Morgunblaðið - 07.02.1985, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1985
félk í
fréttum
MorKunblaðiö/Steinar Garðarsson
Vmis uppátæki voru á sýninjfunni og hér er það Hjalti Árnason, lyftingamaður, sem leiðbeinir nemendum og
kennurum í sjómanni. harna eru Gunnar Richardsson og l»órir Páll Guðjónsson, sem reyna með sér.
Blómlegt atvinnulíf
|>órir Páll Guðjónsson, verkefnisstjóri, og Jón Sigurðsson, skólastjóri, bjóða
Porstein Pórðarson frá Brekku í Norðurárdal velkominn á sýninguna.
Fyrirtækið Samskot hafði ýmiss konar fatnað á boðstólum, frá vinstri eru
Steinar, Dóróthea, Agnes og Gunnar.
COSPER
„Eitt af þeim atriðum
sem maður man alla ævi“
Sextán ný fyrirtæki spruttu
upp í Borgarfirðinum í síð-
ustu viku og störfuðu af krafti í
nokkra daga. Þau voru síðan lögð
niður eftir helgina, jafn skyndi-
lega og þau höfðu kviknað, en
nemendur Samvinnuskólans í
Bifröst höfðu með þessu starfi
lagt að baki áfanga í námi sínu í
skólanum.
Meðal fyrirtækjanna má nefna
Hótel líkamsrækt, heildverslunina
Samskot, ferðaskrifstofuna Mir-
abello, samvinnufélagið Framtíð-
ina og fleiri „þjóðþrifafyrirtæki"
mætti nefna. Um helgina var
haldin sýning á þessari starfsemi
Samvinnuskólanema og var þar
margt um manninn. Þessi starfs-
viku var nefnd samþættingarvika
á Bifröst og var hefðbundið nám
fellt niður vikuna meðan fyrirtæk-
in voru undirbúin og þau starf-
rækt. Slíkt fyrirkomulag er vel
þekkt í erlendum viðskiptaskólum
að sögn heimildarmanns blaðsins
á Bifröst.
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum er staddur hér á landi
núverandi heimsmeistarinn í „Free
style“-dansi Richard Johansson frá
Svíþjóð. Með honum í forinni er
Helen Kay Rowlay frá Jersey en hún
varð í þriðja sæti í heimsmeistara-
keppninni sem kölluð er „Malibu
World Disco Dancing Champion-
ship“ og haldin er í London ár hvert
núorðið. Fulltrúar 33 þjóða tóku þátt
í keppninni að þessu sinni. Þau voru
að æfa eitt síðdegið í Hollywood og
fengu sér pásu og gáfu sér nokkrar
mínútur til að spjalla við okkur.
— Hvernig var að taka þátt í
þessari keppni?
H: — Það var afskaplega gaman
og maður kynrttist mörgu góðu
fólki, og þetta var þannig vika að
hún verður ógleymanleg. Þetta
var eitt af því sem maður man alla
ævi.
R: — Fyrir mig er þetta sérstakt
því ég haut í verðlaun nýjan Ford
Escord, eitt þúsund pund, heilmik-
ið af ferðalögum og mörg spenn-
andi atvinnutilboð.
— Hafið þið tekið þátt í mörg-
um keppnum áður?
H: — Þetta er mín fyrsta keppni
og ég hef aldrei áður verið í neinu
þessu líku og aldrei á ævinni einu
sinni farið í danstíma. Það sem ég
kann er bara það sem ég hef fund-
ið upp hjá sjálfri mér og lært með
því að horfa á aðra. Ég geri mikið
af líkamsæfingum og ætla að drífa
„Fær þá
ást sem
ég fékk
aldrei“
Christina Onassis varð nýlega
léttari og heilsast móður og
barni vel. Heldur var meðgangan
henni þó þung raun, enda leggst
hún misjafnlega þungt á hinar
verðandi mæður. Christina
þyngdist um 10—12 kílógrömm
áður en yfir lauk og hefur varla
náð þyngdinni niður síðan þó
barnið sé komið í heiminn. Aldrei
segist hún þó hafa kviðið neinu og
alltaf þráð barnið heitt, „þetta
barn mun fá þá ást og hlýju sem
ég fékk aldrei í mínum uppvexti,"
segir Christina og gætir biturleika
í rómnum.
Christina, sem nú er 34 ára
gömul, og eiginmaðurinn, Thierry
Roussel, voru ósammála um hvar
barnið skyldi fæðast. Christina
vildi að það fæddist í Grikklandi,
Thierry vildi að það fæddist í Par-
ís, enda Frakki. Þau sættust á
málamiðlun, Sviss og þar skeði at-
burðurinn fyrir fáeinum dögum.