Morgunblaðið - 27.01.1985, Blaðsíða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JANÚAR 1985
Eðlisfræðikeppni
framhaldsskólanema
haldin í annað sinn
Morgunblaðið/Bjarni Eirikason
Hans Kr. Guðmundsson og Viðar Ágústsson sem eru í framkvæmdanefnd Eðlisfræðikeppninnar. Benedikt Jóhann-
esson, sem einnig er í framkvæmdanefndinni, vantar á myndina.
Eðlisfræðikeppni framhaldsskóla-
nema, sem Eðlisfræðifélagið og Fé-
lag raungreinakennara standa að
með stuðningi Morgunblaðsins, mun
fara fram hin 9. febrúar nk. Er það í
annað skiptið sem þessi keppni fer
fram hér á landi, en hún er í tengsl-
um við Ölympíuleikana i eðlisfræði
sem farið hafa fram erlendis undan-
farin 17 ár. Er það von aðstandenda
eðlisfræðikeppninar háð hún verði
árlegur viðburður framvegis, enda
þótti takast vel til um framkvæmd
keppninnar á síðasta ári.
Rétt til þátttöku í eðlisfræði-
keppninni hafa allir nemendur á
framhaldsskólastigi, og fer for-
keppni fram i framhaldsskólunum
víða um land en síðan keppa þeir
efstu til úrslita í húsakynnum Há-
skóla íslands.
Framkvæmdanefnd keppninnar
skipa þeir Benedikt Jóhannesson
og Viðar Ágústsson af hálfu Fé-
lags raungreinakennara, og dr.
Hans Kr. Guðmundsson af hálfu
Eðlisfræðifélagsins. I samtali við
blm. Mbl. sögðu þeir að markmiðið
með eðlisfræðikeppninni væri að
vekja áhuga á eðlisfræði og beit-
ingu hennar sem undirstöðugrein-
ar allra raun— og tæknivísinda,
jafnframt því að gefa nemendum
kost á skemmtilegum viðburði í
raungreinanáminu. Nokkuð hefði
borið á því við framkvæmd síðustu
eðlisfræðikeppni að kennarar
jafnt sem nemendur væru hikandi
við þátttöku. Að keppninni lokinni
vakti það því ánægju okkar að
margir eðlisfræðikennarar lýstu
ánægju sinni yfir framkvæmd
keppninnar og vel unnum verkefn-
um, sem þeir töldu samræmast vel
því námsefni er byðist í fram-
haldsskólum.
Verkefni þau sem nemenduur fá
til úrlausnar sögðu þeir fram-
kvæmdanefndarmenn að yrðu
nokkuð margþætt sem áður. Þar
væri umfram allt verið að leita
eftir skilningi á beitingu grund-
vallarlögmála eðlisfræðinnar, og
reynt væri eftir föngum að tengja
þau við þekkt fyrirbæri úr um-
hverfinu.
Nú eru síðustu forvöð að til-
kynna um þátttöku í eðlisfræði-
keppninni, sjö framhaldsskólar
hafa þegar tilkynnt um þátttöku
og vitað er um fleiri sem hafa hug
á því að vera með. Rétt er að taka
fram að allir framhaldsskólanem-
endur eiga rétt til þátttöku í
keppninni, og takmarkast hún
ekki við mennta- og fjölbrauta-
skóla.
Svo sem fram kemur hér að
framan mun fyrri hluti eðlisfræði-
keppninnar fara fram í fram-
haldsskólunum um allt land hin 9.
febrúar nk. Síðan munu þeir sem
bestum árangri ná keppa til úr-
slita með því að fást við verkefni,
bæði skrifleg og verkleg, í húsa-
kynnum Háskóla íslands. Fimm
verðlaun verða veitt fyrir bestan
árangur, og eru fyrstu verðlaun
10.000 kr. Þá munu efstu menn
koma sterklega til álita um þátt-
töku í Ólympíuleikunum í eðlis-
fræði sem fram munu fara í
Portoros í Júgóslavíu í sumar.
Þátttaka í ólympíuleikunum er þó
háð því skilyrði að menn séu undir
tvítugsaldri.
Morgunblaðið stendur straum
af miklum hluta kostnaðar við
framkvæmd eðlisfræðikeppninn-
ar. „Hugmyndin að baki því að
leitaö var eftir þátttöku Morgun-
blaðsins var ekki síst sú að þannig
gafst okkur kostur á að veita ein-
hverri eðlisfræðiþekkingu út í
þjóðfélagið," sagði Hans Kr. Guð-
mundsson. „Umfjöllun blaðsins og
kynning á eðlisfræðikeppninni
1984 gerðu hana að almennings-
eign og sérstaklega þótti okkur
mikill ávinningur að blaðið birti
verkefnin úr keppninni jafnóðum,
svo og úrlausnir þeirra, þannig að
öllum almenningi gafst tækifæri á
að spreyta sig á þeim."
Alls skiluðu 32 framhaldsskóla-
nemar lausnum í eðlisfræði-
keppninni á síðasta ári og þóttu
það góðar undirtektir, sérstaklega
miðað við að þá var keppnin hald-
in hér í fyrsta sinn. Þeir Vil-
hjálmur Þorsteinsson og Finnur
Lárusson sem hrepptu efstu sætin
í eðlisfræðikeppninni 1984 tóku
þátt í ólympíuleikunum í eðlis-
fræði er fram fóru í Svíþjóð sl.
sumar og var frammistaða þeirra
með ágætum. Er það von aðstand-
enda keppninnar að sem flestir
framhaldsskólanemar verði með
að þessu sinni.
Cap d'Agde er hreinræktaður
sumarleyfisbær á Miðjardarhafs- ,
strönd Frakklands, og eingöngu
byggður upp fyrir orlofsgesti. Þar eru
óralangar sandstrendur, göngugötur
og torg, glæsileg bátahöfn með um
2ja km langri röð af allrahanda veit-
ingastöðum og verslunum, diskótek,
skemmtistaðir og næturklúbbar .
Og Cap d’Agde er svo sannarlega
staður fjölskyldunnar: Þar er Aqua-
land, 36000 m2 vatnsskemmtigarður
með óteljandi rennibrautum, öldu-
sundlaugum, buslupollum og sprautu-
verki, tennisklúbbur með 63 tennis-
völlum, þar sem kennarar og leiðbeiri-
endur eru á hverju strái, „Gokart”-
braut með kappakstursbílum og
brautum fyrir alla aldursflokka.
Cap d’Agde er frábærlega stað-
sett fyrir þá sem kynnast vilja for-
sögulegri, rómverskri og franskri
menningu, annað hvort í hópferö með
fararstjóranum okkar eða í bílaleigu-
bíl. Það er t.d. stutt í hið stórkostlega
miðaldavirki Carcassonne þar sem
innan virkisveggjanna eru nú ótelj-
andi veitingastaðir, verslanir og
gallery. Dropasteinahellarnir Demoi-
selles og Clamouse eru gjörsamlega
ógleymanlegir. Rómversku minjamar
í Nimes og brúin fræga Pont du Gard
eru ótrúleg stórvirki, hin gullfallega
verslunarborg Montpellier er sjálf-
sagður áfangastaður. Ahugafólk um
rauðleita drykki má ekki láta hjá líða
að fara „ Vínlandsferð ” upp með
Rhöne og heimsækja víngaröa í vín-
ræktarhéruðunum frægu eins og t.d.
Cötes du Rhöne eða Cháteauneuf de
Pape.
Brottför í beinu leiguflugi: 25/5, 12/6,
3/7, 24/7, 14/8 og 4/9.
Dvalartími: 3 vikur, nema 25/5 18
nætur.
Gisting: Tvö frábær íbúðahótel, Hótel
du Golfe og TAIhambra.
Innifalið: Flug, akstur milli flugvallar
og gististaða, gisting, rafmagn og
rúmföt, íslensk fararstjórn.
Barna- og unglingaafsláttur: 0—1 árs
greiða 10%, 2—11 ára greiða 50%,
12—16 ára greiða 70%.
Ertu samferða til Cap d'Agde ?
Síminn er 91-26900.
FíRÐASKRIFSIOHN URVAL
Ferðaskrifslofan Úrval við Austurvöll,
sím! 26900.
QOTT FÓLK