Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985 B 13 Hann lauk guðfræðiprófi með glæsibrag vorið 1946 og vígðist til Mælifells þá um sumarið. Hann sat þann merkisstað í rúma tvo áratugi, en árið 1968 var honum veitt Laugalandsprestakall í Eyja- firði, þegar séra Benjamín, bróðir hans, lét af embætti, og því hefir hann þjónað síðan. Þar munu kirkjur flestar í einu prestakalli á íslandi eða 6 talsins. Nú í vetur Félagsmálaskóli Alþýðu: Námskeið um blaðamennsku og útgáfustarf í Ölfusborgum MENNINGAR- og fræðslusamband alþýðu hefur ákveðið að efna til námskeiðs í útgáfu blaða og frétta- bréfa dagana 5.—10. maí í Ölfus- borgum. Námskeiðið verður sett klukkan 20.30, 5. maí. Þetta er fyrsta sérnámskeiðið á vegum Pélagsmálaskóla alþýðu, en stjórn MFA ákvað á sl. ári að efna til styttri námskeiða í ýms- um hagnýtum greinum auk þess náms sem boðið er upp á á þremur önnum skólans. Námskeiðið er fyrst og fremst vinnunámskeið þar sem þátttak- endum er leiðbeint við gerð blaða og fréttabréfa með sérstakri áherslu á hagnýtt starf á þessum vettvangi innan verkalýðshreyf- ingarinnar. Námskeiðið er opið öllum aðild- arfélögum ASl, en sérstaklega hentugt þeim, sem hafa með hönd- um útgáfu af einhverju tagi. Auk þess er áhugafólk um útgáfustarf velkomið á námskeiðið. Há- marksfjöldi er tuttugu þátttak- endur. Meðal efnis verður útlitsteikn- un, leturgerðir, gerð fyrirsagna, myndmál, þróun blaða, undirbún- ingur útgáfu og ritstjórnarstefna, viðtöl, fréttir, auglýsingra og fleira. Þá munu þátttakendur vinna ýmis verkefni á námskeið- inu. Afmæliskveðja: Sr. Bjartmar Kristjáns- son prófastur 70 ára Fornvinur minn, séra Bjartmar Kristjánsson frá Ytritjörnum í Öngulstaðahreppi, prófastur Ey- firðinga, er sjötugur í dag. Ég á honum margt að þakka, bæði frá nýrri tíð og gamlli, og langar því að senda honum litla kveðju í til- efni dagsins. Þó að ég hafi verið samtíða þeim bræðrum, séra Bjartmari og Valgarði, síðar borgarfógeta, í MA nokkur ár — þeir voru ári á undan mér í skóla — tókst ekki með okkur þremur verulegur kunn- ingsskapur, fyrr en við urðum nágrannar á Nýja-Garði á há- skólaárunum. Sá kunningsskapur óx fljótlega í gróna vináttu, sem aldrei hefir dofnað eða rofnað síð- an. Sjálfvirka kaffikannan þeirra bræðra, sem þá var nýjung og mikið furðuverk, mallaði og bull- aði í gluggakistunni og lagaði þann svarta drykk, sem vætti þurra góma okkar þriggja, meðan við skeggræddum og kappræddum ýmisleg áhugamál á löngum vetr- arkvöldum. Þau mál voru af ýmsu tagi, allt frá stjórnmálum upp í sköpun alheimsins, en lengst var dvalið við guðfræðileg efni. Þó að áhuga- og þekkingarsvið hins sjö- tuga vinar vors standi og hafi jafnan staðið mörgum og traust- um fótum, hafa trúmál og rann- sókn ritninganna jafnan legið hjarta hans næst. Þar verður heldur ekki komið að tómum kof- unum. Þessar kvöldumræður okkar þriggja og þátttaka okkar í starfi félagsins Bræðralags fyrir fjórum áratugum urðu mér til mikillar og varanlegrar uppbygg- ingar og hafa mótað drjúgum af- stöðu mína til ýmissa mikilvægra málefna. Þar réð réttsýni, skarp- skyggni og frjálslyndi Bjartmars miklu. gerðist hann svo prófastur í Eyja- fjarðarprófastsdæmi. Gott á ís- lenska þjóðkirkjan að eiga svo vandaðan embættismann, réttvís- an boðanda orðsins og hispurs- lausan vin, sem til vamms segir, þegar honum þykir þess þurfa. Þar hefi ég ekki síst í huga bar- áttu hans gegn nýlegum fyrirmæl- um um breytingar á beygingu nafns höfundar kristinnar trúar. Þær breytingar virðast gersam- lega óþarfar og afar ósmekklegar, auk þess sem hin nýja beyging rýfur samhengið við rótgróna hefð og afskræmir marga fagra sálma, sem höfundar þeirra voru þó full- færir um að yrkja sómasamlega hjálparlaust og almenningur hefir talið sig kunna. Sama er að segja um marga ritningarstaði. Fyrr eða síðar hljóta þessi mistök að verða leiðrétt, svo að sálmaskáld- in, sem mörg hver eru löngu látin og fá engum vörnum við komið, njóti réttar síns og hinir breyttu textar særi ekki lengur málskyn fólks. Hvort sem séra Bjartmar beitir penna eða tungu, nær hann þeim kliði íslensks máls, sem knýr menn til að leggja við hlustir. Það er sem hann klappi bergið og fram streymi hreint vatn, tær lind. Hann beitir ekki stóryrðum eða gífuryrðum, sem fljótlega vilja missa mátt sinn og kaila á önnur sterkari í staðinn, heldur smekk- vísi og hnitmiðun i orðavali og orðaskipan. Hvert orð er á réttum stað í réttri merkingu, sem fremur styrkist en slævist við hófsemd- ina, sem í hana er lögð. Þess vegna er hann aldrei í þeirri hættu staddur, að ekki skiljist til fulls það, sem hann vildi sagt hafa. Efnið kafnar aldrei í orðskrúði né drukknar i orðaflaumi, heldur kemst til skila lifandi og rikt að kostum. Senn kemur vorið sunnan yfir fjöllin. Þá kvikna laukar og líf- grös, og byggðir Eyjafjarðar verða grænar aftur. Bláir hnjúkar standa í löngum röðum vörð um þaulræktaðar sveitir, þar sem fólkið unir og menningin dafnar. Við Ellen sendum vini okkar, séra Bjartmari, Hrefnu Magnúsdóttur, konu hans, og fjölskyldu þeirra einlægar blessunaróskir á heilla- degi og þökkum langa og trausta vináttu. Við vonum, að þau verði alltaf vafin yl og birtu vorsins í skjóli blárra fjalla. Ég kveð svo að sinni með orðum Eyvindar skálda- spillis: Góðu dægri verður sá gramur ef borinn, er sér getur slíkan sefa; hans aldar æ mun vera að góðu getið. Sverrir Páisson Ný Corolla - ný viðmiðun. Hin nýja Corolla 1300 er hönnuð til að vera fremst meðal jafningja og gæðaflokki ofar en verðið segir til um. Léttbyggð og sparneytin 1,3 lítra, 12 ventla vélin er kraftmikil, enda nýjasta framlag Toyota til betrumbóta — sumir segja byltingar — á bíl vélum. Aksturseiginleikar gerast vart betri. Framhjóladrif og 1. flokks fjöðrunar-og stýris búnaður skapa mikinn stöðugleika og rásfestu. Farþega-og farangursrýmið stenst allan samanburð hvað varðar nýtingu, þægindi og hagkvæmni. Þú getur treyst ToyotaCorolla-því ánægðum eigendum fjölgar stöðugt um allan heim.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.