Morgunblaðið - 07.02.1985, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1985
59
II n»
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Gæfi meira fyrir aukið hagræði
Móðir hringdi:
Ég er ein af fjölda mörgum
maeðrum sem vinna úti og þurfa
að koma börnum sínum á dag-
heimili á meðan. Hins vegar er
reglan sú að koma skal með
börnin uppúr korter í eitt, fyrr
ekki. Þetta leiðir það af sér að
maður þarf að að aka eins og
vitlaus, henda barninu á dag-
heimilið og vera svo kominn í
vinnu klukkan eitt.
Það sama er að segja þegar að
sækja þarf börnin að vinnu lok-
inni. Klukkan korter yfir fimm
skal maður vera mættur að
sækja þau en við útivinnandi
hættum margar ekki fyrr en
klukkan fimm og þá er oft ófag-
urt ökulagið á manni, hafandi
fimm til tíu mínútur til að kom-
ast bæjarenda á milli.
Það segir sig sjálft að þetta er
afar óhagstætt fyrir útivinnandi
fólk og guð hjálpi þeim sem ekki
hafa bíl.
Nú spyr ég Reykjavíkurborg
hvort að ekki sé hægt að hag-
ræða þarna tímanum þó ekki
væri nema um fimm mínútur?
Það væri strax betra og til er ég
að borga aðeins meira fyrir það
ef að þessu yrði komið í kring
fyrir okkur. Með vinsemd.
Harðbakur er sumar-
bústaður en ekki bú
Kæri Velvakandi.
Ritstjóri Storðar, þess ágæta
tímarits, skýrir í dálki þínum á
sunnudag þá staðhæfingu Storð-
arhöfunda, að bærinn Harðbakur
á Melrakkasléttu sé nyrsta hús á
íslandi. Eigi er ég alls kostar
ánægður með þá skýringu, og sit
fastur á þeirri skoðun minni að
þeim hafi orðið landfræðilega á í
messunni. Ég tel það ekki hæfa
jafn þjóðlegu tímariti og Storð er,
sbr. nafn ritsins.
Storðarhöfundar segja að Harð-
bakur sé norðar en Skinnalón og
Rif, sem eru tvö eyðibýli á Sléttu
og bæði norðar en Harðbakur, þar
sem Harðbakur sé „hús“ en ekki
„eyðibýli". Að þeirra mati er „hús“
bygging í brúklegu ástandi og þeir
„leggja ekki hús og eyðibýli að
jöfnu". Hér eru menn i hæpnum
orðaleik og vafasamt að hagræða
landafræðinni á þennan hátt.
Harðbakur er eyðibýli, sú full-
yrðing verður ekki hrakin, þar er
ekki stundaður búskapur, heldur
eru húsin notuð til sumardvalar.
Þessvegna hefði verið nær að
segja að Harðbakur væri nyrsti
sumarbústaður landsins.
Á eyðibýli geta hús verið í
brúklegu ástandi, en húsunum á
Rifi og Skinnalóni hefur ekki verið
haldið við sem skyldi, en eru^-
„brúkleg" eftir smáviðgerð. Þau
standa, húsið á Rifi feiknamikið
steinhús og annað húsið á Skinna-
lóni einnig úr steini.
Og fyrst Storðarhöfundar vilja
kalla það hús sem er í notkun
mannabústað, þá hefði verið nær
að segja Núpskötlu á Sléttu nyrsta
hús landsins, því þar er búið heils-
ársbúi. Þar er nyrsta bú á Sléttu
því Harðbakur er sumarbústaður.
Þá er heilsársbúskapur stundaður
bæði á Blikalóni og Sigurðarstöð-
um skammt vestan Harðbaks, en
þessir bæir standa þó örlítið sunn-
ar en Harðbakur og Núpskatla.
Ágæti Velvakandi. Eins og þú
sérð fær ekkert haggað mér í
þessu máli og ég er aðeins að biðja
um að farið sé rétt með staðreynd-
ir, sem snerta æskustöðvar mínar.
Vil ég að lokum þakka Storðar-
höfundum fyrir þá eftirtekt sem
þeir sýna með því að veita athygli
þessum afskekkta kima fóstur-
jarðarinnar. Góðar myndir þeirra
og grein sýna augljóslega að
mannfólkið þar og umhverfi er
ekki jafn fráhrindandi og nafn út-
skagans, Melrakkaslétta, ber með
sér í fyrstu.
Með sömu vinsemdinni,
Sléttungur.
SVGGA V/öGA £ AiLVtRAW
4t
Til sölu Mercedes
Benz
280 TE árgerð ’80. Topp bíll með öllu.
Upplýsingar í síma 75323 eða 75325, eftir kl. 20
666836.
ópavogsbúáT
athugið!
Við bjóðum alla almenna hársnyrtingu svo sem
Permanent, klippingu, lagningu, hárþvott, litun,
iþlástur, stripur, skol, djúpnæringu o.s.frv.
Opiö fra kl. 9—18 á virkum dögum
og kl. 9—12 á laugardögum.
Pantanir teknar í síma 40369.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
ÞINGHÓLSBRAUT 19.
Nýprjónabók
Nr.3
Gefjun AKUREYRI