Morgunblaðið - 07.02.1985, Side 64
OPID ALLA DAGA FRA
KL 11 45 - 23.30
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTI, SlMI 11633
ffgtmfrliKfrtíÞ
EVTT NORT AIIS SttfiAR
FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Þorskveiði í Vestfirðingafjórðmigi:
50 % aflaaukning
frá janúar í fyrra
GÆFTIR og aflabrögö voru mjög
góö í Vestfirðingafjórðungi síðastlið-
inn janúarmánuð. Þorskaflinn í
mánuðinum varð samtals 5.000 lestir
eða rúmlega 50% meiri en í sama
mánuði í fyrra. l>á öfluðust samtals
3.300 lestir af þorski. Afli línubáta
og togara var mjög góður í mánuðin-
um.
Botnfiskaflinn samtals nam 6.038
lestum en á sama tíma í fyrra var
hann 4.444 lestir. Nú réru 17 bátar
með línu og öfluðu samtals 2.184
Verksmiðjan Hydrol:
Útflutningur
hafinn á hertu
loðnulýsi
VKKKSMIÐJAN Hydrol, sem er í
eigu Lýsis hf. og Smjörlíkis hf., hef-
ur hafið útflutning á hertu loðnu-
lýsi. Verksmiðjan hefur hingað til
svo til eingöngu hert lýsi til innan-
landsnota en eftir að útflutningur
hófst í nóvember síðastliðnum hef-
ur hún verið starfrækt með fullum
afköstum og flutt út á þriðja þús-
und tonn af harðfeiti. Kramleiðslug-
eta verksmiðjunnar er 10—15 þús-
und tonn á ári og er útflutnings-
verðmxti afurðanna um 1 milljón
bandaríkjadollara, eða rúmlega 40
milljónir ísl. kr., að sögn Steinars
Berg Björnssonar, forstjóra Lýsis
hf.
Steinar sagði að sjálfagt væri
að nýta þessa aðstöðu til að full-
vinna loðnuafurðirnar en loðnu-
lýsið hefði hingað til verið flutt
óunnið úr landi. Þessi aðstaða
væri fyrir hendi og ákveðin þekk-
ing en erfiðleikar hefðu verið á að
komast inn á markaðina. Það
virtist hinsvegar vera að lagast
og hefði útflutningurinn farið til
Bretlands, Hollands og Póllands.
Ef framleiðslan gengi vel væru
möguleikar á að auka framleiðsl-
una upp í 15—20 þúsund tonn á
ári.
Sjá einnig ..Kannsóknir og
þróunarstarf á íslandi" í Við-
skipti/atvinnulíf á bls. B4.
lesta, en afli línubáta sama tima í
fyrra var 1.639 lestir. Meðaltalsafli
línubáta á hverja lögn nú var tæpar
9 lestir en 6,5 í fyrra. Aflahæsti
línubáturinn nú var Vestri frá
Patreksfirði með 273,5 lestir í 22
lögnum, en auk hans öfluðu fjórir
bátar meira en 200 lesta. I janúar í
fyrra var Þrymur frá Patreksfirði
aflahæstur með 159,7 lestir í 18
lögnum. Af togurum var Páll Páls-
son aflahæstur í janúar með 372,3
lestir en í fyrra var Guðbjörgin
aflahæst með 281,8 lestir.
Innfjarðaveiði á rækju nam nú
samtals 512 lestum af 55 bátum í
fjórðungnum, sem er allmiklu
minna en á sama tíma í fyrra vegna
veiðitakmarkana nú. Tvö skip úr
fjórðungnum stunduðu djúprækju-
veiðar í janúar. Sólrún frá Bolung-
arvík aflaði 36 lesta og Hafþór frá
ísafirði 50 lesta. Bæði skipin frystu
verulegan hluta aflans um borð.
Þá má geta þess, að skuttogarinn
Dagrún frá Bolungarvík landaði 531
lest af meltu frá því í maí á síðasta
ári til ársloka, en meltan er unnin í
fiskimjöl. Annars var ársafli Dag-
rúnar um 4.000 lestir af fiski.
Morgunbladid/Júlíu8
Verzlunarskólanemar skemmta sér
Nemendamót Verzlunarskóla íslands var haldið í gær og færðu nemendur þi upp atriði úr söngleikjunum
Hárinu, Jesus Christ Superstar og Grease. Á meðfylgjandi mynd eru nemendur að dansa atriði úr Grease. Þessi
skemmtan fór fram í Háskólabíói og verður hún endurtekin fyrir utanskólamenn á laugardaginn kemur.
QLÍS gerir útgerðar- og sjómönnum tilboð:
Sjáyarútyegurinn taki
við eigin olíuviðskiptum
OLÍUVERSLUN íslands hf. hefur
gert samtökum útgerðarmanna og
sjómanna tilboð um að olíufélag
sjávarútvegsins taki yfir allan inn-
flutning og sölu OLÍS á svartolíu og
gasolíu til þarfa sjávarútvegsins. Fé-
lagið býður jafnframt afnot af
birgðageymum og tækjum til olíu-
dreifingar og afgreiðslu. Bréfið, sem
er undirritað af Þórði Ásgeirssyni
forstjóra Olíuverslunarinnar og sent
Sjómannasambandi íslands, Far-
manna- og fiskimannasambandi fs-
lands og Landssambandi ísl. út-
vegsmanna, er svohljóðandi:
„Að undanförnu hefur ítrekað
verið skýrt frá því í fjölmiðlum að
áhugi sé á því innan raða út-
vegsmanna og sjómanna að stofna
nýtt olíufélag utan um innflutning
og olíuviðskipti útgerðar og fisk-
vinnslu. Hefur verið fullyrt að
þannig mætti lækka verulega olíu-
kostnað þessara aðila eða allt að
40%. Olíufélögin hafa hins vegar
haldið því fram að í dag sé verð á
olíu svo lágt hér á landi að um
mikinn taprekstur sé að ræða hjá
þeim.
Ætla má að hugmyndum út-
vegs- og sjómanna um eigið olíufé-
lag verði nokkuð erfitt að hrinda í
framkvæmd vegna mikils stofn-
kostnaðar við byggingu birgða-
geyma o.þ.h. Olíuverzlun íslands
hf. vill ekki lengur sitja undir
þeim alvarlegu ásökunum að eiga
þátt í fjárhagsvanda útgerðarinn-
ar með því að selja og lána útgerð-
inni olíu á alltof háu verði. Þess
vegna viljum vér tryggja það að
stofnun olíufélags sjávarútvegsins
strandi ekki á háum stofnkostnaði
og setjum fram eftirfarandi til-
boð:
„1. OLÍS hættir öllum svartolíu-
oggasolíuviðskiptum við útgerð og
Fargjaldastríð í Evrópufluginu:
Flugleiðir fylgja anna-
fargjöldum Arnarflugs
SVO VIRÐIST sem fargjaldastríð sé
hafið á milli íslensku millilandailug-
félaganna í Evrópuflugi í kjölfar
hinna nýju annafargjalda Arnarflugs
til Amsterdam með 38%afslætti sem
sérstaklega eru hugsuð fyrir menn
sem þurfa að fara í stuttar viðskipta-
ferðir í miðri viku. Svar Flugleiða
~wru samskonar fargjöld til Luxem-
borgar, nema hvað þau gilda í einn
til sjö daga í stað eins til fimm daga
hjá Arnarflugi, og hliðstæð fargjöld
til London og Glasgow með 19% af-
slætti.
Sigfús Erlingsson fram-
kvæmdastjóri hjá Flugleiðum
sagði í samtaii við blaðamann
Mbl. í gær að Flugleiðir hefðu sótt
um leyfi fyrir þessum nýju far-
gjöldum til stjórnvalda og væntu
samþykkis þeirra í dag. Þetta væri
svar félagsins við fargjaldaútspili
Arnarflugs, hinum svokölluðum
annafargjöldum til Amsterdam,
sem kynnt voru í vikunni. Sigfús
sagði að Flugleiðir væru nú að
gera nánari könnun á áhrifum
þessara nýju fargjalda.
„Þetta mun verða til að rýra
tekjur flugfélaganna. Þess vegna
er erfitt að skilja þetta fargjalda-
útspil Arnarflugs," sagði Sigfús.
Sagði hann að þetta væri ekki í
samræmi við almenna þróun í
flugheiminum, hefði þó áður verið
reynt en ekki reynst neinn bú-
hnykkur. Aðspurður um hvort
flugfélögin væru komin í far-
gjaldastríð, sagði Sigfús: „Það hef-
ur verið samkeppni í ýmsum þátt-
um á milli félaganna. Ég geri ráð
fyrir að ef annar aðilinn undirbýð-
ur muni hinn svara, og að það
komi engum á óvart."
fiskvinnslu þegar búið er að selja
þær birgðir sem nú eru til hjá fé-
laginu.
2. OLÍS hættir nú þegar öllum
innflutningi á svartolíu og gasolíu
til þarfa útgerðar og fiskvinnslu.
3. OLÍS afsalar öllum viðskipta-
samningum og innflutningsleyf-
um á gasolíu og svartolíu vegna
þarfa útgerðar og fiskvinnslu til
væntanlegs olíufélags sjávarút-
vegsins.
4. Skuldir útgerðar og fisk-
vinnslu við OLÍS verði greiddar
þannig að olíuféiag sjávarútvegs-
ins yfirtekur kröfurnar og þar á
móti jafnháar greiðsluskuldbind-
ingar OLÍS við lánastofnanir enda
komi til samþykki lánastofnana
og ríkisábyrgð ef þurfa þykir.
5. OLÍS býður olíufélagi sjávar-
útvegsins afnot af birgðageymum
félagsins um land allt og tækjum
til olíudreifingar og olíuafgreiðslu
gegn mjög vægu leigugjaldi eða til
kaups eftir samkomulagi."
Það skal að lokum tekið fram að
OLtS mun að sjálfsögðu halda
áfram allri annarri starfsemi eins
og innflutningi og sölu á gasolíu
og bensíni til bifreiða og landvéla,
flugvélaeldsneyti, bílavörum,
byggingavörum o.s.frv. Og að
sjálfsögðu mun OLÍS veita olíufé-
lagi sjávarútvegsins eða einstök-
um útvegsmönnum fullkomna
þjónustu í sambandi við smurolíu-
vörur frá BP og Mobil jafnframt
því sem OLÍS mun veita olíufélagi
sjávarútvegsins allan mögulegan
stuðning hvað snertir tækniþekk-
ingu og hvers kyns ráðgjöf."