Morgunblaðið - 07.02.1985, Blaðsíða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1985
Knattspyrnumenn farnir að undirbúa næsta keppnistímabil:
Mikið um félagaskipti — öll lið 1.
og 2. deildar hafa ráðið þjálfara
Morgunblaðiö/Júlíus
• Fjórir af þessum heidursmönnum leika ekki í þessum búningum næsta sumar. Frá vinstri: Ómar
Torfason, Vignir Baldursson, Jóhann Grétarsson, Friðrik Friðriksson og Heimir Karlsson. Aðeins
Jóhann verður í sama liöi.
Knattspyrnumenn eru nú
farnir að undirbúa næsta
keppnístímabil. öll 1. og 2.
deildarliöin hafa nú ráöið þjálf-
ara fyrir sumarið og talsvert
mikið hefur verið um félaga-
skipti undanfarið. Aöeins fjórir
ertendir þjálfarar munu starfa
hér á landi á næsta sumri, tveir
í 1. deild og tveir í 2. deild. lan
Ross verður áfram með Valsliö-
ið og Gordon Lee með KR og í 2.
deild verður Billy Hodgson með
KS frá Siglufiröi og Júgóslavinn
Mile þjálfar lið Njarðvíkinga.
islandsmeistarar Skagamanna
hafa oröiö fyrir mikilli blóötöku,
misst nokkra úr liöi sínu og þá
misstu Keflvíkingar fjóra menn til
Víöis á dögunum. Hér á eftir
munum viö til gamans renna yfir
helstu breytingar hjá félögunum
og byrjum á fyrstu deildinni.
Akranes
Höröur Helgason þjálfar
meistarana áfram. Skagamenn
hafa misst Bjarna Sigurðsson
landsliösmarkvörö til Brann í
Noregi, Siguröur Jónsson er far-
inn til Sheffield Wednesday á
Englandi, Siguröur Halldórsson
mun þjálfa og leika meö liöi Völs-
ungs frá Húsavík og þangaö meö
honum fer Jón Leó Ríkharösson.
Höröur Jóhannesson hefur lýst
því yfir aö hann muni leggja
skóna á hilluna. Þá hafa Skaga-
menn misst Guöbjörn Tryggva-
son til norska liösins Start. Þetta
eru hvorki meira né minna en sex
leikmenn þannig aö mikil breyt-
ing veröur á liöi ÍA. Skagamenn
hafa fengið markvöröinn Birki
Kristinsson til liös viö sig en hann
var hjá KA á Akureyri í fyrra-
sumar.
Valur
Bretinn lan Ross þjálfar
Valsmenn áfram. Liöið byrjaði
illa undir stjórn hans í fyrra en
síöari hluta mótsins voru Vals-
menn óstöövandi og enduöu i
ööru sæti deildarinnar. Léku
skinandi knattspyrnu og sönn-
uöu aö liöiö er eitt þaö besta hér
á landi. Valsarar hafa nú fengiö
miövallarleikmanninn Magna
Pétursson aftur en hann lék meö
norsku liöi í fyrrasumar. Fram-
herjinn Hilmar Sighvatsson leikur
í vetur meö áhugamannaliöi í
Vestur-Þýskalandi en kemur
heim í sumar og fer síöan aftur út
næsta vetur skv. heimildum Mbl.
Þá gæti farið svo aö Sævar
Jónsson, sem undanfarin ár hef-
ur leikið sem atvinnumaöur með
belgíska liöinu Cercle Brúgge,
leiki meö Val í sumar. Hann er nú
kominn heim. Enska félagiö
Norwich hefur reyndar áhuga á
aö fá hann til sín, en ekkert er
ákveðið í þeim efnum. Fari svo
aö ekkert veröi úr því leikur hann
meö Val í sumar. Félagi hans í
landsliösvörninni, Magnús Bergs,
sem er hjá Eintracht Braun-
schweig i Þýskalandi, hyggst
leggja skóna á hilluna i vor og
flytja til íslands. Litlar líkur eru
taldar á því aó hann leiki meö
sínum gömlu félögum í Val. Hann
hyggst hætta alveg í knattspyrn-
unni. Þá hefur Kristinn Björnsson
gengió aftur í Val eftir langa fjar-
veru. í fyrra þjálfaöi hann Leiftur
á Ólafsfirði.
Fram
Framarar hafá ráöiö Ásgeir
Elíasson, sem lék með félaginu í
mörg ár, sem þjálfara. Hann
þjálfaöi og lék með Þrótti síöustu
árin. Þá hefur Ómar Torfason
gengiö í Fram úr Víkingi og
Framarar hafa einnig fengiö
markvöröinn Friörik Friöriksson
aftur úr Breiðabliki. Ormar Ör-
lygsson bakvörður úr KA hefur
einnig gengiö í Fram. Síöast en
ekki síst hefur Pétur Ormslev,
sem undanfarin ár var hjá For-
tuna Dússeldorf í Vestur-Þýska-
landi, gengiö aftur til liös viö
Fram. Hann er reyndar meiddur
eins og er en ætti aö vera oröinn
stálsleginn á ný þegar keppnis-
tímabiliö hefst. Á þessari upp-
talningu sést aö Framarar hafa
safnaö aó sér leikmönnum en
engan misst, þannig aö þaó
veröur örugglega slegist um
stööurnar i liðinu í sumar!
Þór Akureyri
Jóhannes Atlason þjálfar Þór í
sumar en hann var meö Fram á
síöasta keppnistímabili. Jóhann-
es tekur viö þjálfarastööunni af
Þorsteini Ólafssyni, sem þjálfar
og leikur meö Magna frá Greni-
vík í 3. deildinni í sumar.
Óli Þór Magnússon, sem lék
meö Þór í fyrra, er farinn aftur til
Keflavíkur og Guöjón Guö-
mundsson, sem leikiö hefur meö
Þórsurum undanfarin ár, hefur
veriö ráöinn þjálfari 3. deildarliös
ÍK í Kópavogi. Hann mun einnig
leika meö liöinu. Þá er Páll Guó-
laugsson markvöröur farinn aftur
úr Þór, er fluttur til Færeyja á ný.
Líkur eru á því aö varnarmaöur-
inn Þórarinn Jóhannesson gangi
til liös viö Þór á ný en hann var
hjá Reyni Árskógsströnd i sumar.
Víkingur
Víkingar uröu fyrir mikilli blóð-
töku er Ómar Torfason gekk í
Fram á dögunum. Þá hefur
Heimir Karlsson gerst atvinnu-
maöur meó Excelsior í Hollandi
sem kunnugt er, en hann lék meö
Víkingum í fyrrasumar. Þá hafa
Vikingar misst Kristin Guö-
mundsson miövallarleikmann,
sem lék vel meö liöinu í fyrra, til
Fylkis og einnig Örnólf Oddsson,
sem aftur er farinn til Isafjaróar.
Björn Árnason þjálfar Víkinga.
Til liösins er kominn aftur Aöal
steinn Aöalsteinsson. Aöalsteinn
lék lítið í fyrra vegna meiðsla og
gekk síðan í KR síösumars en
hefur nú skipt aftur í Víking.
Þóröur Marelsson og Ólafur
Ólafsson sem voru meiddir allt
keppnistímabiliö í fyrra veröa
einnig á fullri ferö í sumar, þann-
ig aö þaö veröur Víkingum styrk-
ur.
KR
KR-ingar réöu i vetur Englend-
inginn Gordon Lee sem þjálfara,
en hann er mjög þekktur þar í
landi, hefur m.a. þjálfað New-
castle og Everton. KR-ingar hafa
fengiö til liös vió sig unglinga-
landsliösmanninn Guömund
Magnússon sem undanfarin tvö
ár hefur ieikiö meö ísfiröingum,
en var áöur í Fylki. Aöalsteinn
Aöalsteinsson er farinn aftur í
Víking eins og áöur kom fram.
Aö ööru leyti er leikmannahópur
KR óbreyttur.
ÍBK
Keflvikingar misstu fjóra
leikmenn á einu bretti á dögun-
um er Gísli Eyjólfsson, Einar
Ásbjörn Ólafsson, Ingvar Guö-
mundsson og Rúnar Georgsson
gengu allir í Víöi í Garöinum. Þeir
hafa hins vegar fengiö Óla Þór
Magnússon frá Akureyri. Hólm-
bert Friöjónsson þjálfar Keflavík-
urliöiö næsta keppnistimabil.
Þróttur
Jóhannes Eövaldsson mun
þjálfa Þróttara í sumar og leika
meö þeim, „ef hann kemst i liö-
iö“. Þaö veröur þvi örugglega
barist hart um sæti í Þróttarvörn-
inni. Þar er fyrir Ársæll Krist-
jánsson og nú hafa Þróttarar
fengiö til sín Loft Ólafsson, miö-
vöröinn sterka frá Breiðabliki,
auk Jóhannesar. Þróttur hefur
misst Þorvald Þorvaldsson til KA
á Akureyri og þá hefur Páll
Olafsson ákveöiö aö taka sér fri
frá knattspyrnu þar til fram yfir
heimsmeistarakeppnina í hand-
knattleik í Sviss á næsta ári
a.m.k., þar sem hann er í hand-
boltalandsliöinu sem kunnugt er.
FH
Ingi Björn Albertsson hefur
veriö endurráöinn þjálfari FH en
liöiö sigraöi sem kunnugt er í 2.
deild undir hans stjórn i fyrra.
FH-ingar hafa misst Pálma
Jónsson sem nú leikur meö
Vasa-Lund í Svíþjóö. Þá fór Guö-
mundur Hreiöarsson varamark-
vöröur liðsins aftur í Val. Til FH
eru komnir Sigurfinnur Sigur-
björnsson framherji frá Tindastól
á Sauöárkróki og Páll Björnsson
úr Einherja á Vopnafiröi.
Víöir
Marteinn Geirsson þjálfar Víöi
í Garöinum áfram. Hann leikur
þó ekki meira meö liöinu.
Knattspyrnuferill hans er nú á
enda vegna þrálátra meiósla, en
hann hefur slitiö hásin þrívegis á
nokkrum mánuóum og hefur því
oröiö aö leggja skóna á hilluna.
Eins og áöur hefur komiö fram
gengu fjórir úr liöi ÍBK til Víöis,
Einar Ásbjörn Ólafsson, Gísli Eyj-
ólfsson, Rúnar Georgsson og
Ingvar Guömundsson.
Önnur deild
Liöin tvö sem féllu úr 1. deild-
inni, KA og Breiöablik, hafa oröiö
fyrir mikilli blóötöku upp á síö-
kastiö. Hvort tveggja liöið hefur
misst hvorki fleiri né færri en sjö
leikmenn.
KA
KA-menn hafa misst Hafþór
Kolbeinsson og Mark Duffield
aftur til KS, Bjarna Jóhannesson
til Þróttar á Neskaupstaö, mark-
vöröinn Birki Kristinsson til Akra-
ness, Hinrik Þórhallsson til Vasks
á Akureyri, en hann mun þjálfa
liðið, Ormar Örlygsson til Fram
og Þórarin Þórhallsson sem mun
að öllum líkindum ganga til liös
viö Breiöablik.
Til KA eru komnir þeir Þor-
valdur Þorvaldsson miövallar-
leikmaöur úr Þrótti og Tryggvi
Gunnarsson markaskorari úr ÍR.
Gústav Baldvinsson þjálfar KA-
menn áfram.
Breiðablik
Jón Hermannsson hefur tekiö
viö þjálfun Blikanna af Magnúsi
Jónatanssyni. Frá UBK eru farnir
Vignir Baldursson sem þjálfa
mun Austra á Eskifiröi, Ómar
Rafnsson sem leikur meö Völs-
ungi á Húsavík, Sigurjón Krist-
jánsson og Trausti Ómarsson
sem báöir leika í Portúgal, Jón
Oddsson sem fór til ÍBI, Loftur
Ólafsson sem gekk í Þrótt og
Friðrik Friöriksson markvörður
sem fór aftur í Fram. Eins og áö-
ur kom fram eru allar líkur á aö
Þórarinn Þórhallsson fari aftur i
Breiöablik.
KS
Billy Hodgson þjálfar Siglfirö-
inga áfram eins og vió sögöum
frá í gær. Liðiö hefur endurheimt
Mark Duffield og Hafþór Kol-
beinsson frá KA.
m w
IBI
Gísli Magnússon þjálfar ísfirö-
inga áfram. Til liösins eru nú
komnir þeir bræöur Jón og Örn-
ólfur Oddssynir á ný, einnig
Gunnar Guömundsson varnar-
maöur frá Tindastóli. Frá ísafiröi
fara Guðmundur Magnússon í
KR og Atli Einarsson, framherj-
inn ungi sem er nú hjá Lokeren í
Belgíu.
ÍBV
Kjartan Másson þjálfar ÍBV.
Sveinn Sveinsson hefur ákveöiö
aó leika meö liöinu aö nýju og þá
hefur landsliösbakvöröurinn
gamli Ólafur Sigurvinsson æft af
krafti meö liðinu aö undanförnu
og svo gæti fariö aö hann léki
meö í sumar. Eyjamenn hafa
misst Snorra Rútsson sem þjálfa
mun Einherja á Vopnafiröi.
Leiftur
Leiftur frá Ólafsfiröi komst upp
í 2. deild í fyrra. Einar Helgason
frá Akureyri hefur nú tekiö viö
þjálfun liösins. Meö honum fer
sonur hans Logi Már markvörö-
ur. Hann vann sér þaö til frægöar
í fyrrasumar er hann lék meö
Magna frá Grenivík aö vera
markahæsti leikmaöur B-riöils 3.
deildar um tíma! Skoraöi tvívegis
yfir endilangan völlinn eftir út-
spörk. Ólafsfiröingar hafa misst
Kristin Björnsson sem þjálfaói og
lék meö liöinu í fyrra. Hann fór í
Val.
Fylkir
Þjálfarar Fylkismanna veröa
þeir sömu og í fyrra, Ólafur
Magnússon og Friörik Guö-
mundsson. Fylkir sem vann 3.
deildina í fyrra hefur fengiö Krist-
in Guðmundsson úr Víkingi til liö
viö sig, svo og Kristján Guö-
mundsson frá Bolungarvík og
Orra Hjörleifsson úr ÍK.
Skallagrímur
Ólafur Jóhannesson þjálfar
liöið áfram. Engar mannabreyt-
ingar veröa hjá Skallagrími.
Njarðvík
Engar mannabreytingar veröa
hjá liöinu. Júgóslavinn Mile hefur
tekiö viö þjálfun liösins aö nýju,
en hann var meö þaö í hitteö-
fyrra.
Völsungur
Völsungur á Húsavík hefur
styrkt lið sitt mikiö aö undan-
förnu. Siguröur Halldórsson
landsliösmiövöröur af Skaganum
hefur veriö ráöinn þjálfari og
mun hann einnig leika meö liö-
inu. Þá mun Ómar Rafnsson,
bakvöröurinn knái úr Kópavogi,
leika meö Húsvíkingum, einnig
Jón Leó Ríkharösson af Akranesi
og Birgir Skúlason. Sá er varnar-
maöur, var hjá ÍA í fyrrasumar en
lék áö'ur meö Völsungum.