Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985 B 23 Ljóam.: Magnús Ólafsson Kópfa: Ljósmynd&safnið © Sttdveiðar Frá síldveiðum í upphafi aldarinnar. Mynd- in mun líklega vera tekin á Reyðarfirði. Ljósm.: óþekktur Kópfa: Ljósmyndasafnið © Sttdarplan Hafsilfurs á Raufarhöfn Á fyrri hluta aldarinnar var síld aðeins söltuð á Raufarhöfn þegar veiði brást annars staðar á svæðinu við austanvert Norðurland. En á síldartímum eftir seinni heimsstyrjöld hefur Raufarhöfn jafnan verið með aflahæstu plássum. Ljósm.: Ólafur Magnússon Képfa: Ljósmyndasafnið © Séð út yfir höfnina á Siglufirði Ljósm.: Ólafur Magnúsaon Kópfa Ljósmyndasafnið © Séð yfir Siylufjörð, höfuðstað sttdveiðanna Þarna má vel sjá reykinn frá síldarverksmiðjunum, en þær voru orðnar fimm talsins á Siglufirði árið 1946. þúsundum manna sem á sumri hverju störfuðu þar við veiði og verkun á síld. Þegar á þessum fyrstu árum þessa nýja landnáms varð strandlengjan við Siglufjarð- areyrar svo þéttsetin að leita þurfi austur yfir fjörðinn til byggingar verkunarhúsa. Árið 1907 byggðu Evanger-bræður þar „Siglufjörds Sildolje og Guanofabrik", en hún eyðilagðist síðar í snjóflóðinu mikla 1919, og létu níu manns þar lífið. Hinu afskekkta litla þorpi, þar sem aðeins var ein moldargata í upphafi aldar, hafði verið breytt í tilkomumikinn athafnabæ á ótrú- lega skömmum tíma. Þar sem áð- ur höfðu búið fáeinar hræður og lifað við búskap og dútlað við smá- útgerð, var nú iðandi mannlíf, þar sem allir höfðu meira en nóg að starfa, hvort sem var á nóttu eða degi. Álbert Engström lýsir Siglu- firði svo þegar hann var þar á ferð árið 1911: „Bærinn lítur út eins og hann hafi verið byggður i flýti. Ég hugsa mér að Dawson City og aðr- ir bæir, sem hróflað var upp í Klondyke, muni einhvern tíma hafa litið út líkt og þetta." MÖnnum sem muna eftir þess- um uppgangstímum á Siglufirði hefur þótt fara vel á því að líkja bænum við Dawson City, enda báðir bæirnir byggðir með hraði til að taka á móti óhemju fjölda aðkomufólks. Og jafnt í Dawson City og á Sigló gat fólk skvett úr klaufunum svo um munaði þegar tækifæri gafst á að líta upp frá puðinu. Um skemmtanalífið hefur Engström þetta að segja: „Á laugardagskvöldum kemur allur fiskiflotinn inn i höfn og eitt, tvö, þrjú þúsund fiskimenn ganga á land. Þá er auðvitað þörf á krán- um. Og stundum lendir þeim sam- an, nokkur hundruð víkinga hvor- um megin (fyrir skömmu stóð ein slík orrusta í þrjá daga, alveg eins og orrustan hjá Leipzig). I ill- viðratíð, þegar flotinn liggur inni athafnalaus í nokkra daga, getur maður hugsað sér ástandið. Lög- reglustjórn bæjarins finnur til vanmáttar síns og er ekkert annað fyrir hana að gera en að drekka sig fulla.“ Þróunin á Siglufirði var sem sagt ör, þökk sé síldinni. Sumarið 1946 voru þar starfræktar 23 sölt- unarstöðvar og fimm síldar- bræðslur. Eftir stríð fór síldin svo að gera mönnum þann grikk að láta hreint ekki sjá sig á stundum, og um 1970 hvarf hún svo nær al- veg. Þessu fylgdi að sjálfsögðu til- heyrandi hnignunarskeið á land- inu öllu, svo ekki sé talað um Siglufjörð og aðra slíka staði, sem urðu ekki svipur hjá sjón eftir að síldin hvarf. Umsjón og texti: ÍVAR GISSURARSON Leita leiða til hvalveiða Oató. 12. apríl. AP. NORÐMENN ætla ekki að hætta hvalveiðum ótilneyddir, það hafa þeir gefið ríkulega til kynna að und- anfórnu. Sjávarútvegsráðuneytið hyggst beita sér fyrir því að alþjóð- leg samþykkt byggð á vísindalegum rannsóknum verði gerð og niður- staða bennar muni gera Norðmönn- um kleift að halda áfram hvalveið- um. Thor Listau, sjávarútvegsráð- herra, sagði í dag, að Norðmenn myndu halda áfram að berjast í þessu máli þrátt fyrir að Japanir hefðu látið undan þrýstingi Bandaríkjamanna að hætta hval- veiðum frá og með 1988. Listau sagði rannsóknir norskra dýra- fræðinga benda eindregið til þess að frá umhverfissjónarmiði væri ekkert sem mælti gegn hvalveið- um, „tegund sú sem við höfum veitt er alls ekki í útrýmingar- hættu, þvert á móti er stofninn sterkur og jafn. Þegar svo er, þyk- ir okkur rétt að halda veiðum áfram og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að fá al- þjóðlega samþykkt sem byggir á þessum haldbæru rökum,* sagði Listau. Gervi- hjarta- þeginn braggast Stokkbólmi, 12. april. AP. SÆNSKI gervihjartaþeginn, sem varð fjórði maðurinn í heiminum sem slík aðgerð er gerð á, er vel haldinn eftir atvikum. Talsmaður Karolinska sjúkrahússins í Stokk- hólmi sagði að sjúklingurinn sæti uppréttur, borðaði og drykki eðlilega og læsi meira að segja dagblöðin. Hann væri hins vegar ekki farinn að ganga enn sem komið er. Sjúkrahúsyfirvöld hafa enn ekki gefið upp nafn sjúklingsins, segja hann óska nafnleyndar og ekki sé hægt annað en að virða þá ósk. Dagblöð og ýmsir aðilar hafa hins vegar fullyrt að maðurinn heiti Leif Stenberg, 53 ára gamall kaup- sýslumaður sem grunaður hefur verið um fjármálamisferli, skattsvik og ef til vill fleira óhreint. Stenberg þessi hefur átt yfir höfði sér réttarhöld, en lækn- ar hans hafa fengið þeim frestað um óákveðinn tíma vegna heilsu- leysis sakborningsins. Malaysía: Rottur stórtækar í eyðingu hrís- grjónaræktarlands Kuala Lumpur, Malayafu, 12. aprfl. AP. Á SÍÐASTA ári voru rottur u.þ.b. tíu sinnum stórtækari í eyðingu hrís- grjónaakra en árið 1983 og var tjón hrísgrjónaræktenda verulegt, að sögn embættismanna. Landbúnaðarráðherrann, An- war Ibrahim, sagði, að rottur hefðu eyðilagt um 6.390 hektara hrísgrjónaræktarlands í Malaysíu á árinu 1984, en ekki nema 640 hektara árið þar áður. Ráðuneytisstjóri landbúnaðar- ráðuneytisins kvað áætlanir hafa verið gerðar til að ráðast gegn rottuplágunni og yrðu m.a. þjálf- aðir ráðunautar til að aðstoða bændur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.