Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 32
32 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985 HÖGNI HREKKVÍSI /z Þvi' MI90R.-.- ÞAE> Efí. FULL&ÓKAf?. r Ást er... .... að fara lang- ar leiðir eftir ís handa henni. TM Reg. U.S. Pat. Off.—all rlghta reserved • 1979 Los Angeies Tlmea Syndicate Með morgnnkaffinu Pað er best að þú farir út því ég ætia að herja á möinugurnar. Nóg að hafa eina H.S. skrifan Kæri Velvakandi. Allt frá síöastliðnu hausti hafa hinir og þessir verið að gera sig að flónum með því að halda því fram að ný útvarpslög væri eitt það nauðsynlegasta sem lægi fyrir Al- þingi nú. íslendingar eru aðeins 240 þúsundir eða eins og íbúar einnar götu í stórborg, eða lítils þorps í stóru landi. Ein útvarps- stöð og ein sjónvarpsstöð eru því kappnóg. Útvarpið og sjónvarpið eru hvortveggja gott, að því marki að það bjargar mestum hluta þjóðarinnar frá því að verða að bjánum af eilífu sjónvarpsglápi og útvarpshlustun og ég neita að trúa stöð því að það séu fleiri flón í landinu en það að rás 2 dugi þeim ekki. Þess vegna þarf engar nýjar út- varps- né sjónvarpsstöðvar og ef þeir eru orðnir fullir af andagift fyrir austan fjall er hægt um vik að hliðra til í ríkisútvarpinu og koma henni þar að. En nú hefur það komið á dag- inn, mörgum á óvart, að hér er hópur af fólki og fyrirtækjum með fullar hendur fjár, hundruð milj- óna, reiðubúnir að reisa hér út- varps- og sjónvarpsstöðvar, sem næðu um heim allan eða svo til. Vonandi eru þetta ekki þeir aðilar sem Albert er að grátbiðja um að stela ekki söluskattinum og svikja ekki tíundina. Hverjum óvitlausum manni liggur það í augum uppi að nýjar útvarps- og sjónvarpsstöðvar yrðu aukin útgjöld fyrir þjóðina, engin aukin framleiðsla eða verðmæta- sköpun, enginn gjaldeyrissparn- aður, heldur þvert á móti aukin gjaldeyriseyðsla. Allir menn vita að nú ríður á að auka framleiðslu í landinu og fá auknar gjaldeyris- tekjur þó ekki væri nema til að grynnka á erlendu skuldunum sem fyrir löngu eru orðnar hættulegar frelsi og sjálfstæði þjóðarinnar. Það er áreiðanlega þjóðráð að salta þetta frumvarp um ný út- varpslög og láta það bíða betri tíma og benda peningafurstunum á að leggja heldur féð i nýjar og arðsamar atvinnugreinar, t.d. margumtalaðan lífefnaiðnað og rafeindaiðnað, tölvuframleiðslu og allt hitt sem færa á þjóðinni millj- arða í gjaldeyri að sögn Sverris og margra annarra stjórnmála- manna sem ekki fara með neina lygí- „Ein útvarpsstöð og ein sjónvarpsstöð er kappnóg“, segir bréfritari. Þessir hringdu . . . Léleg hafnar- aðstaða á Grundartanga Sjómannskona hringdi: Mikið hefur verið fjallað um rekstur íslenska Járnblendifélags- ins í blöðum og hagnaðinn af fyrirtækinu sem er mikið fagnað- arefni. í framhaldi af þessu langar mig til að fá upplýst hvort að hafnaraöstaðan við bryggjuna á Grundartanga hafi verið bætt. Mér hefur verið sagt að þar sé ein- hver ömurlegasta hafnaraðstaða sem sést hafi. Hvemig er t.d. öryggisútbúnaði háttað þarna og er einhver hafn- arvakt þegar skip liggja við bryggju? Vænti ég svara við þessu. Hver tók kápuna? Asta hringdi: Ég var stödd á veitingastaðnum Hrafninum laugardagskvöldið 30. mars sl. Þegar ég ætlaði svo að yfirgefa staðinn komst ég að raun um að yfirhöfnin mín hafði verið tekin, mér til mikillar gremju. Bið ég nú þann sem tók, viljandi eða óviljandi, svarta kápu í Hrafn- inum umrætt kvöld, að skila henni vinsamlegast þangað aftur. Vítissódi stórhættu- legt efni Eiríka Friðriksdóttir hringdi: Ég skrapp í matvöruverslun um daginn og rakst þá á vítissóda inn- an um hreinlætisvarninginn, og vitanlega var sjálfsafgreiðsla i þessari verslun. Síðan 1972 hefur verið bannað að selja vítissóda í sjálfsaf- greiðsludeildum verslana vegna þess hve efnið er hættulegt. Von- andi er ekki sama upp á teningn- um í öðrum verslunum. Þjónusta, ekki iðnaður Æði oft má heyra í útvarpi, sjónvarpi og sjá í blöðum að ung en vaxandi atvinnugrein í landinu er nefnd „ferðamannaiðnaður". Ég hef lengi haft uppi mótmæli gegn notkun þessa orðs enda er hér ekki um iðnað að ræða heldur þjónustu og ætti því að kalla þessa tiltölulega nýju atvinnugrein „ferðaþjónustu“ eða „ferðamanna- þjónustu". Það virðist eins og áhugi sé á að útrýma þjónustu- hugtakinu úr íslensku máli og nota ýmis önnur orð í tjáskiptum milli manna. T.d. er ekki lengur rætt um lögregluþjón nema yfir- lögregluþjónn sé, hinir skulu heita lögreglumenn. Vonandi kemur ekki til þess að þjónustu verði vikið úr íslensku máli því þegar allt er rétt metið erum vér öll að þjóna hvar sem er vér í fylking stöndum eða a.m.k. ættum að gera það.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.