Morgunblaðið - 29.03.1985, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1985
Romanov viðurkennir
„réttmæti“ ungversku
stjórnarstefnunnar
Qyenjulegt skilnaðarmál:
Ráðríkur steig á
tær konu sinnar
Lundúnum, 28. mnrn. AP.
TÆPLEGA fimmtug kona fékk í dag skilnað frá manni sínum á óvenju-
legum forsendum: aö hann væri svo mikil frekja og svo ráöríkur. Démarinn,
Trevor Reeve, sagði að hjónaband ætti að vera félagsskapur þar sem báðir
aðilar réðu og ræddu málin en það gæti ekki verið slíkt ef annar aðilinn væri
með slíkan yfirgang að hinn fengi við ekkert ráðið.
Búdmpeut, Unfrerjalnndi, 28. mnrn. AP.
GRIGORI V. Romanov, fulltrúi í
stjórnmálanefnd sovéska kommún-
istaflokksins, hefur viðurkennt „rétt-
mæti“ ungversku stjórnarstefnunnar
og gefið í skyn, að Kremlverjar hafi
áhuga á að ganga í smiðju hjá Ung-
verjum og sækja þangað fyrirmynd
að efnahagsumbótum.
Romanov lét þessi orð falla, er
hann ávarpaði 13. þing kommún-
istaflokks Ungverjalands, sem nú
stendur yfir. Lagði hann áherslu á
náin efnahagstengsl Sovétríkjanna
og bandalagsríkja þeirra.
Romanov bar lof á efnahagsþró-
unina í Ungverjalandi og taldi
hana vísa öðrum Austur-Evrópu-
ríkjum veginn. „Ungverjaland hef-
ur byggt upp nýjan heim í náinni
samvinnu við Sovétríkin," sagði
Romanov. „Allt sem gert hefur ver-
ið sannar réttmæti þess, að við höf-
um ratað réttu leiðina."
Hinn nýi leiðtogi Sovétríkjanna,
Mikhail S. Gorbachev, er sagður
hafa áhuga á hægfara efnahags-
umbótum heima fyrir. Virðast
þessar athugasemdir Romanovs
einmitt hníga í þá sömu átt.
Grígori V. Romanov
Húsbóndinn, Khioghi Ahie, 59
ára, var vanur að tilkynna konu
sinni Pamelu hvað hann ætlaðist
fyrir í stað þess að ræða við hana
fyrst. Hann fluttist milli borga,
sagði upp vinnu Pamelu og skráði
hana í háskóla svo eitthvað sé
nefnt. Var konan aldrei spurð um
álit sitt eða vilja. Lögrfræðingur
Pamelu sagði að svo hefði yfir-
gangur Khioghi verið mikill, að ef
Pamela dirfðist að andmæla hon-
um dró hann hana út í horn og
stóð þar ofan á tám hennar þar til
hún baðst vægðar. Var þetta ekk-
ert grín þar sem karlinn er 102
kílógrömm.
Þau Khioghi og Pamela eru
bæði læknar og vel stæð. Þau eiga
tvö stálpuð börn og hafa búið í
Hornchurch sem er úthverfi
Lundúnaborgar.
Bangladesh:
Fimm fórust
í fellibyl
Dacea, Bangladeah, 28. mara. AP.
Á ÞRIÐJUDAG varð fellibylur fimm
manns að bana í strandhéraðinu Pir-
ojpur í suðurhluta landsins. Um 100
manns slösuðust og yfir 500 íbúðar-
hús skemmdust, að því er lögreglan
sagði í dag.
Stormsveipurinn kom inn yfir
landið um 350 km fyrir sunnan
höfuðborgina, Dacca.
Um 20 manns þurftu á sjúkra-
húsvist að halda.
Arthur Scargill í Moskvu:
Kolanámamenn unnu
glæsilegan sigur
Mooimi, 28. mira. AP.
ARTHUR Scargill, leiðtogi breskra kolanámamanna, sagði í viðtali, sem
birtist í sovésku dagblaði í dag, fimmtudag, að námamenn hefðu unnið
„glæsilegan sigur“ í verkfallinu, sem nýlega lauk.
„Markverðasti árangurinn í
þessari deilu var baráttan sjálf.
Hún var glæsilegur sigur," sagði
Scargill í viðtali við verkalýðs-
blaðið Trud.
„Á tólf mánaða tímabili urðu
mörg þúsund ungmenni, karlar
og konur, svo félagslega meðvit-
uð, að slíkt hefði virst óhugsandi
tveimur eða þremur árum fyrr,“
sagði Scargill.
„Þetta unga fólk vann af þol-
gæði og hugrekki. Ég er þess
fullviss, að það er efst á óskalist-
anum hjá Thatcher og stjórn
kolanámanna að loka fleiri nám-
um, en hitt er einnig víst, að við
höfum fullan hug á að koma í
veg fyrir það,“ hafði blaðið eftir
Scargill.
Breski námamannaleiðtoginn
kom til Moskvu á mánudag til
þess að sitja alþjóðlegan fund
námamanna, að hans eigin sögn.
Kvað hann fundinn haldinn til
undirbúnings alþjóðaráðstefnu
námamanna, sem fram fer í
Bretlandi síðar á þessu ári.
Arthur Scargill
Breskir fréttamenn hittu
Scargill á Moskvuflugvelli. Hann
neitaði að svara hvar og hversu
lengi hann ætlaði að vera í Sov-
étríkjunum. Einnig neitaði hann
að svara því, hve mikla fjárhags-
aðstoð námamannasambandið
hefði fengið frá Moskvu, meðan
á verkfallinu stóð.
{ viðtalinu við Trud þakkaði
Scargill Sovétmönnum og öðrum
námamönnum veittan stuðning.
Sovéskir fjölmiðlar fjölluðu
mikið um verkfallið, meðan það
stóð yfir, einkum aðgerðir lög-
reglunnar gegn verkfallsvörðum
og erfiðleika fjölskyldna verk-
fallsmanna.
Verkfallssagan var öll rifjuð
upp í 15 mínútna löngum sjón-
varpsþætti á mánudag og endur-
teknar fyrri staðhæfingar sov-
éskra fjölmiðla um sigur náma-
manna í verkfallinu.
Scargill sagði Trud, að náma-
menn hefðu einkum unnið
þrennt: Að stöðva frekari áætl-
anagerð um lokun náma; að
bjarga fimm námum sem átti að
fara að loka og í þriðja lagi hefði
það áunnist, að hlutlaus nefnd
hefði verið skipuð til að yfirfara
þegar gerða áætlun um lokun
náma.
(f HAGSTÆÐINNKAUP
0 LÆKKAÐ VÖRUVERÐ ^
flTilboðsverð á pústkerfum í Mazda og Volvo vegna hagstæðra innkaupa |J
Lækkun allt að 25% gegn staðgreiðslu fl
T.d. kostar pústkerfi í Volvo 142 og 242 kr. 3.600
Dmiðað við að keypt sé heilt sett M
Gæðavara úr álseruðu efni sem gefur 70%-80% betri endingu gegn ryði
o
0
D
0
p
D
P
T.D. KOSTAR PÚSTKERFI í
MAZDA 323 ÁRG. 77-80 KR. 3.538,- MAZDA 323 ÁRG. 81 -84
MAZDA 626 ÁRG. 78—82 KR. 3.800,- MAZDA 929 ÁRG. 73-78
MAZDA 929 ÁRG. 79—82 KR. 3.200,-
KR. 4.706,-
KR. 4.100,-
HVER BYÐUR BETUR?
D
D
P
D
D
D
Bílavörubú&in
FJÖÐRIN
Skeifunni 2
82944
Púströraverkstæói
83466