Morgunblaðið - 12.02.1985, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1985
Afþreying og úrvals
skáldskapur í sömu andrá
Hljóm
nmm?
Siguröur Sverrisson
Matthías Johannessen
Morgunn í maí/Dagur ei meir
Fálkinn.
Það er ekki oft sem íslenskur
Ijóðalestur er festur í plast og
gefinn út. Ein slík plata leit þó
dagsins ljós á vegum Fálkans
fyrir jólin. Er þar um að ræða
upplestur Matthiasar Johann-
essen á eigin ljóðum við undir-
leik starfsfélaga á Morgunblað-
inu.
Matthías er afbragðsgott
skáld, tæpast leikur á því nokkur
vafi. Sjálfur uppgötvaði ég hann
ekki fyrr en 1978, er ég fékk
Ijóðabók hans Morgunn í maí að
gjöf. Það er auðvelt að hrífast af
ljóðum Matthíasar. Hann hefur
ekki aðeins afburða vald á ís-
lenskri tungu, heldur hefur hann
alltaf eitthvað að segja í Ijóðum
sínum og gerir það á skemmti-
legan máta.
Er ég heyrði þessa plötu upp-
götvaði ég, að það er sitthvað að
sitja heima í stofu og lesa lóð
hans í hljóði og heyra hann
sjálfan lesa eigin Ijóð styrkri
röddu. Þrátt fyrir góðan kveð-
skap held ég að Ijóðalesturinn
einn og sér hefði verið þreytandi
til lengdar á heilli plötu ef ekki
hefði komið til snoturlega sam-
ansett tónlist. Ekki aðeins brýt-
ur hún efnið upp á köflum, held-
ur samtvinnast því skemmtilega
á öðrum stöðum.
Reyndar eiga Morgunblaðsfé-
lagarnir ekki allan heiður af
tónlistinni á plötunni. Þar er
einnig að heyra stuttar glefsur
af plötum frægra listamanna og
sérstaklega varð ég undrandi að
heyra lítið brot af Satisfaction
Rolling Stones á einum stað. Það
lag átti hins vegar 100% við í því
tilviki.
Þessi plata er ekki aðeins góð
og gild sem ljóðaplata heldur er
hún hin áheyrilegasta fyrir til-
stilli tónlistarinnar. Hún gerir
það að verkum að það er leikur
einn að láta sér líða vel við að
renna plötunni undir nálina,
hvar og hvenær sem er. í stórum
eða smáum skömmtum er þetta í
senn góð afþreying og afbragðs
skáldskapur.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Trésmíðavélar
Mikiö úrval af góðum, notuöum, yfirförnum
trésmíöavélum frá Danmörku.
Upplýsingar á Hótel Hofi, sími 28866, V. Krist-
jánsson.
Trésmíðavélar
Ný lakkteppavél til afgreiöslu strax. Vinnu-
breidd 1300 mm.
Upplýsingar á Hótel Hofi, sími 28866, V. Krist-
jánsson.
Trésmíðavélar
Sérfræðingur í brennsluútbúnaöi og sogkerf-
um fyrir trésmiöjur ásamt sogbúnaði fyrir
vélsmiöjur og bifreiöaverkstæði veröur
staddur hér á landi frá 10,—13. þessa mán-
aðar.
Upplýsingar á Hótel Hofi, sími 28866, V. Krist-
jánsson.
Kvöldverðarfundur
veröur haldinn miövikudaginn 13. febrúar
meö Albert Guömundssynl fjármálaráö-
herra í veitingahusinu Hrafninum í Skip-
holti. Rætt veröur um stjórnmálaviöhorfiö.
Félagsmenn eru hvattir til aö fjölmenna og
mæta tímanlega kl. 19.00.
Kvöldveröur kostar kr. 310.
Heimdallur.
Hvöt
T rúnaðarráðsf undur
Vjterkur og
^3 hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Fundur veröur i trúnaöarráöi Hvatar þrlöju-
daginn 12. febrúar kl. 18.00 I Valhöll. Gestur
fundarins veröur Ólafur G. Einarsson for-
maöur þingflokks Sjálfstæöisflokksins og
mun hann ræöa þau þingmál sem efst eru á
baugi i dag.
Stjórnin.
Hveragerði - Hveragerði
Sjálfstæöisfélagiö Ingóltur heldur félagsfund I Hótel Ljósbrá miö-
vikudaginn 13. febrúar kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Drög aö fjárhagsáætlun 1985.
2. Kaffihlé.
3. önnur mál.
Félagar eru hvattir til aö fjölmenna.
Stjórnin.
Félag Sjálfstæðismanna í
Háaleitis og Laugarnes-
hverfi
SPILAKVÖLD
þriöjudaginn 12. februar kl. 20.30 i Valhöll, Háaleitisbraut 1. Reykjavik.
Góö verölaun og kaffiveitingar.
Fjölmenniö.
Almennur stjórn-
málafundur
Felög sjálfstæöismanna í Reykjavík boöa til almenns stjórn-
málafundar fímmtudaginn 14. febrúar kl. 20.30 I Sjálfstæöishúsinu
Valhöll.
Frummælendur veröa:
Þorsteinn Pálsson formaöur Sjálfstæöisflokksins.
Friörik Sophusson varaformaöur Sjálfstæöisflokksins.
og Birgir Isleifur Gunnarsson formaöur framkvæmdastjórnar Sjálf-
stæöisflokksins.
Sjálfstæöismenn eru hvattir til aö fjölmenna.
Landsmálafélagiö Vöröur,
Hvöt,
Heimdallur,
Málfundafélagið Óöinn.
RAFIÐJAN sf. IGNIS-umboðiö
Ármúla 8
108 Fteykjavík.
Sími 91-19294.
H: 144. Br: 60. D: 60.
Kr. 11.700 Kr. 16530 Kr. m716 Kr. 14505 Kr. 13570 Kr. 13505 Kr. 15.105 Kr. iai40 Kr. 18500