Morgunblaðið - 29.03.1985, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1985
# ábyrgö
MICROMA)
er framtíðarúrið þitt j
- því getur þú treyst. |
Þetta er aöeins hluti |
af úrvalinu.
VISA
EUROCARD
FÍMNCH MICHELSEN I
URSMÍÐAMEIS7ARI
LAUGAVEGl 39 SÍMI 28355
Veöur
víða um heim
Lœgtt Hmt
Akureyri +8 snjók.
Amsterdam 1 S •kýiaó
Aþena 13 21 heióskírt
Barcekma 13 lóttsk.
Berlín 0 5 skýjaó
BrUssel +3 7 heióskírt
Chtcago 13 21 rigning
Dubiín 3 8 skýiaó
Feneyjar 11 rignlng
Frankturt 0 10 rigning
Genf 5 12 rigning
»«-«-!—t-: rwllinKl 1 2 skýjaó
Hong Kong 23 25 skýjaó
Jerúsalem 8 18 skýiaó
Kaupm.hötn +1 4 skýjaó
Las Palmas 20 alskýjaó
Lissabon 10 18 skýiaó
London 1 8 skýjaó
Los Angetes 10 18 heióskirt
Luxemborg 3 snjóól
Mataga 17 lóttsk.
Mmltnrr ■ PNaiiorca 13 atskýjaó
■Hisnii Miami 21 22 heióskírt
Mrnntraal Moiiireai 4 10 •kýjsö
Moakva 1 3 skýjaó
New York • 24 hefóskírt
Osló +5 4 heióskírt
Paría 2 7 hajft -L|rt nelOeRlii
Peking 3 13 moldrok
Reyfclavfk -«8 WttSKi
Réo do Janeiro 19 38 hoéótklrt
Rómaborg 3 20 heióakirt
Stokkhólmur +1 1 skýiaó
Sydney 17 24 heióskirt
Tókýó 6 11 skýjaó
Vínarborg S 14 S—tA-t-f-l iwlOSKjri
bórsMfn +5 lóttsk.
Hreinsanir í Sovétríkjunum:
900 menn reknir eða
færðir til í starfi
Moskvn, 28. marz. AP.
BLAÐ sovézka kommúnistanokks-
ins, Pravda, segir frá því í dag, að
rúmlega 900 embsttismenn og leið-
togar í héraðinu Perm í Úralfjöllum
hafi ýmist verið sagt upp störfum
eða látnir í önnur störf í hreinsunum
sl. tvö ár.
Þetta kom fram í frásögn blaðs-
ins af nýafstöðnum fundi flokks-
ins í Perm, í kjölfar áskorana
Mikhails S. Gorbachevs um auk-
inn aga og viðvarana til spilltra og
sjálfumglaðra embættismanna.
Segir Pravda að 356 menn hafi
verið reknir úr starfi en aðrir
færðir til.
Þá sagði hin opinbera frétta-
stofa, Tass, að formaður kommún-
istaflokksins í borginni Mary, sem
er austur af Ashkabad í Túrkmen-
istan, hafi verið settur af í gær. Er
hann annar flokksformaðurinn,
sem settur er af á rúmri viku.
Kommúnistaflokkur Túrkmenist-
an er einn 5 flokka i 15 lýðveldum
Sovétríkjanna, sem haldið hefur
miðstjórnarfund eftir að Gorbach-
ev varð leiðtogi sovézka kommún-
istaflokksins.
19 syertingjar felldir í S-Afríku:
Lögreglan segir skot-
ið úr sjálfsvörn
JótuMnrbori, 28. nura. AP.
Lögreglumaður, sem var í hópi
lögreglumanna, sem skutu á hóp
svartra í síðustu viku, með þeim
afleiðingum að 19 þeirra féllu, sagði
í dag að menn hans hefðu verið
Lengsti fundur
Genfarviðræðum
Geaf, 28. nn. AP.
Samningamenn Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna áttu fjögurra stunda
fund um meðaldræg kjarnorkuvopn
í morgun, og er það lengst samn-
ingafundur aðila í þessari lotu.
Hefur samninganefndunum ver-
ið skipt í brennt og undirnefndirn-
ar fjallaö um afmörkuð svið af-
vopnunar. Hafa þær hver um sig
haldið fundi í vikunni til undir-
búnings fundum stóru samninga-
nefndarinnar.
Aðilar hafa gert samkomulag
um fréttabann af viðræðunum.
Greindi stórveldin tvö verulega á
um meðaldrægar og langdrægar
kjarnaflaugar þegar upp úr samn-
ingaviðræðum slitnaði 1983.
Kenneth Adelman, forstöðumaður
stofnunar sem fjallar um tak-
mörkun kjarnorkuvopna og af-
vopnun, sagði í gærkvöldi að af-
staða Sovétmanna væri óbreytt
frá fyrri viðræðum, og kynni það
að leiða til þess að enginn árangur
yrði af tilraunum til að koma í
kring stórfelldri fækkun kjarna-
vopna.
umkringdir af stórum hópi sem
hrópaði að þeim langaði til að drepa
hvíta menn.
„Við óttuðumst um líf okkar,"
tjáði lögreglumaðurinn aæsta-
réttardómara, sem rannsakar at-
burðinn í hverfi svartra Langa
21. marz. Þar hafa óeirðir verið
daglegt brauð frá því 19-menn-
ngarnir féllu fyrir hendi iög-
reglumanna.
Lögreglumaðurinn sagði að um
4.000 svertingjar hefðu neitað
skipunum lögreglu um að dreifa
sér. Var þá skotið viðvörunar-
skotum upp í loft, en án árangurs.
Hópurinn hefði dregið að úr »11-
um áttum og kastað grjóti er
hann nálgaðist brynvarða bifreið
lögreglumannanna, hrópandi að i
dag yrði hvítir menn í borginni
vegnir. Sagði lögreglumaðurinn
að ekki hefði verið um annað að
ræða en hefja skothríð í sjálfs-
vörn, því ella hefði hópurinn yfir-
bugað lögreglumennina og drepið
þá.
Ætlar Gorbachev að auka
hernaðinn gegn Afgönum?
Á FUNDI þeirra Mikhail Gorba-
chevs, nýkjörins leiðtoga Sovét-
manna, og Zia ul-Haq, Pakistans-
forseta, sem þeir áttu með sér að
lokinni útför Chernenkos, ræddu
þeir um samskipti þjóðanna og
ekki síst um stríðið í Afganistan.
Gorbacbev var ekkert að skera
utan af því við Zia, boðskapur hans
var í stuttu máli sá, að ef Pakistan-
ar hættu ekki allri aðstoð við
skæruliða myndu þeir verða látnir
finna fyrír því ,4 mjög alvarlegan
og afdrifaríkan hátt“.
Bandarískir sérfræðingar um
sovésk málefni taka þessi skila-
boð Gorbachevs mjög alvarlega
þótt þá greini nokkuð á um hvað
búi raunverulega að baki. Ein
kenningin er t.d. sú, að Gorba-
chev sé með þessu að koma sér f
mjúkinn hjá hernum meðan
hann er að treysta sig í sessi, en
hún stenst ekki nema hann ætli
að fylgja orðum sínum eftir og
auka stríðsreksturinn í Afgan-
istan. Augljóst er þó af öllu,
hvað sem þessum vangaveltum
líður, að stríðið i Afganistan
veldur Sovétmönnum æ meiri
áhyggjum og ekki síst herfor-
ingjunum enda hefur það staðið
brátt í sex ár eða lengur en
þátttaka Sovétmanna í síðari
heimsstyrjöld.
Bandaríkjamenn sjá Pakistan-
stjórn fyrir mikilli hernaðar-
aðstoð gegn óbeinum stuðningi
hennar við skæruliða í Afganist-
an og tilraunir Sovétmanna til
að þjarma að Pakistönum væru
því bein ögrun við stefnu Banda-
ríkjastjórnar og þingsins, sem er
miklu ákveðnara í stuðningi sín-
um við frelsisbaráttu afgönsku
þjóðarinnar en Reagan, forseti,
sjálfur. Sýndi það sig best þegar
forsetinn fór fram á 100 milljóna
dollara aðstoð við skæruliða en
þá tvöfaldaði þingið þá upphæð.
Að sumu leyti liggur kostnað-
ur Sovétmanna af stríðinu í Afg-
anistan í augum uppi en að öðru
leyti ekki. Augljóst er t.d., að
þeir hafa orðið fyrir miklu
mannfalli, gríðarlegu hergagna-
tjóni og fjárausturinn er alvar-
legur baggi á efnahagslffinu.
Minni athygli hafa hins vegar
vakið áhrifin, sem stríðið er far-
ið að hafa á almenning í Sovét-
ríkjunum.
Sovéskir fjölmiðlar hafa
lengstum þagað þunnu hljóði um
stríðið í Afganistan en á þessu
hefur nú orðið nokkur breyting.
Greinilegt er, að fjölmiðlum hef-
ur verið skipað að taka pínulítið
tillit til þess, að sovéskur al-
menningur veit nú, að það geisar
styrjöld í Afganistan. Ekki svo
að skilja, að fólki sé sagður
sannleikurinn. Opinberlega er
aldrei sagt hve fjölmennt herlið
er í Afganistan, hvernig það er
búið vopnum eða hver árangur-
inn sé af nærri sex ára stans-
lausri styrjöld. Áður voru frá-
sagnirnar aðallega um það
hvaða hermaður væri fljótastur
að smyrja vopnin eða um dag-
lega lífið í herbúðabakaríinu en
nú fer meira fyrir fréttum af
hetjulegri framgöngu og tilvís-
unum til „Föðurlandsstríðsins
mikla" (heimsstyrjaldarinnar
síðari).
Ástæðan fyrir þessu er sú, að
jafnvel í lokuðu þjóðfélagi eins
og Sovétríkin eru, er ekki hægt
að þegja í hel afleiðingarnar af
striðinu, gifurlegt mannfall og
sára menn og örkumla, sem
sums staðar eru farnir að setja
sinn svip á mannlffið í Sovétrikj-
unum. Fyrirsagnir blaðanna á
fréttum frá Afganistan eru yfir-
leitt aðeins eitt orð, t.d. „Hug-
rekki“, „Trúmennska" eða
„Skyldurækni", og stfllinn svo
barnalega rómantiskur, að band-
ariskir sérfræðingar um þessi
efni eru farnir að kalla fréttirn-
ar „Ævintýri ívans í Afganist-
an“. Þessi fréttamennska sýnir
þó ljóslega, að yfirvöldin telja
sig þurfa að hafa nokkrar
óhyggjur af almenningsálitinu.
Þrátt fyrir þetta gera yfir-
völdin það, sem þau geta, til að
fela fyrir fólki hernaðinn gegn
Afgönum. Hermenn, sem sendir
eru heim frá Afganistan, eru
fyrst sendir til afskekktra staða
í landinu þar sem litil hætta er
á, að þeir hitti fyrir menntað
fólk og upplýst, og ekki er
minnst á Afganistan þegar skýrt
er frá dauða hermanns. Hinir
föllnu fá allir sömu eftirmælin:
„Lést við alþjóðleg skyldustörf í
þágu sósíalismans.“ Ættingjar
þessara hermanna verða að
sverja þess eið að segja aldrei
frá því, að þeir hafi fallið í Afg-
anistan og varðar refsingu ef út
af er brugðið. örkumla mönnum
og lömuðum fjölgar hins vegar
stöðugt og þögull vitnisburður
þeirra fer ekki framhjá neinum.
Það á eftir að koma á daginn
hvaða brögðum Gorbachev
byggst beita Pakistani en sér-
fræðingar um sovésk málefni
eru sammála um, að opinber um-
fjöllun um Afganistan í Sovét-
ríkjunum bendi ekki til, að
Rauði herinn sé á förum þaðan,
hvað sem líður öllu hjali um
frjálslyndi foringjans.
H8 (Heimild: lnternalioul HeraM Tribnne)