Morgunblaðið - 12.02.1985, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 12.02.1985, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1985 15 FLAUTU- TÓNLEIKAR Tónlist Jón Ásgeirsson Kolbeinn Bjarnason flautuleik- ari hélt sérstæða tónleika sl. sunnudag að Kjarvalsstöðum á vegum Tónskáldafélags íslands og voru þessir tónleikar þeir síðustu í tónleikaröð þeirri er nefnist Myrkir músíkdagar. Viðfangsefni Kolbeins voru eftir Robert Dick, Robert Aitken, Þorkel Sigur- björnsson, Atla Heimi Sveinsson, Atla Ingólfsson, Áskel Másson og Harvey Sollberger. öll verkin eiga það sammerkt að vera að nokkru leyti tilraunaverk, þar sem reynt er til þrautar hversu víkka má tónmyndunarsvið flautunnar. Það er ljóst að slíkar tilraunir hafa þýðingu fyrir viðhorf manna til nýrra tónmyndunaraðferða og þar með áhrif á tónskapendur og hlustendur. Það sem einkum hef- ur verið deilt um, er að tiiraunin ein getur ekki þjónað sem list- rænt markmið, nema að því leyti að sköpun verks verður ávallt til- raun, eðli sinu samkvæmt. Þeir semeinkum telja sig knúna til andmæla, telja að leitin að hinu frumlega og framleiðsla tón- skálda í tónmenntastofnunum, hafi leitt til ófrjósemi og til að berja á eigin getuleysi, snúi menn sér að ræktun nýrra „afbrigða", með öðrum orðum, hafi gert frumleikann að markmiði. Að þessu sinni hefur verið unnið skipulega og af svo mikilli atorku, að nú er óhemju mikið til af alls konar tilraunaverkum og frum- leikinn þvi tekinn að snúast upp í leiðinlega endurtekningu á oftlega misheppnuðum tilraunum. Auk þessa er því einnig haldið fram að nýjungastefnan sé ekki lengur nýjung, heldur kaldhömr- uð skólaspeki og slík stofnanalist ófrjór tilbúningur. Hvað sem líð- ur þessum hugmyndum er víst að leit manna eftir nýjungum á sviði tónmyndunartækni hefur mikla þýðingu fyrir tónskapendur og Kolbeinn Bjarnason hefur breytt viðhorfum manna til tónlistar. Það þýðir þó ekki að öll slík verk séu listaverk en í þeirri rýni veldur snilld flytjenda erfið- leikum. Það hefur þráfaldlega komið fram, að snillingar í flutn- ingi slíkra verka hafa í raun skap- að þau með yfirburða tækni sinni í útfærslu hljóðanna. Afburða flytjandi þarf ekki margbrotinn tónvef til að gleðja hlustendur og þegar svo er í pottinn búið er erf- itt að greina milli snilldar flytj- andans og innviðu verksins. í þeirri tónlist sem menn þekkja vel er þessu oftlega á annan veg farið, að hlustandi er ekki ánægður með útfærslu flytjandans, jafnvel þó eigi í hlut frábær listamaður. Allt um það, tónleikar Kolbeins Bjarnasonar voru mjög vel út- færðir og hefur hann aflað sér töluverðar tækni í ýmsum þeim nýjungum sem völ er á og verður eflaust tónskáldum hvatning til að semja tónlist fyrir flautu. Jón Ásgeirsson Ruth Slenczynska Einhverjir stystu tónleikar sem undirritaður hefur hlýtt á voru haldnir í Austurbæjarbíói sl. laugardag á vegum Tónverks. Tónleikarnir stóðu vel á þriðju klukkustund, voru með tveimur hléum en samt svo fljótir að líða, sem einu snæljósi brygði fyrir. Það var ekki fyrir það að efn- isskráin væri margbreytileg, þvert á móti var hún sérdeilis einlit. Hún samanstóð af öllum etýðunum eftir Chopin, sem eru tuttugu og fjórar að tölu og sem millispil var Carneval eftir Schumann og lítil Nocturne eftir Copland. Rut Slenczynska er stórbrot- inn píanóleikari og þó leikur hennar væri ekki gallalaus, eins og t.d. i fyrstu etýðunni og þeirri fjórðu og tólftu í ópus 10, þar sem bassinn var æði loðinn vegna of mikils „pedals", var leikur hennar í öðrum hlutum þessa erfiða stórvirkis með slík- um glæsibrag, að fátt verður til- tækt til samanburðar. Ekki dugir að bera leik hennar saman við leik ýmissa ná- kvæmnispíanista, þeytispjalda- snillinga, eins og einn hljóm- leikagesta komst að orði, því leikur hennar er magnaður upp af þeim grunnþáttum er gerir leiknina að verkfæri en ekki markmiði. Af þeim etýðum sem voru ógleymanlega vel fluttar mætti nefna nr. 2, 5 og 8 I ópus 10 og nr. 2,6,7,9 og tvær síðustu Ruth Slenczynska í ópus 25. Þær tvær síðustu í ópus 25 eru feikileg pianóverk og var leikur Slenczynsku, í einu orði sagt stórbrotinn. Ekki átti undirritaður jafn góðar stundir með Schumann, því þrátt fyrir ágætan leik vant- aði hina skáldlegu andakt róm- antíkurinnar í verkið. Hvað sem því líður var leikur þessa sér- stæða listamanns mikill við- burður listþyrstum íslendingum. Sem aukalag lék Slenczynska La Capanella eftir Liszt og var leik- ur hennar þar svo tær og glæsi- legur að tók til dýpstu tilfinn- inga, svo að undirrituðum lá við gráti og „lái mér hver sem vill“. McAltlsírhXcÁ'it^ Bolholti 6 — Reykjavík Fjölbreytt námskeiöahald fyrir ung- ar stúlkur, konur og herra hefjast í næstu viku. Sérfr. leiöb. meö... ★ Snyrtingu ★ Hárgreiöslu ★ Borösiöi og gestaboð ★ Hreinlæti og fataval ★ Hagsýni ★ Framkomu ★ Ræöumennsku ★ Kurteisi ★ Göngu Innritun hefst í dag. Síminn er 36141. Síminn í skólanum er 68-74-80. Þeir sem eru á biölista þurfa aö hafa samband sem fyrst. Stutt snyrtinámskeið 6 í hóp — 3 sinnum. Handsnyrting — Andlits- hreinsun. Dagsnyrting — Kvöldsnyrt- ing. Herranámskeið 10 í hóp — 8 sinnum. Framkoma — Kurteisi Snyrting Fataval — Gestaboð Ræöumennska Hárgreiösla — Ganga. Módelnámskeið — dömur og herrar 12 í hóp — 15 sinnum. Framkoma — Kurteisi — Ganga. Hreinlæti — Snyrting — Fatnaöur. Vinna við myndatökur — Sýningastörf Fyrsti kennsludagur 18. febrúar. — Námskeiðum lýkur fyrir páska. LÍKA ÁHUGA Á BÍLUM? / samvinnu viö VOLVO umboöiö á íslandi efna Samvinnuferöir-Landsýn til einstakrar feröar til Gautaborgar fyrir bílaáhugamenn og alla þá er starfa viö bílaiönaöinn á íslandi. FERÐA TILHÖGUN 13. mars. Mi&vikudagur Flogið frá Keflavík til Gautaborgar. Áætluð lending kl. 15:30. 14. mars. Fimmtudagur Verkstæðisskoöun. Heimsókn ( eitt fullkomnasta verkstæði á Norðurlöndum, Bil och Truck í Gautaborg. 15. mars. Föstudagur Skoðunarferð í VOLVO Verksmiðjurnar. Fólks- og vörubílaverksmiðjurnar skoðaðar. Hádegisverður hjá VOLVO. 16. mars. Laugardagur SÝNINGIN AUTO ’85 í Svenska Mássen skoðuð. Þetta er stærsta sýningin ( Skandinavíu sem fjallar um allt sem við kemur bílum og bílaverkstæðum, vélaverkstæðum, bifreiðarafmagni, réttinga- og sprautunarverkstæðum, dísilverkstæðum og dekkjaverkstæðum. 17. mars. Sunnudagur Flogið frá Gautaborg til Keflavikur. Brottför áætluð kl. 14:30. Verð: 19.800.- « Aukagjald vegna eins manns herbergis kr. 400 pr. nótt. Innlfalið i verðl: Flug, akstur að og frá flugvelli erlendis. gisting í tveggja manna herbergi ð Hótel Scandinavia, morgunveröur, skoöunarferöir og fararsQóm Flugvallarskattur er ekki mnifalinn I veröi. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTR/ETI 12 - SÍMAR 27077 t 28899 SOLUSKRIFSTOFA AKUREYRI. SKIPAOOTU 18 - SIMAR 21400 á 23727 Fararstjóri: Sighvatur Blöndal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.