Morgunblaðið - 29.03.1985, Síða 48
EURCKARD
V------- ---J
HIBOOJR I HBMSKEDJU
KEILUSALURINN
OPINN 10.00-02.00
FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Árangurslaus leit að
skipverjum af Bervík
I AI.I.AN gKrdag stóð yfir leit aö skipverjunum fimm af Bervík SH 43 frá
Ólafsvfk. Félagar úr björgunarsveitum Slysavarnarfélags íslands gengu fjör-
ur frá Ólafsvík vestur að Öndveröanesi. Þyrla Landhelgisgæslunnar og
varöskip komu í leitarsvæöiö. Leitin var árangurslaus. Leitað var fram í
myrkur og fyrirhugaö að hafa vakt á fjörum í nótt og hefja leit aö nýju í
birtingu í dag. Skipverjarnir af Bervík sem saknað er heita: Úlfar Kristjóns-
son, Freyr Hafþór Guömundsson, Sveinn Hlynur Þórsson, Steinn Jóhann
Randversson og Jóhann Óttar Úlfarsson.
(Jlfar Kristjónsson, skipstjóri
sem jafnframt er eigandi Bervík-
ur, er 43 ára aö aldri. Hann er
kvæntur og búsettur að Sandholti
44 í ólafsvík. Freyr Hafþór Guð-
mundsson, vélstjóri er 32 ára,
kvæntur og á tvö börn. Hann er til
heimilis að Hjallabrekku 7 í
Ólafsvík. Sveinn Hlynur Þórsson,
stýrimaður, er 28 ára, kvæntur og
á eitt barn. Hann er til heimilis að
Bæjartúni 13 í Ólafsvík. Steinn Jó-
hann Randversson, matsveinn, er
48 ára að aldri. Hann er kvæntur,
á fjögur uppkomin börn og er til
heimilis að Vallholti 11 i ólafsvík.
Jóhann Óttar Úlfarsson, háseti, er
19 ára, ókvæntur og er til heimilis
að Sandholti 44 í ólafsvík. Jóhann
Óttar er einkasonur Úlfars og þeir
Úlfar og Steinn Jóhann eru mág-
ar.
Aðstæður til leitar voru erfiðar
í gær, strekkingur og kuldi, og
gátu þyrlan og varðskipið lítið at-
hafnað sig vegna veðurs. Einnig
var stórgrýtisurðin í fjörunum
svelluð og erfið yfirferðar. í gær
rak meira brak sem er talið vera
úr Bervík, m.a. tvær lestarlúgur
og fiskikarfa. ólafsvíkur- og
Rifsbátar leituðu fram á nótt í
fyrrakvöld og kom fram hjá þeim
þúst á dýptarmælum, sem þeir
töldu geta verið flak Bérvíkur. Er
hún á 18 metra dýpi, á svipuðum
slóðum og björgunarbáturinn
fannst fyrr um kvöldið, um 0,7
mílum norðaustur af grjótgarðin-
um austast í Rifshöfn.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
mun fara til leitar í dag ef veður
leyfir og einnig fyrirhuga björg-
unarsveitarmenn að fara á slöngu-
bátum með fjörum ef aðstæður
leyfa.
Morgunblaöid/PriAhjöfur
Bátur á leió til Ólafsvíkur siglir fram hjá Rifi, á svipuöum slóöum og skipstjórar ÓlafsvikurbáU hafa lóöað á þúst á botninum sem þeir telja aö geti
verið flak Bervíkur SH 43. Fjær er innsiglingin til Rifshafnar og ofarlega til hægri á myndinni sést hiö nýja hús Hraöfrystihúss Hellissands hf. á Rifi.
Stálfélagið hf.:
Iðnaðarráðherra afturkallar
50 milljón króna ríkisábyrgð
FRAMTÍÐ Stálfélagsins hf. var ráöin á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun, þar
sem Sverrir Hermannsson iónaðarráðherra gerði tillögu um að frumvarp
ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð á 50 milljón króna láni í sjálfskuldar-
ábyrgó frá Norræna fjárfestingarbankanum til Stálfélagsins yrði afturkölluö.
tstæöurnar eru þær að sjóöir og banki iönaöarins hafa með öllu hafnaó
stálvölsunarverksmiðju sem frambærilegum kosti til fjárfestingar.
Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra sagði í samtali við blm.
Mbi. i gærkveldi að þessi ákvörðun
vær tekin á þeim grundvelli að
íönþróunarsjóður hefði með öllu
hatnaö þessu sem fýsilegum kosti,
og vær’ sú afstaða byggð á mjög
neikvæðum niðurstöðum úr at-
hugun dansks ráðgjafafyrirtækis.
„í framhaldi þessa hafnaði Iðn-
þróunarsjóður því að veita fyrir-
greiðslu þessu fyrirtæki/1 sagði
Sverrir, „og sömuleiðis hafnaði
Iðnaðarbankinn því að taka fyrir-
tækið í viðskipti. Þetta hefur þýtt
það að þeir hafa engin viðskipti
við banka fengið ennþá."
Sverrir sagði jafnframt: „Ég hef
sjálfur sannfærst um það, að stað-
an í þessum iðnaði hefur farið
versnandi og hann á mjög erfitt
uppdráttar hér í nágrannalóndum
okkar. Ég hef einnig kamist að
þeirri niðurstöðu að eins og sakir
standa get ég ekki samvisku minn-
ar vegna mælt með þvi að ríkið
gangi í ábyrgð gagnvart Norræna
fjárfestingarbankanum."
Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra var i gærkveldi spurður
hvort hann myndi verða við þeim
tilmælum iðnaðarráðherra að aft-
urkalla frumvarpið: „Iðnaðar-
ráðherra ræður alveg ferðinni í
þessu máli — þetta er hans mála-
flokkur. Ég flutti frumvarpið á
sínum tíma að hans.ósk, og ef það
j er hans ósk að það verði kallað
! aftur, þá verður það væntanlega
í gert“
Vandséð
hvað gæti
komið í stað
bókarinnar
— segir Leó Löve
„ÞETTA hefur gengiö mjög vel.
Hér hafa margir komið og gert
góð kaup, enda búumst viö viö
góöri aðsókn um helgina," sagði
Anna Einarsdóttir, forstööumaður
bókamarkaðar Félags islenskra
bókaútgefenda í samtali viö blm.
Mbl. í gær.
Brezka tímaritið Economist
hefur skýrt frá því aö bóksala í
Englandi hafi aukizt um 5% á
síðasta ári. „Þaö er almennt mál
manna að síðasta ár hafi verið
gott bókaár og mun betra en ár-
in á undan,“ sagði Leó Löve,
varaformaður Félags íslenskra
bókaútgefenda, er blm. Mbl.
spurði hann um þróun bóksölu
hér á landi. „Ég held að það sé
ástæðulaust að óttast um fram-
tíð bókarinnar nú og það sé
einnig reynslan erlendis. Það
hafi verið nýjabrumið af ann-
arri fjölmiðlun sem hafi valdið
þessari lægð, sem kom í bóksöl-
una. Enda vandséð hvað gæti
hugsanlega komið i stað bókar-
innar," sagði Leó.
Sjá frásögn af bókamark-
aónum á bls. 14—15.
Tilboð frá
sjómönnum
SJÓMENN á ísafiröi gerðu útvegs-
mönnum tilboð um miðjan dag í gær
og tóku útvegsmenn sér frest þang-
að til í dag til að íhuga tilboðió áður
en þeir svöruðu.
Talið var hugsanlegt að tilboðið
gæti komið skrið á samningavið-
ræður f kjaradeilu sem félög þess-
ara aðila hafa átt f, en verkfal! á
togurum ísfirðinga hefur staðið
yfir frá 21. mars og landróðrar-
bátar stöðvast á miðnætti 31.
mars.
Gert er ráð fyrir að rfkissátta-
semjari fari til Isafjarðar í dag ef
veður leyfir.
Leiguflug Balair milli
Ziirich og Keflavíkur:
Leyfið veitt
15. mars
SVISSNESKA flugfélagið Balair,
dótturfyrirtæki Swissair, hefur
fengið leyfi til leiguflugs einu
sinni í viku milli Ziirich og Kefla-
víkur yflr sumarmánuðina.
Samkvæmt upplýsingum
sem fengjust hjá Balair í Sviss
veitti Flugmálastjórn íslands
leyfið 15. mars síðastliðinn og
hefði það fengist þar sem ís-
lensk flugfélög hafa haft leyfi
til að fljúga leiguflug til Sviss
og islenskt flugfélag hefur
leyfi til að fljúga áætlunarflug
til Zúrich.
Sjá ennfremur frétt á bls. 26.