Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 26
26 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985 fclk í fréttum „LA TRAVIATA“ Tveir félagar í heimsókn frá Riccione Þeir félagar Nerio og Maurizio frá Riccione á Ítalíu voru hér á ferð fyrir skömmu á vegum Samvinnuferða. ítalirnir reka veitingastað sem mikið er sóttur af íslendingum þar syðra, kallaður „La Traviata". Nerio og Maurizio hafa kom- ið hingað nokkrum sinnum áður og eru að sögn yfir sig hrifnir af landi og þjóð. í gegnum árin síðan landinn fór að leggja leið sína í sólina á Rimini/Riccione hafa þeir eignast marga góða vini sem þeir heimsóttu á ferð sinni víðsvegar um landið. Einn daginn lögðu þeir leið sína í bæinn og sprelluðu dálítið og það var einmitt þá sem Friðþjófur ljósmyndari tók þessa mynd af öðrum þeirra, þar sem hann staldraði við á Sælkeranum til að skemmta yngstu kynslóðinni. Eggert Þorleifsson, sem leikur eitt aðalhlutverkið í myndinni, sést hér og í baksýn má sjá Ólaf Þ. Harðar- son dósent. Capes heldur inn á nýjar keppnisbrautir Kúluvarparinn og kraftakarl- inn Geoff Capes er eigi ókunnur hér a landi, hann eldaði oft grátt silfur við Hrein okkar Halldórsson og höfðu þeir til skiptis betur. Capes er nú meira á svipuðum línum og Jón I’áll, ji.e.a.s. hann keppir í alls kyns kraftaþrautum i öllum móguleg- um löndum og stendur sig ekki síður vel i því. „Kg hef unnið til svo margra verðlauna í íþróttum að ég efast um að nokkur iþróttamaður hafi leikið það eftir mér fyrr eða síðar og ég efast um áð annar eins af- reksmaður og ég eigi eftir að koma fram á næstu árum. Þess vegna er ég kominn út i krafta- þrautirnar. Eftirlæti mitt er að keppa í skosku hálandaleikunum, reyna mig í gömlum og góðum skoskum íþróttagreinum, þær henta mér prýðilega." (’apes ræktar einnig páfagauka og á :i(K) st.vkki. Hann ajtlar að taka þát í fuglasýningu á næst- unni og ætlar sér og fuglum sínum stóra hluti þar, enda er keppn- isskapið rikt í Capes og hann ajtl- ar sér sigur í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Myndirnar sem þessuni pistli j fylgja segja að nokkru frá högum Capes. Hann er fráskilinn, en býr með vinkonu sinni sem hér sést, hinni indversku Kashi. Ilann á tvö börn, Lewis 13 ára sem flettir blöðum með pabba sínum á einni myndinni, en Iæwis kippir í kynið, hann skagar hátt í 2 metra, er jotunefldur og íþróttamaður af guðs náð. Capes segir: „Hann hef- ur ekki áhuga á öðru en að fara á diskótek og skaka sig þar enn sem komið er, samt er hann í fremstu röð i frjálsum íþróttum. Ilm leið og hann fær áhuga á íþróttum og fer að æfa þá nær hann langt.“ Capes á auk þess 10 ára dóttur sem býr hjá móður sinni. I^oks sést Capes í fullum skrúða á hálandaleikum, hann hefur er myndin var tekin nýlokið við að þeyta miklum trjábol fleiri metra . . .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.