Morgunblaðið - 29.03.1985, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1985
fclk f
fréttum
iaonad/r " kó
"85. oru brir suuutrid
DÚKKULÍSURNAR
KOMNAR Á KREIK
AÐ NÝJU
„Við spilum það
sem við „fílumu og
svo er að sjá hvort
fólki líkar það“
Hljómsveitin Dúkkulísurnar
frá Egilsstöðum hefur verið
í hléi að undanförnu, en hefur nú
tekið upp þráðinn að nýju og eru
stelpurnar að æfa saman „nótt
sem nýtan dag“.
Blm. kíkti til þeirra í æf-
ingaskúrinn eitt kvöldið fyrir
nokkru til að spyrjast fyrir um
hvað væri í deiglunni hjá þeim.
— Það er nú ýmislegt að ger-
ast. Við byrjuðum að æfa saman
um jólin og svo er komið að það
er fullt að gera hjá okkur. Á
næstunni erum við að spila í
Grindavík, í Austurbæjarbíói, í
Hollywood og á fleiri stöðum.
Draumurinn er að gefa út
plötu fljótiega, það er reyndar
ekki bara draumur, við ætlum að
gefa út plötu. Við eigum til lög
núna á stóra plötu, en vantar þó
2 til 3 lög upp á.
— Hver semur lög og te*ta hjá
ykkur?
— Það gerum við sjálfar að
mestu leyti, en maður að nafni
Karl Erlingsson hefur einnig að-
stoðað okkur við það.
— Hvenær byrjuöuð þið að
spila saman?
— Við komum fyrst fram í
Atlavík árið ’83 í hljómsveita-
keppninni þar, en þá vorum við
búnar að spila dálítið saman og
koma fram lítilsháttar. En
hljómsveitakeppnin var í raun-
inni upphafið og þar lentum við í
öðru sæti.
— Hefur tónlist ykkar breyst
eitthvað?
— Það er kannski ekki hægt
að segja það, en við erum alltaf
að reyna að verða fjölbreyttari í
tónlistarvali og við erum auðvit-
að sífellt að fikra okkur áfram.
En við spilum það sem við „fíl-
um“ og svo er bara að sjá hvort
fólki líkar það eða ekki.
íslendingar með
sölusýningu í Færeyjum
Ifæreyska blaðinu Dimmalætting var þess get-
ið nýlega að íslendingar hygðu á söluherferð í
Færeyjum með fatnað og skó. Birtar eru myndir
í blaðinu frá sýningu er íslenskir framleiðendur
héldu á vörum sínum á Hótel Hafnia í Þórshöfn.
Þess er og getið að meira sé í vændum af slíku
í'Færeyjum og verði næsta sýning 15. apríl
næstkomandi á Hótel Borg þar sem
munu hafa „matmessu".
„Wham!“-dúettinn
vinsæll í Kína
„Wham.'“-dúettinn fer brátt í hljómleikaferðalag til
Kína og þá falla örugglega mörg vígi gegn „andlegri
mengun“ þar í landi. Kínverjar eru óðum að tileinka sér
vestræna dægurlagatónlist og hrífnastir eru þeir af
poppi af því tagi sem „Wham!“ flytur. Þeir eru minna
fyrir þunga rokkið. „Wham!“ eru sérstaklega vinsælir í
Klna og til marks um það eru til í Kína fjórar útgáfur af
nýjasta „bit“-lagi „Wham!“, „Careless Whisper“, í
flutningi kínverskra tónlistarmanna. Þeir George
Michael og Andrew Ridgely koma fram í Peking og
Canton og er fyrir löngu uppselt og komast færri að en
vilja ...
Meðlimir hljómsveitarinnar, sem eru kvenkyns ein-
göngu, eru frá vinstri: Harpa Þórðardóttir á hljómborði,
Guðbjörg Pálsdóttir á trommum, Erla Ingadóttir á
bassa, Gréta Sigurjóns á gítar, en auk þess semur hún
flesta texta fyrir hljómsveitina, og að lokum söngkonan
Erla Kagnarsdóttir.
Monrunblaftií/Friðþjófur
. ■' V: 1
J; ? f i.., ; ■•■' * ■-.
v • 1Æf Æ'
L f ý'&’ 4
V
§