Morgunblaðið - 12.02.1985, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 12.02.1985, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRpAR 1985 37 1917 hafði Björg gengið að eiga Magnús Jónasson, son Jónasar Magnússonar í Köldukinn og bú- stýru hans Maríu Ólafsdóttur. Magnús var gagnfræðingur að mennt, greindur maður og dugleg- ur. Tveim árum eftir Staðarfells- slysið eignuðust þau Björg og Magnús dóttur, Soffíu Þuríði, og ári síðar fæddist þeim lítill Gest- ur. Þau Björg og Magnús bjuggu allan sinn búskap í Túnagarði á Fellsströnd og þar lifði og starfaði Björg í sínu margfalda hlutverki, sem móðir, ljósmóðir og bústýra þar til 1951 að þau bregða búi og flytja til Reykjavíkur. Bæði Soffía og Gestur höfðu þá lokið stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri og dvöldu í Reykjavík við nám og störf. Hafa þau systkinin bæði erft gáfur, gæði og mannkosti foreldra sinna og verið þeim til sóma í lífi sínu og starfi. Mikil veikindi steðjuðu að Soffíu, dóttur þeirra, milli tvítugs og þrítugs og urðu þau sjálfsagt til þess að ýta undir flutning þeirra til Reykjavíkur. Soffía náði fullum bata og þakkaði Björg Guði sínum fyrir það. í Reykjavík leið Björgu vel og hún fagnaði hverri framför og tækniþróun sem tíminn bar með sér. Hún minntist allsleysis, hung- urs og ómegðar, fordóma og bá- bilja, samgönguleysis og vonleys- is. Ef til vill ekki af eigin raun — en augu ljósmóðurinnar í meira en 40 ár sáu margt sem seint gleymd- ist. Hún syrgði því aðeins það bjarta í liðinni tíð og bar gæfu og greind til þess að greina það frá hinu þótt slikja ára og minninga slægi roða á fortíðina. Magnús lést árið 1965 og eftir það hélt Björg heimili með börn- um sínum meðan kraftar entust. Síðustu árin urðu löng og ströng og hvíldin var henni kærkomin. Umhyggja barna hennar og ástúð í löngum veikindum hennar, þegar lífsloginn smá fjaraði út, verður öllum sem til þekkja ógleymanleg og ber fagurt vitni þess uppeldis sem þau fengu í veganesti. Björg Magnúsdóttir er öll. Glæsilegur fulltrúi þeirrar kynslóðar sem senn er horfin að fullu. Eftir stöndum við með söknuðinn og sorgina. En sá unaðshjúpur sem Björg óf okkur samferðamönnun- um með ást sinni og elsku mun ylja okkur um ókomin ár. Blessuð sé minning hennar. GuAfinna Ragnarsdóttir Þann 2. febrúar sl. andaðist að Hrafnistu í Reykjavík Björg Magnúsdóttir fyrrum húsfreyja í Túngarði á Fellsströnd, Dalasýslu, á nítugasta og sjöunda aldursári. Björg fæddist að Knarrarhöfn í Hvammssveit. Foreldrar hennar voru merkishjónin Soffía Gests- dóttir og Magnús Friðriksson, bóndi þar og síðar að Staðarfelli. Voru þau jafnan kennd við þann stað. Björg ólst upp á heimili for- eldra sinna að Staðarfelli. Á æskuárum sínum stundaði hún bæði bóklegt og verklegt nám í Reykjavík og útskrifaðist frá Ljósmæðraskóla íslands árið 1910. Hún tók þá þegar við ljósmóður- starfi í heimasveit sinni og sinnti því í 41 ár. Björg giftist árið 1917 Magnúsi Jónassyni frá Köldukinn. Hjóna- band þeirra stóð í 48 ár eða þar til hann lést árið 1965. Sama ár og þau giftust hófu þau búskap að Túngarði á Fellsströnd og bjuggu þar til ársins 1951 er þau fluttust til Reykjavíkur og var heimili þeirra þar að Drápuhlíð 41. Eftir að Magnús lést hélt Björg áfram heimili með börnum sínum á meðan heilsa hennar leyfði. Eft- ir það dvaldi hún að Hrafnistu og þar lést hún, eins og áður er getið, eftir sjö ára dvöl þar. Túngarður er næsti bær við Staðarfell. Það var ekki eingöngu að -vrð Margrét ættum þar góða vini meðan við bjuggum að Stað- arfelli í nágrenni við þau. Það var einnig mikils virði fyrir okkur, þá ung að árum, að kynnast reynslu þeirra Túngarðshjóna, búhyggind- um þeirra og forsjálni. Það var til eftirbreytni, sama hvar skyggnst var um í Túngarði, utan bæjar sem innan, snyrtimennskan og smekkvísi mætti auganu hvar- vetna. Samheldni einkenndi störf þeirra hjóna og síðar barna þeirra þegar þau komu til starfa með þeim. Eins og áður er að vikið starfaði Björg Magnúsdóttir að Ijósmóð- urstörfum í 41 ár í Fellsstrand- arhreppi. Allan þann tíma fylgdi henni sú gifta að aldrei varð slys á konum er nutu hennar umsjár. Ekki var það tilviljum að svo vel tókst til heldur hitt að hæfileikar til starfsins voru henni meðfæddir og þroskaðir. Miklar gáfur, sér- stök snyrtimennska, hreinlæti og nærgætni. Ekki er að efa það að oft var búið við hinar erfiðustu aðstæður á heimilunum, sérstak- lega áður fyrr, en Björgu tókst fljótlega að láta heimilin, sem hún dvaldi á sem ljósmóðir, bera merki t Konan mln, móðir okkar og dóttir, GUDRUN BERGLJÓT ÞÓROARDÓTTIR, Krossholti 4, Keflavlk, verður jarösungin frá Fossvogskapellu miövikudaginn 13. febrúar kl. 10.30. Þórhallur Helgason og börn, Ragnhíldur Einarsdóttir, Þóröur Sigurbjörnsson. t Eiginmaöur minn, GÚSTAF HJARTARSSON frá Grjóteyri I Andakflshreppi, lóst 30. janúar sl. Útförin fór fram i kyrrþey aö ósk hins látna. Þökkum innilega sýnda samúö. Sérstaklega viljum viö þakka lækni hans sl. 7 ár, Agli Jacobsen, og hans starfsfólki fyrir umhyggju óg alúö og siöast en ekki síst öllu starfsfólki á öldrunarlækningar- deildum Landspitalans, Hátúni 10b, fórnfúsa umönnun. Einnig kærar þakkir til allra þeirra er voru hjá honum og veittu aöstoö i löngum veikindum. Guö blessi ykkur öll. Guórún J. Einarsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabarn og systkini hans. Lokað frá hádegi í dag vegna jarðarfarar KRISTÍNAR HELGADÓTTUR. Davíö S. Jónsson og co. hf. veru sinnar þar ef breytinga var þörf. Um húsmóðurstörf hennar er það sama að segja, rausn og háttvísi settu svip á heimilið enda gestrisnin rómuð. Ekki orkar það tvímælis að Björg Magnúsdóttir var að eðlis- fari hlédræg, samt sem áður starf- aði hún að félagsmálum í sveit sinni svo sem í stjórn kvenfélags sveitarinnar frá stofnun þess og einnig í skólanefnd Húsmæðra- skólans að Staðarfelli. Hvergi sóttist hún þó eftir vegtyllum. Þau Björg og Magnús eignuðust tvö börn, Soffíu og Gest. Þau urðu bæði súdentar frá Menntaskólan- um á Akureyri og bæði hafa þau lokið prófi frá Háskóla íslands. Gestur starfar nú hjá Alþingi við handritalestur, en Soffía er deild- arstjóri í heilbrigðisráðuneytinu. Það er sameiginlegt með þeim systkinum að bæði hafa þau erft mannkosti foreldra sinna í ríkum mæli. Ekki skorti heldur að þau hugsuðu vel um móður sína í löng- um veikindum hennar. Daglega munu þau hafa komið til hennar á Hrafnistu. Sonur hennar Gestur sagði mér oft og það síðast nú fyrir stuttu, að ef hann byrjaði að fara með kvæði sem hann vissi að hún kunni, þá tók hún við og lauk því ef hann stöðvaði sína frásögn, sem hann gerði til að fylgjast með andlegri heilsu hennar, og sannar það hve vel gefin Björg var. Við Margrét heimsóttum hana um síðustu jól og þótti okkur mik- ið til þess koma að hún þekkti okkur bæði með nafni. Þegar ég lít yfir farinn veg og virði fyrir mér ýmis atvik er á dagana hafa drifið þá finnst mér að reynslan sanni að rétt er metið sem felst í þessum orðum „að maðurinn er gullið". Þessi háaldr- aða kona Björg Magnúsdóttir frá Túngarði er sönnun þess. Við Margrét og börn okkar fær- um börnum hennar innilegar sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning þessarar merku konu. Halldór E. Sigurðsson ÞESSAR FALLECU VARADEKKSHLÍFAR FÁST HJÁ OKKUR — þægilegar í notkun — — veörast ekki — — auðvelt aö hreinsa — HEKLAHF Laugavegi 170-172 Sími 21240 porsKaDarett! Þrúmustuö í Þorscafé _ io.míirfl FoslUdags-oglauga.dags^öld Matur framreiddur fra kl. 20. Þriréttaöur kvöldveröur * Tvær vinsælustu * danshljómsveitir landsins Júlíus Brjánsson Kjartan Bjargmundsson Guðrún Alfreðsdóttir Saga Jónsdóttir Guðrún Þórðardóttir ★ Pónik og Einar ★ Dansband fI Önnu VilhjálmsT Staður hinna vandlátu Pantid borö tímanlega. — Sími23333 og 23335 r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.