Morgunblaðið - 29.03.1985, Qupperneq 1
64 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
74. tbl. 72. árg. FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Brak úr Bervíkinni
MorgunblaAið/Priftþjófur
í gær var haldið áfram leit að skipverjunum af Bervík SH 43 við norðanvert Snæfellsnes. Leitin var árangurslaus. Á myndinni eru þrír leitarmanna við
brak sem rak á land á Rifi í gær. Tveir þeirra, Sigurlaugur Egilsson, sen er lengst til vinstri á myndinni, og Þorgrímur Benjamínsson, í miðið, voru í
mörg ár skipverjar á Bervíkinni og sögðu þeir að þetta brak væri úr bátnum, m.a. aftasti lestarhlerinn. Lengst til hægri er Guðmundur, sonur
1‘orgríms._______________________________________________ Sjá fréttir á baksíðu og bls. 2.
Herskáir yerkfallsmenn í Kaupmannahöfn:
Reyndu að stöðva fund
danska þjóðþingsins
Kaupmannahöfn, 28. mars. Frá AP og Ib Björnbak, fréttaritara Morgunbladsins.
KALLA varð út um eitt þúsund lögreglumenn í morgun til að fjarlægja
mótmælendur, sem settu upp vegartálma tii að hindra þingmenn og ríkis-
stjóm Danmerkur við að komast á þingfund í Kristjánsborgarhöll í Kaup-
mannahöfn. Þar er verið að ræða stjórnarfrumvarp til laga um stöðvun hinna
víðtæku verkfalla í landinu, sem nú hafa staðið í fimm daga.
Harðar
árásir
íraka
Níconíu, 28. mara. AP.
ÍRAKAR gerðu í dag loftárásir á
a.m.k. fjórar borgir í íran, tvær
herbúðir og tvö olíuflutningaskip á
Persaflóa. í nótt gerðu þeir loft-
árás á Teheran og segja Iranir að
þar hafí 16 óbreyttir borgarar fall-
ið og 199 særst.
íranir hafa staðfest árásirnar
í dag og segja að þær hafi leitt
til dauða 37 manna, en 76 hafi
særst.
Saddam Hussein, forseti Ir-
aks, sagði á útifundi í Bagdad í
dag, að írakar mundu halda
áfram árásum sínum langt inn í
íran, í því skyni að binda endi á
styrjöld þjóðanna.
Loftárásir íraka, sem stað-
festar hafa verið, voru gerðar á
borgirnar Ilam, Salah Abad, Is-
fahan og Tabriz, og herbúðir í
borgunum Baneh og Merawan.
Að sögn fraka voru olíuskipin,
sem þeir réðust á, á siglingu
skammt frá Kharg-eyju, aðal
olíuútflutningshöfn írana. Ekki
hefur fengist staðfesting óháðra
aðila á þessum fréttum.
í gær skutu íranir flugskeyti
á vesturhluta Bagdad og varð
þar gífurleg sprenging. Sjónar-
vottar segja að það hafi komið
niður nærri tveimur skólum og
biðstöð strætisvagns og valdið
miklum skemmdum. Er talið að
mörg hundruð manns hafi fallið
og særst.
Samkomulag í Brussel:
Spánn og
Portúgal
íEB
Brvmel, 28. mn. AP.
SEINT í kvöld náðu utanríkisráð-
herrar ríkja Evrópubandalagsins,
sem setið hafa á fundi í Brussel,
samkomulagi um skilmála fyrir að-
ild Portúgala og Spánverja að
bandalaginu.
Roland Dumas, utanríkisráð-
herra Frakklands, sagði frétta-
mönnum að skilmálar þessir yrðu
tafarlaust bornir undir stjórnvöld
á Spáni og í Portúgal.
„Svo virðist sem erfiðleikar
okkar hafi verið yfirstignir," sagði
Dumas. Hann sagði að enn væri
ágreiningur um fáein „tæknileg
úrlausnarefni", en það ætti ekki
að koma í veg fyrir að endanlegt
samkomulag tækist.
Dumas kvaðst eiga von á því að
Spánverjar og Portúgalar féllust á
skilmálana og gætu orðið aðilar að
Evrópubandalaginu frá 1. januar
á næsta ári.
Mótmælendur höfðu að engu
ákvæði í stjórnarskrá Danmerkur,
sem segir það landráð að reyna að
skerða frelsi og öryggi þing-
manna. Samkvæmt hegningarlög-
um er unnt að dæma menn í allt
að sextán ára fangelsi fyrir slíkt
athæfi.
Lögreglunni tókst fljótlega að
koma Poul Schliither, forsætis-
ráðherra, i gegnum vegartálmana
og mótmælendahópinn, en aðrir
ráðherrar og þingmenn urðu að
bíða drjúga stund meðan lögregl-
an athafnaði sig. Seinkaði fyrstu
umræðu um stjórnarfrumvarpið
af þessum sökum um tvær klukku-
stundir.
Ekki er vitað til þess að neinn
hafi slasast alvarlega í stymping-
unum í morgun, sem áttu sér stað
við þinghúsið sjálft og á brúm og
götum, sem að því liggja. Mótmæl-
endur, sem einkum voru ungt fólk,
veltu einni lögreglubifreið, og voru
nokkrir þeirra teknir höndum.
Naumur þingmeirihluti er fyrir
stjórnarfrumvarpinu um stöðvun
verkfallanna, sem ná til 320.000
launþega, en margir herskáir
verkfallsmenn og nokkrir verka-
lýðsforingjar hafa hvatt til þess
að lögin verði virt að vettugi. For-
ysta Alþýðusambands Danmerkur
segir fyrirætlan ríkisstjórnarinn-
ar mestu árás á verkalýðshreyf-
ingu landsins síðan á fjórða ára-
tugnum, en kveðst samt ætla að
virða samþykkt þjóðþingsins.
Stjórnarfrumvarpið felur í sér
að laun hækka um 2% og vinnu-
vikan verður stytt um eina
klukkustund, en Alþýðusamband-
ið hefur krafist mun meiri launa-
hækkunar og styttingu vinnuvik-
unnar um fimm stundir.
Gautaborg:
Leitað að
kafbáti
Stokkhólmi, 28. mara AP.
S/ENSKI sjóherinn hóf á sunnudag
leit að erlendum kafbát í höfninni í
Gautaborg, að því er sjónvarpiö í
Stokkhólmi greindi frá í kvöld.
Talsmenn sjóhersins hafa stað-
fest fréttina, en segja að leitinni
hafi verið hætt í gær.
Leitin var hafin eftir að tveir
| lögreglumenn töldu sig sjá ókenni-
j legan, dökkleitan hlut á siglingu
I undir brú i höfninni.
AP/Símamynd
HERSKÁIR verkfallsmenn í Kaupmannahöfn veltu lögreghibifreið i gærmorgun. þegar þeir reyndu að koma í veg
fyrir að danska þingið gæti komiö saman til að ræða stjórnarfrumvarp um bann við verkfalli 320 þúsund launþega.
sem staðið hefur í fimir daga.