Morgunblaðið - 14.04.1985, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985
B 7
boðin til sölu, og eru mikið hlessa
yfir því hve áhugi á fjárframlögum
í formi hlutafjár er lítill.
Á sama tíma eru aflabrögð tog-
ara með besta móti, en togarar
Hafnfirðinga liggja bundnir.
Þó má nefna aðra orsök atvinnu-
leysisins, en hún er sú viðleitni
ráðamanna bæjarins að leita til
utanbæjarmanna með verktöku og
er þar farið eftir lægstu tilboðum,
þó í sumum tilfellum muni óveru-
legum upphæðum á innanbæjar-
mönnum. Álmennt er þó viðurkennt
að allverulegur munur þurfi að vera
á tilboðum svo slíkt borgi sig, þegar
litið er til þeirra gjalda af veltu og
launum er ella myndu skila sér til
baka i ríkiskassann. Þessi vinnu-
brögð koma fram í byggingariðnaði
en þó hvað harðast nú, hjá vöru-
bifreiðastjórum sem eiga við mjög
alvarlegt atvinnuleysi að glíma.
Enn eitt dæmi um auðnuleysi
bæjaryfirvalda má sjá í sölu Lýsis
og mjöls hf. er bærinn seldi hlut
sinn í því fyrirtæki fyrir gjafverð,
upphæð sem var ekki nema brot af
rekstrarhagnaði fyrirtækisins árið
áður.
Nú eru allar horfur á, að þvi
fyrirtæki verði lokað innan tíðar.
Þá má benda á, að með þeirri
ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
mótmæla ekki hvalveiðibanni al-
þjóðahvalveiðiráðsins, þá stefnir i
lokun á enn einu stórfyrirtæki i
Hafnarfirði, sem veitt hefur fjölda
manns mikla og góða atvinnu.
Svo mætti upp telja mun fleiri
dæmi um algert ábyrgðarleysi i
stjórnun á atvinnumálum Hafn-
firðinga en ekki verður það gert að
þessu sinni. Ljóst má vera, að
ástandið nú er slíkt að ekki verður
þolað degi lengur. Fulltrúaráð
verkalýðsfélaganna i Hafnarfirði
ásamt stjórnum allra verkalýðsfé-
laganna mótmælir algerlega slíkri
óstjórn og krefst þess að bæjar-
stjórn grípi nú þegar til raunhæfra
úrbóta. Slíkt verður einungis gert
með því, að senda togara Bæjarút-
gerðarinnar nú þegar til veiða svo
vinnsla í landi fari sem fyrst af
stað, burt séð frá því hvernig mál
standa með yfirtöku á rekstrinum
af hlutafélagi, sem algerlega er
óvist, að verði nokkurn tfma annað
en nafnið.
Einnig ber bæjaryfirvöldum að
láta hafnfirskan vinnukraft sitja i
fyrirrúmi með öll atvinnutækifæri
sem bjóðast. Nú þegar er nauðsyn-
legt að hefja mótun raunhæfrar at-
vinnustefnu fyrir Hafnarfjörð til
lengri tíma, þar sem ný og fjöl-
breytt atvinnutækifæri verða í boði
og hlúð að starfandi fyrirtækjum.
Verkalýðshreyfingin i Hafnarfirði
krefst þess, að núverandi bæjaryf-
irvöld taki ályktun þessa tafarlaust
til meðferðar og afgreiði hana á
jákvæðan hátt. Ef ekki telur verka-
lýðshreyfingin rétt að bæjarbúum
verði hið fyrsta gefinn kostur á að
segja álit sitt á núverandi stefnu
með atkvæðagreiðslu.
Tilboð óskast
Tilboö óskast í kúluhús á
Keflavíkurflugvelli. Gólfflötur
er ca. 182 m2 og lofthæö 15 m.
Kúluhúsið, sem er á steyptum
grunnfleti, er samsett úr áli
(grind) og fiber-plötum. Miöað
er viö að búiö veröi að fjar-
lægja þaö ekki síöar en 1. júlí
nk.
Kúluhúsið verður til sýnis á
Keflavíkurflugvelli miðviku-
daginn 17. apríl nk. milli kl.
10—16. Tilboðum þarf að
skila fyrir kl. 11 föstudaginn
19. apríl á skifstofu Sölu varn-
arliðseigna aö Grensásvegi 9,
þar sem tilboöin veröa opnuö.
Ennfremur óskast tilboð í
skemmu á Keflavíkurflugvelli
(með beinum veggjum) ca. 180
m2.
SALA VARNARLIÐSEIGNA Símar á skrifatofu eru 31910 og Sími á Keflavíkurflugveili er
Grensásvegi 9. 34920. 92-52000 (5146).
reimdrifinn með vökvalyftu og j
léttarmi.
Hátalarar: 2X50 vatta góðir
hátalarar.
Skápur: Tækjunum góðu er !
haglega komið fyrir í skáp á
hjólum.
SAMSTÆÐA II
Með samstæðu II kemur
SÉR-MAGNARI 2X33 vatta
(8 ohm hátalarar) eða 2X43
vatta (4 ohm hátalarar) og
SÉR-UTVARP með FM, MW
og LW bylgjum.
Þetta er kraftmeiri samstæða
með meiri fjölbreytni.
Plötuspilari, segulbandstæki,
hátalarar og skápur eru sömu
og fylgja samstæðu I, Stað-
greiðsluverðið er 31.980 krónur.
eða, með þægilegri 7.000 kr.
útborgun og eftirstöðvar
greiðist á 8 mánuðum.
Skipholti 19. Reykjavik.
S: 29800
viö oska þer til hamingju meö
ferminguna. Við bjóðum tvær
samstæður úr gullnu línunni
frá Marantz á sérlega hagstæðu
verði. Staðgreiðsluverð á
ódýrari gerðinni er aðeins
27.980 krónur eða gegn 7.000
króna útborgun og eftirstöðvar
greiðist á 8 mánuðum.
Útvarpsmagnari: 2 X 30 vatta (8
ohm hátalarar) eða 2X40 vatta
(4 ohm hátalarar) FM, MW og
LW útvarpsbylgjur.
Segulbandstæki: Með samhæfðu
og léttu stjórnkerfi og dolby-
suðeyði.
Plötuspilari: Hálfsjálfvirkur,
SAMSTÆÐA I