Morgunblaðið - 14.04.1985, Page 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985
„Viljum vera í nánum
tengslum við markaðinn“
— segir Ágúst Þór Eiríksson hjá ullarútflutningsfatafyrir-
tækinu Árbliki, sem flytur út til Bandaríkjanna og Evrópu
„Það er hörð samkeppni á ullarvörumarkaðin-
um, en mestu möguleikarnir liggja í Bandaríkj-
unum, þar sem íslenska ullarvaran nýtur góðs
álits,“ sagði Ágúst Þór Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Árbliks hf., sem flytur út ullarvörur, eink-
um jakka og peysur og ýmsa smáhluti fyrir döm-
ur og herra.
Það er eitt ár síðan hann ásamt nýjum eigend-
um tók við fyrirtækinu, sem áður hét Ólafur
Ólafsson og hafði starfað frá árinu 1977. Nú sem
fyrr flytur fyrirtækið út undir vöruheitinu Ice-
ware.
Dótturfyrirtækið í Banda-
ríkjunum reynst vel
Árblik setti í byrjun árs 1984 á fót dótturfyr-
irtæki í Bandaríkjunum sem heitir Iceware USA
Inc., staðsett í Columbus, Ohio, og sér það um
almenna markaðsstarfsemi, en að sögn forráða-
manna fyrirtækisins stefnir allt í það að Banda-
ríkjamarkaður verði aðalmarkaður fyrirtækis-
ins.
Við spurðum Ágúst Þór hvernig dótturfyrir-
tækið hefði reynst?
„Það kom í ljós í árslok 1984 að stofnun þessa
fyrirtækis hefur borgað sig. Annars er gifurlega
kostnaðarsamt fyrir lítil fyrirtæki að stofna til
dótturfyrirtækis á erlendri grund og tókum við
með því töluverða áhættu. En við leggjum mikla
áherslu á að vera í góðu sambandi við markaðinn
og sér dótturfyrirtækið, sem hefur á sínum snær-
um tvo starfsmenn, um að sinna þeim sölumönn-
um, sem vinna hjá okkur. Einnig sinnir það
stærri viðskiptavinum eins og verslunarkeðjum
og er í stakk búið til að gera samninga þegar svo
ber undir og að þessu er því mikil hagræðing."
Evrópumarkaðurinn tískusinnaðri
en Bandaríkjamarkaöur
„Við erum einnig inni á Evrópumarkaðinum.
Seljum einkum til Þýskalands, Englands, Noregs,
Svíþjóðar og Sviss. Munurinn á þessum mörkuð-
um er sá að Evrópumarkaðurinn er farinn að
gera meiri kröfur til þess, að flíkurnar séu tísku-
legar, vill meira litaúrval og nýtískulegri snið.
Aftur á móti er Bandaríkjamarkaður meira fyrir
hefðbundnari ullarfatnað. Þetta þýðir það, að við
verðum að taka tillit til þessara tveggja sjónar-
miða í framleiðslu okkar.
Skapast af þessu svolítið vandamál en við
reynum að sameina þessa tvo þætti en jafnframt
gæta þess að vörulínan sé heilsteypt."
Stööug vöruþróun verður að vera í gangi
„Vegna þess að við íslendingar höfum ekki ver-
ið nógu fljótir að aðlaga okkur þessum tískukröf-
um markaðarins, til dæmis i Suður-Þýskalandi,
dróst útflutningur þar á islenskum ullarfatnaði í
tonnum talið saman um 56% á árunum 1981—82
og 32% á árunum 1982—83.
Þetta segir sína sögu um þá hörðu samkeppni,
sem við heyjum. Sem þýðir að við verðum að
fylgjast vel með kröfum markaðarins og stöðug
vöruþróun verður að vera í gangi.
Erum bæöi með umboðs-
menn og heildsala
Hvað sjálfa söluna varðar höfum við verið með
Ágúst Þór Eiríksson: „ Við stofnudum dótturfyrir-
tæki í USA á sídastliðnu ári sem þegar hefur borgað
sig.“
umboðsmannakerfi í Þýskalandi og Englandi. í
Noregi, Svíþjóð og Sviss höfum við aftur á móti
verið með heildsala, sem sjá algerlega um mark-
aðssetninguna.
Þú spyrð um muninn á umboðsmannakerfinu
og heildsölunum?
Þessir aðilar hafa hvor um sig sína kosti og
galla. Einn aðalkosturinn við umboðsmennina, en
við byrjuðum með þá í upphafi síðasta árs, er sá
að við afhendum vöruna beint til viðskiptavinar-
ins og erum því í nánari tengslum við hann og
höfum því meira vald á verðinu og sjálfri mark-
aðssetningunni. Hinsvegar eru heildsalarnir með
vöruna á lager og geta afgreitt hana strax. En
þetta þýðir að við erum ekki í eins nánum tengsl-
um við kúnnann. Heildsalarnir leggja líka sitt á
vöruna, sem þýðir hærra verð.
Við höfum aflað okkur söluuaðila erlendis
einkum með því að skrifa erlendum verslunar-
ráðum og fá upplýsingar um þá sem til greina
gætu komið. Við höfum auglýst. Fengið fyrir-
spurnir frá mönnum, sem við síðan höfum tekið í
okkar þjónustu eða talað beint við þá sem við
teljum að geti selt okkar vöru. En aðalatriðið er
að vera með aðila, sem er með vörur, sem eru
seldar í sömu verslunum og okkar vörur. Einnig
verða þeirra vörur að vera í samræmi við gæði
okkar vöru, því við viljum skapa vörum okkar
hágæðaímynd.
Viljum koma ullarfatnaöinum
í almennar verslanir
Okkar kaupendur hafa einkum verið ferða-
menn og varan seld í sérverslunum fyrir þá. En
markmiðið er að ná til breiðari hóps neytenda
með því að koma henni inn í almennar fataversl-
anir. En því takmarki ætlum við að ná með því að
gera vöruna tískulegri.
Við teljum okkur vel samkeppnisfær í verði og
höfum reynt að vera með svipað verð og hinir og
gætt þess að vera ekki með undirboð.
Töluverð söluaukning nú þegar
Hvað kynningarstarf varðar förum við í reglu-
legar ferðir til Evrópu og hittum umboðsmenn,
heildsala og verslanir. Við sjáum verslununum
fyrir bæklingum og plakötum til að gefa við-
skiptavinunum. Við höfum tekið þátt í sýningum,
en erum ekki nógu ánægðir með árangurinn. Má
rekja orsökina til þess, að við höfum ekki verið að
bjóða nógu nýstárlega vöru, en strax á næsta ári
teljum við okkur vera í stakk búna að vera með
vöru, sem laðar að. Við höfum ekki auglýst mikið.
En hugsum okkur að gera meira af slíku í fram-
tíðinni. Auglýsa einkum í fagritum, sem ná til
verslana til að byrja með, því það hefur enga
þýðingu að auglýsa i almennum blöðum og tíma-
ritum fyrr en varan er komin til dreifiliðanna.
Otflutningsveltan á síðasta ári var um 15
milljónir. Við lítum björtum augum á framtíðina,
því töluverð aukning hefur orðið hjá okkur nú
þegar og búumst við við 25 milljóna útflutnings-
veltu á þessu ári.
Vextir
Iðnaðartankinn
-nútima banki
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLADASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
OG Á KASTRUP-
VZterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
pior^vmhlnhih
Heimilislæknir kveður
Eins og fram hefur komið fyrr í vetur hætti ég störfum
sem heimilislæknir i Reykjavík f.o.m. 1. maí nk. Viö
rekstri stofu minnar tekur Gunnar Baarregaard læknir.
Til ykkar samlagsfólks míns sendi ég bestu kveðjur og
þakkir fyrir samskiptin á liðnum árum Lifið heil.
Þóröur Theodórsson, læknir,
Þórsgötu 26.
Unglingur frá öðru
landi — til þín!
AFS hefur yfir 25 ára reynslu í nemendaskiptum milli
islands og annarra landa. Skiptinemarnir koma ýmist til
sumardvalar í tvo mánuöi eöa til ársdvalar frá 20. ágúst
1985.
Vill þín fjölskylda leggja okkur lið og taka aö sér skipti-
nema?
Haföu samband og kannaðu máliö.
AFS á íslandi, P.O. Box 752, Sími: 91-25450.
Hverfisgötu 39. 121 Reykjavík. Opið virka daga 14—17.
á íslandi
Bfíakjallarinn
auglýsir
Range Rover '83—'84. Vorum aö fá til sölumeöferöar tvo
Range Rover, væntanlega frá Þýskalandi á mjög góöu
veröi.
Range Rover '84: 4ra dyra, 5 gíra, stereo-útvarp, fjórlr
höfuðpúöar, álfelgur, silfurlitaöur, eklnn 30 þús., verö 1.290
þús.
Range Rover '83: 4ra dyra, 5 gíra, stereo-útvarp, fjórir
höfuöpúöar meö „air cond.“, álfelgur, rauöur á litinn, ekinn
32 þús., verö 1190 þús. Möguleiki er aö greiöa bifreiöirnar
meö fasteignatryggöum skuldabréfum aö hluta.
Bílakjallarinn,
Ford-húainu, aími 885100 og 84370.