdum með fyrir-
byggjandi starfi og hefur t.d. Finn-
um tekist að fækka tannskemmdum
um nær 50% á 6 árum og Norð-
mönnum á 9 árum.
Ein af orsökunum fyrir hinni háu
tíðni tannskemmda hérlendis er
talin vera við eigum heimsmet í
sykur- og sælgætisneyslu auk þess
hve slæmar matarvenjur okkar eru.
Til að reyna að bæta hér úr beitir
heilbrigðismálaráðuneytið sér fyrir
Tannverndardegi þriðjudaginn 29.
janúar nk. í samvinnu við Tann-
læknadeild Hí, Tannlæknafélag Is-
lands og Skólatannlækningar
Reykj a víkurborgar.
Einnig hefur við undirbúninginn
verið haft samráö við menntamála-
ráðuneytið og ekki síst námsstjóra
á skólaþróunardeild. Námsgagna-
stofnun hefur aðstoðað við dreif-
ingu gagna og samkeppnin fer fram
í samvinnu við félag íslenskra
myndmenntakennara.
Það væri mikill stuðningur við
málefnið, ef fjölmiðlar sæju sér
fært að vekja athygli á þessari
starfsemi og ekki síst, sé unnt að
fjalla um svonefnt laugardagssæl-
gæti á sjálfan Tannverndardaginn
þriðjudaginn 29. janúar nk.
Þann dag eiga öll börn sem
stunda nám í grunnskólum landsins
að fá í hendurnar bæklinginn „Biti
milli mála“ og fá hann útskýrðan af
kennara sínum eða ef til vill tann-
lækni, lækni eða hjúkrunarfræð-
ingi.
Til fróðleiks hefur verið dreift í
alla skóla landsins „Kennarakveri
um tennur" sem ætlað er til aðstoð-
ar við fræðsluna
(Frétt frá Heilbrigéis- og tryggingaráéuneyt-
ÍDU.)
Sýningar hafnar í Kaup-
mannahöfn á Atómstöðinni
Jónshiui, IS. janúar.
f FYRRADAG var íslenzka kvik-
myndin Atómstbóin frumsýnd í Ball-
erup bíói að viðstöddum fjölmörgum
gestum. Komu leikstjórinn Þorsteinn
Jónsson og aðalleikkonan Tinna
Gunnlaugsdóttir til Kaupmannahafn-
ar af því tilefni.
Fyrr um daginn efndu sendi-
herrahjónin, Einar Ágústsson og
Þórunn Sigurðardóttir til sídegis-
boðs fyrir aðstandendur kvikmynd-
arinnar og sýningaraðila og var
þar margt manna. Kvikmyndin
hlaut mikið lof frumsýningargesta
og voru Þorsteinn Jónsson og
Tinna Gunnlaugsdóttir hyllt með
lófataki og færði borgarstjórinn i
Ballerup, Ove E. Dalsgaard, þeim
fagra blómvendi. Að sýningu lok-
inni þágu viðstaddir boð Ixirgar-
stjórans. Þetta sama kvöld var
fjallað um kvikmyndina í danska
sjónvarpinu, og dómar um mynd-
ina í dönskum blöðum í dag eru
mjög jákvæðir.
Atómstöðin verður sýnd í 17
kvikmyndahúsum í Danmörku, en
hér í borg verður hún nú sýnd í
Veser Vov Vov bíóinu á Vester-
brogade. Það er Kommunefilm,
annar stærsti eigandi kvikmynda-
húsa í Danmörku, sem fær Átóm-
stöðina til sýningar fyrir milli-
göngu Gunnars H. Árnasonar.
Þannig var það einnig með kvik-
myndina Húsið, sem enn er verið
að sýna á Jótlandi.
Samtök kvikmyndahúsa í eigu
sveitafélaga, Kommunale Biograf-
ers Samvirke, reka Kommunefilm,
en 17 sveitarfélög standa að sam-
tökunum, sem voru stofnuð til að
koma í veg fyrir, að kvikmyndahús
í dreifbýli og utan við miðborgirn-
ar verði lögð niður. Segir Ove E.
Dalsgaard, borgarstjóri í Ballerup,
sem er formaður samtakanna, að
Kommunefilm muni reyna að fá
norrænar myndir til sýningar, og
er sýning íslenzku myndanna
tveggja upphaf á þeirri viðleitni.
Fri fnimsýningu Atómstöðvarinnar, frá vinstri: Þorsteinn Jónsson leikstjóri,
Einar Ágústsson sendiherra og frú Þórunn Sigurðardóttir, Tinna Gunn-
laugsdóttir, leikari, Ole Hansen fyrrverandi borgarstjóri og Ole E. Dalsgaard
borgarstjóri í Ballerup.
Frá frumsýningu Hússins, frá vinstri: Lilja Þórisdóttir leikari, framkvæmda-
stjóri Kommunefilm, Gunnar H. Árnason og Egill Eðvarðsson leikstjóri.
UTVEGSBANKINN
SPYRÐU EFTIR RÁÐGJAFANUM. HONUM MÁITU TREYSIA
J
ÍEMG MEÐÁBÓT:
TRYGGING
-LAR verðbólgu.
IFRJÁIÓ ÚTTEKTAF REIKNINGNUM
' HVENÆR SEM ER,
ÁTÍMUM TÍÐRAÁÁXTÁBREYTINGA.
ABOT
Á VEXTI
GULLS ÍGILDI