Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985 Verkalýðsfélögin í Hafnarfirði: Rekstrarstöðvun BÚH felur enga úrlausn í sér — segir m.a. í ályktunum sem sendar hafa verið ríkisstjórninni og bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði EFTIRFARANDI álrkUnir hafa verið sendar ríkisstjórn Islands og bæjar- stjórn Hafnarfjarðar undirritaðar af fulltrúum Fulltrúaráðs verkalýðsfé- laganna í Hafnarfirði, Verkamannafé- lagsins Hlífar, Verkakvennafélagsins Framtíðarinnar, Sjómannafélags Hafnarfjarðar, Félags Vörubifreiða- eigenda, Félags verslunarmanna og Félags byggingariðnaðarmanna. Ályktun til ríkis- stjórnar íslands Með tilliti til þess hrikalega at- vinnuástands, sem skapast hefur vegna ákvörðunar bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um að loka Bæjarút- gerðinni, einu stærsta atvinnufyr- irtæki bæjarins, krefjast Fulltrúa- ráð verkalýðsfélaganna og stjórnir allra verkalýðsfélaganna í Hafnar- firði þess, að ríkisstjórn Islands taki mál þetta tafarlaust til sér- stakrar meðferðar. Verkalýðshreyfingin í Hafnar- firði telur, að hér hafi slíkt ábyrgð- arleysi ráðið málum, að ekki verði undan vikist að bæta úr. Við trúum því ekki, að fjár- hagsstaða fyrirtækisins sé slík um- fram önnur útgerðarfyrirtæki í landinu að rekstrarstöðvun hafi verið réttlætanleg. Verkalýðshreyf- ingin trúir því að farsælla hefði verið að grípa til sérstakra aðgerða varðandi skuldamálin miklu fyrr, svo að til rekstrarstöðvunar hefði ekki þurft að koma, enda felur rekstrarstöðvun enga úrlausn í sér. Verkalýðshreyfingin í Hafnar- firði treystir því að hæstvirt ríkis- stjórn grípi nú þegar til þeirra að- gerða er leiða muni til tafarlausrar starfsemi í fyrirtækinu á ný. Hjálagt fylgir ályktun um at- vinnumál Hafnfirðinga, sem neð- angreindir aðilar hafa sent bæjar- stjórn Hafnarfjarðar, en í ályktun- inni koma frekari skýringar fram. Ályktun til bæjar- stjórnar Hafnarfjarðar Hrikalegt atvinnuleysi tröllríður nú hafnfirsku atvinnulífi. Nú þessa dagana eru um 200 manns á at- vinnuleysisbótum og að auki hefur fjöldi launþega þurft að leita í ný störf, sem að verulegu leyti eru utan Hafnarfjarðar. Tala atvinnuleysisdaga á síðasta ári og það sem af er þessu sýnir að atvinnuleysi í Hafnarfirði er um 50% meira en landsmeðaltal. Afleiðingar þessa ástands koma æ betur í Ijós og er nú svo komið að fjölmörg heimili eru algerlega kom- in á vonarvöl og geta ekki staðið undir þeim greiðslum sem nauð- synlegar eru til framfæris. Atvinnuleysisbætur duga skammt, en þær nema nú um 2.800 krónum á viku auk rúmlega 100 króna á viku með barni. Ástæður þessa ástands má fyrst og fremst rekja til furðulegs ábyrgðarleysis ráðamanna bæjar- ins og einnig aðgerðaleysis stjórn- valda, eins og eftirfarandi dæmi sýna: Hæst ber ótímabæra og óskyn- samlega rekstrarstöðvun Bæjarút- gerðar Hafnarfjarðar, þar sem öllu starfsfóiki var sagt upp störfum frá og með 1. febrúar sl. alls nálægt 200 manns, en áður hafði starfsfólkið verið launalaust að mestu leyti sið- an í október. Vinnubrögð og málflutningur ráðamanna bæjarins i þessu máli hafa verið með slíkum eindæmum að varla á sér hliðstæðu. Bæjarútgerðin hefur átt við erf- iðleika að stríða eins og útgerð al- mennt vegna óhagstæðrar rekstr- arstöðu og erfiðrar skuldabyrði. Meirihluti bæjarstjórnar sam- þykkti vegna þessa að hætta rekstr- inum en fela hann nýju fyrirtæki, Útgerðarfélagi Hafnfirðinga hf. Reyndar skilja fáir á hvern hátt þessi ráðstöfun gæti bætt rekstr- arstöðu fyrirtækisins. Enn furðu- legri er þó sú ráðstöfun að leggja niður alla starfsemi um ótiltekinn tíma á meðan unnið væri að yfir- færslunni. Með þessari ráðstöfun eru niðurfelldir allir tekjumögu- leikar fyrirtækisins á sama tima sem fjármagnskostnaður hleðst upp og tekjur bæjarsjóðs í formi út- svara, aðstöðugjalda og tekna af þjónustufyrirtækjum við Bæjarút- gerðina falla niður. Það þætti lélegur búmaður til sveita, er sýndi geldu kýrnar ef hann ætlaði að selja mjólkurkýr sínar, en allt er hægt í Hafnarfirði. Þannig gelda bæjaryfirvöld mjólk- urkúna algerlega, áður en hún er Visa ferðatékka í Bandaríkjadollurum, sterlingspundum, frönskum frönkum og spönskum pesetum. Ferðatékka í vestur-þýskum mörkum frá Bank of America og ferðatékka í Bandaríkjadollurum frá American Express. VISA greiðslukort til afnota innanlands og utan. Verið velkomin í bankann. Starfsfólk gerir sitt ýtrasta til að veita skjóta og örugga þjónustu í öllum viðskiptum. BÚNAÐARBANKIÍSLANDS TRAUSTUR BANKI Ætlar þú til útlanda I sumar? Einn íslenskra banka býður Búnaðarbankinn Visa ferðatékka í portúgölskum escudos frá Banco Pinto & Sotto Mayor í Portúgal og ferðatékka í ítölskum lírum frá Banco di Roma. Við bjóðum einnig: Fyrir andlegan og líkamlegan styrk æfið boju-ryu Karate do Nokkur atriði varðandi þjálfun í karate • Afbragðs líkamsþjálfun, betri þjálfun t karate • Afbragös líkamsþjálfun, betra form, þrek, snerpa, liöleiki • Örugg sjálfsvörn, aukið sjálfstraust • Þjálfar einbeitingu Byrjendanámskeiö aö hefjast, innrltun 15.—20. apríl. Komið og farið í reynslutima. Æfingatímar Fullorönir: mánud., miövikud. og laugard. og þrlöjud., fimmtud., og laugard. Börn 9—12 ára: laugardaga og þriöjudaga. Fullorönir: Verð kr. 2.500, námskeiö 3 mánuöi. Börn: Kr. 1.500, námskeiö í 3 mánuði. Þjálfun er í höndum frægustu karate-iökenda íslands. Hringiö og fáiö nánari upplýsingar i síma 25025 milli kl. 19.00 og 21.00 alla virka daga og milli kl. 13.00 og 16.00 laugardaga. Karatefélag Reykjavíkur Goju-Kai Karate — Do Ármúla 36, 108 Reykjavík, sími: 91-25025.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.