Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRlL 1985
B 3
Fri leiksýningu í einum skóla borgarinnar.
Karnivalhátíð í
Laugardalshöllinni
— síðasta vetrardag og sumardaginn fyrsta
FYRIRHUGAÐ er að halda Karni-
valhátíð í Laugardalshöll síðasta
vetrardag og sumardaginn fyrsta.
Eins og venja er á slíkum hátíðum
verður leitast við að halda uppi lífi
og fjöri og eru börn og unglingar í
grunnskólum Reykjavíkur að sfa
þessa dagana margskonar
skemmtiatriði.
Karnivalið er lokahátíð félags-
og tómstundastarfs í grunnskól-
um Reykjavíkur og haldið í til-
efni af ári æskunnar. Á hátíð-
inni verða hin hefðbundnu tóm-
stundastörf skólanna í hávegum
höfð. Má þar nefna m.a. borð-
tennis, ljósmyndakeppni, tölvu-
og forritakeppni, myndbanda-
stúdíó, leir, leður, tágar, leikrit,
dans- og tískusýningar og önnur
skemmtiatriði, sem hafa verið
æfð fyrir árshátíðir i skólunum.
Á miðvikudagskvöldinu verð-
ur hljómsveitum gefinn kostur á
að spila á aðalsviði Laugardals-
hallarinnar. 1 kjallarasal verður
diskótek i gangi allan tímann.
Auk þess eru nemendur að und-
irbúa karnivalstemmninguna
með því að æfa sig í að ganga á
stultum eða að útbúa sér gervi
trúða, púka, álfa, trölla, töfra-
manna og annað þess háttar.
Þess er vænst að sem flestir
nemendur verði þátttakendur í
hátíðahöldunum og komi karni-
valskreyttir. Sé þess ekki kostur
verður hægt að kaupa sér efni í
grímu eða hatt og útbúa á staðn-
um eða fara i förðunardeildina
og fá förðun við hæfi.
Á sumardaginn fyrsta er þess
vænst að foreldrar líti inn i
Höllina ásamt börnum sínum og
taki þátt i lokahátíð félags- og
tómstundastarfs grunnskóla
Reykjavíkur.
Skemmtikraftar á árahátíð í Hagaskóla.
esið
reglulega af
ölmm
fjöldanum!
ÞARFT PÚ AÐSTOÐ TÆKMITEIKMARA?
Viö getum teiknaö fyrir þig.
Einu sinni í viku, einu sinni í mánuöi,
oftar eöa sjaldnar.
Einfaldlega þegar hentar þér og þínum verkefnum.
Og viö getum líka séö um vélritunina.
Þægilegt, ekki satt?
TÆKI1ITEIKMARIMM
Langholtsvegi 17, s. 687674.