Morgunblaðið - 12.02.1985, Síða 42

Morgunblaðið - 12.02.1985, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1985 fólk í fréttum Hver auglýsir hvað? Fjölgar hjá Connors-hjónum Tennisstjarnan Jimmy Conn- ors er hinn mesti Krimnid- arseKKur á tennisvellinum, að- eins frekjan John McEnroe tek- ur honum fram í skapstærð eftir því sem kunnugir telja. Sú var tíðin að Jimmy hélt til síns heima af tennisvellinum með reiði sína kraumandi hið innra með sér og kom það svo niður á heimilislífinu, að þau hjónin skildu um skeið. EÍKÍnkonan heitir Patty McGuire, nú Conn- ors, og er fyrrum Piayboy-kan- ina ok sem slík eitt af helstu eft- irlætum HuKhes Kumla Hefner. Connors Kerðist (ílaumKosi samhliða tennisferlinum í kjöl- farið á skilnaðinum, en það gat ekki Kengið fj] ]en(ídar, Jimm.v tók si)í saman í andlitinu og samband þeirra Patty reyndist á svo sterkum stoðum að þau tóku saman á ný. Svo áttu þau auðvit- að soninn Brett, sem nú er 5 ára Kamall. Það hefur ekki komist hnífsblað á milli þeirra skötu- hjúa síðan ok í desemberlok var Patty lö((ð á fæðinKarheimili þar sem hún fæddi þeim hjónum annað barnið, litla dömu sem verður skýrð Aubree Leinh. Stjörnurnar taka sér ýmislegt fyrir hendur eins og dæmin sanna, þeim býðst að sanka sam- an aukatekjum með því að koma fram í auglýsingum fyrir hitt og þetta og margar þeirra vilja ólmar vera með í slíku. Margar mala ekki síður gull á því og svo er lifað hátt eða skynsamlega, nema að hvort tveggja sé. Ætla má að lesendur þekki piltinn til vinstri á myndinni, það er enginn annar en John McEnroe sem er að auglýsa Kramer-gítara. Pilturinn til hægri er þekktur einnig, en trú- lega í mun þrengri hóp og ekki er víst að einu sinni allir í þeirri grúppu kannist strax við pilt, þvi hann hefur skyndilega tekið mikl- um stakkaskiptum. Þetta er Eddy Van Halen gítarleikari þunga- rokksveitarinnar Van Halen og að ýmsra áliti einn af fremstu gítar- leikurum heims. Hann brosir mót linsunni þrumubreitt, enda ný- klipptur og strokinn ... Ljóamynd/Ljósmyndast. Þóris Fimm ættliðir Þessir fimm ættliðir sem sjá má á myndinni, allt kvenfólk, hittust fyrir nokkru og var þá myndin tekin. Flestar þeirra eru búsettar í Skaftafellssýslu. í efri röðinni til vinstri er Sigríður Guðmundsdóttir, amma yngsta barnsins, 37 ára, og dóttir hennar við hliðina, Sigurbjörg Kristín Óskarsdóttir, 19 ára. 1 neðri röð til vinstri er Kristín Grímsdóttir, langalangamman, 74 ára, þá yngsta manneskjan, Sigríður Inga Rúnarsdóttir, 2 ára gömul, og að lokum heldur langamman, Ingunn Ragna Sæmundsdóttir, 53 ára, á henni. Jay 1 „Bucks Fizz“ með heila- skaða? Söngkonan Jay Ast- on, einn af meðlimum „Bucks Fizz“-kvartettsins sem sigraði í sönglagakeppni sjónvarpsstöðva Evr- ópu fyrir nokkrum árum, óttast að hún hafi hlotið var- anlegan heilaskaða er hún lenti í alvarlegu bílslysi á dögunum ásamt félögum sínum í sveitinni. Læknar hennar, vinir og vanda- menn bera einnig kvíð- boga, því Jay, sem fékk mikið höfuðhögg, bæði sér illa síðan, heyrir illa og á erfitt um mál. Er ljóst að rætist ekki úr á næstunni verði að gegnumlýsa heila hennar og grafast fyrir um meinið. í fyrstu héldu læknar að hún hefði sloppið með skrámur, en tveimur dög- um eftir óhappið var hún lögð í sjúkrahús með geysilegan höfuðverk sem hefur ekki rénað fram á þenn- an dag. Hún dvelst nú á hvíldarheimili á eyj- unni Jersey og bíður þess sem koma skal. Starfsfólk heimilisins segir hana afar dapra, enda þjáist hún mikið auk þess sem hún veit ekki hvort hún fái nokkru sinni heilsuna aftur og hvort og hvenær hún geti sungið á ný ...

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.