Morgunblaðið - 27.01.1985, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JANÚAR 1985
f^TfTTTSTTfc
vandaöaöar vörur
Hleðslutæki
6, 12 og 24volta.
Margar gerðir.
BENSÍNSTÖÐVAR
SKELJUNGS
Skeljungsbúðin
SiÖumúla33
símar 81722 og 38125
vandaöaöar vörur
Einhell
vandaóar vörur
'k
VÖRUTRILLUR
KR. 1.256,00
VIÐGERÐAR-
LEGUBRETTI
KR. 1.443,00
Skeljungsbúðin
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125
Milin rædd fyrir töku. Frá vinstri: Arnar Jónsson í leikstellingu sinni, Jón Sigurbjörnsson, Gestur Jónasson,
Borgar Garðarsson og Pilmi Gestsson.
LEIKIÐ FYRIR
OFAN MITTI
Rætt við ARNAR JÓNSSON leikara um þá reynslu
hans að leika í kvikmyndinni Gullsandur brotinn á
báðum hælum
Arnar Jónsson leikari gleymir
sennilega seint sumardegi einum í
lok maí í fyrra. Án þess að eiga sér
nokkurs ills von stóð hann í ró-
legheitum við smíðar við þriðja
mann i vinnupalli í fimm metra
hsð við hús sitt i Óðinsgötunni —
nema hvað, pallurinn gefur sig og
þeir félagar í leiklistinni, Arnar og
Kjartan Bergmundsson, falla til
jarðar eins og þyngdarlögmilið
gerir ráð fyrir, en bera gæfu til að
lenda standandi, Arnar i hælun-
um, en Kjartan i öklunum. Þriðji
maðurinn niði taki i traustri stoð
við húsið og slapp því með skrekk-
inn.
Mánuði síðar er Arnar stadd-
ur austur á sandi, klæddur sér-
smíðuðum spelkum, stífður af og
skrúfaður fastur niður í sandinn
og þylur rullu sína í kvik-
myndinni Gullsandur, sem sókn-
arprestur sveitarinnar. Hælarn-
ir höfðu molnað í púsluspil í fall-
inu og í fæturna mátti hann ekki
stíga.
„Það var lán í óláni að upptök-
um á Gullna hliðinu var rétt ný-
lokið þegar óhappið varð,“ segir
Arnar, og má það til sanns vegar
færa því hlutverk djöfsa í því
verki verður ekki leikið með
góðu móti án þess að hafa fullan
kraft i báðum fótum. Arnar
sagði að hælarnir hefðu farið
mjög illa, sérstaklega sá vinstri,
„sem hreinlega þurfti að teikna
upp á nýtt, taka spjaldbein úr
mjöðminni og sparsla í hælinn,“
eins og Arnar orðaði það.
— Ertu búinn að ná þér al-
veg? „Nei, ég er ennþá svoltið
haltur, en myndir sýna að þetta
hefur gróið vel og ég geri mér
vonir um að ná mér að fullu.
Annars segir doktorinn minn,
Brynjólfur Mogensen, að hann
telji æskilegra að ég nái mér
ekki fullkomlega, því þá sé meiri
hætta á að fari ekki nógu var-
lega og ofreyni mig! Þetta segir
hann nú meira í gríni en alvöru.“
— Hvernig var að leika fóta-
laus?
„Nú, ég reyndi bara að sýnast
tiltölulega eðlilegur fyrir ofan
mitti, gleyma því að ég væri sitj-
andi á hnjánum á kassa eða
grafinn í sand. Leiklega var
þetta ekki erfitt, en sársaukinn
var óskaplegur til að byrja með,
sérstaklega fyrsta daginn þegar
blóðið fór fyrst fyrir alvöru að
streyma niður í fæturna."
— Mér er sagt að þú hafir
þurft að sitja hest og keyra bíl á
meðan á tökunum stóð. Ekki hef-
ur það gengið átakalaust fyrir
sig, eða hvað?
„Aksturinn leysti ég með því
að stýra kúplingunni með spýtu
og það gekk alveg furðanlega vel.
En reiðtúrinn, sem þú vékst að,
átti að koma í staðinn fyrir
kvöldgöngu prestsins og alla-
ballans, sem gert var ráð fyrir í
handritinu. Ég held að þetta hafi
verið eina atriðið sem þurfti að
breyta mín vegna. Þessi sena var
reyndar ekki notuð þegar til
koma, en við tókum hana upp
eigi að síður.
Það voru skorin sundur stíg-
vél, máluð og límd utan á gifsið
og mér var skellt á bak. Þetta
tók tímann sinn og það var til
vandræða að hrossinu halfpart-
inn leiddist að vera kvikmynda-
leikari og eitt sinn þegar ég var
á baki lá við að það fældist,
hrökk ónotalega við. Þau héldu í
hrossið, Ágúst Guðmundsson og
Gréta Jónsdóttir sminkdama úr
Þjóðleikhúsinu, og þeim varð
ekki um sel, þótt bæði séu hest-
um vön, urðu lafhrædd um þenn-
an „invalíd" á baki. En þetta
gekk allt slysalaust fyrir sig.“
— Þetta hefur verið dálítið
sérkennileg lífsreynsla. Tók
þetta mikið á þig?
„Nei, ekki þannig. Það er öll
reynsla af hinu góða, og svo var
þetta alveg einstaklega íjúfur og
tilitssamur hópur sem þarna var
saman kominn. Folkið bar mig á
höndum sér ( tvennum skiln-
ingi.“
— GPA
Arnar Jónsson á
hcimili sínu við
Óðinsgötuna.
Morgunbladið/Júlíus
Einhell
vandaóar vörur
bofpressur
FYRIR LIGGJANDI
ALLTAF SAMA LÁGA
VERÐIÐ
Skeljungsbúðin
SiÖumúla33
símar 81722 og 38125
RYKSUGUR
LÉTTAR - HANDHÆGAR
SJÚGA EINNIG VATN
HAGSTÆTT VERÐ
Skeljungsbúðin
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125
Einhell
vandaöar vörur
Léttar
handhægar
steypu
hrærivélar
Á MJÖG
GÓÐU VERÐI
Skeljungsbúðin
SÍÖumúla33
símar 81722 og 38125