Morgunblaðið - 14.04.1985, Page 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985
Svipmynd á sunnudegi/Abdul-Rahman Swareddahab
Skyldurækinn en
þjoðemissinnaður
Valdataka hans í Súdan kom umheiminum á óvart
AbduLRahman Swareddahab
Er Abdul-Rahman
Swareddahab hers-
höfðingi var enn hækk-
aður í tign fyrir þrem-
ur vikum og gerður að formanni
herráðsins í Súdan og um leið að
varnarmálaráðherra landsins,
þá álitu margir, að þar færi ein-
dreginn stuðningsmaður Gaaf-
ars Nimeiris forseta. Hann
myndi því standa við hlið þess
síðarnefnda og ljá honum allan
stuðning sinn í fallvöltu forseta-
embætti landsins. Allt annað er
þó komið á daginn. Nú er Nim-
eiri aðeins fyrrverandi forseti
Súdans og það er Swareddahab,
sem tekið hefur við sem leiðtogi
þar eftir byltingu hersins í land-
inu fyrra laugardag.
Sterkur foringi?
Ekkert lát er enn á bollalegg-
ingum um, hvort þessi nýi leið-
togi sé „sterkur foringi" eða að-
eins í forystu fyrir hópi annarra
yfirmanna í her landsins. Er-
lendir sendistarfsmenn í Súdan
sem og vinir hershöfðingjans
sjálfs hafa gjarnan lýst honum
sem óspilltum, ópólitískum og
trúhneigðum manni, sem komizt
hafi til metorða í hernum með
dugnaði sínum. „Hann er maður,
sem hvorki vekur tortryggni né
ótta,“ var haft eftir einum er-
lendum sendistarfsmanni í Súd-
an nú í vikunni.
En hershöfðingjanum iiefur
einnig verið lýst sem mjög
skylduræknum manni með ríka
þjóðernistilfinningu og þessi
persónueinkenni kunna að hafa
átt sinn þátt í því, að hann stóð
fyrir byltingunni gegn Nimeiri.
Byltingin á sér einmitt stað á
þeim tíma, er Súdan, sem er
stærst allra landa Afríku að
flatarmáli, horfist í augu við
glundroða og hrun sökum verk-
falla, þurrka, spillingar og vopn-
aðrar uppreisnar.
Swareddahab hershöfðingi
fæddist árið 1934 í Omdurman.
Væri nafn hans þýtt myndi það
vera „gullna armbandið“ og gæti
gefið til kynna, að forfeður hans
hefðu verið guilkaupmenn eða
þekktir fyrir að bera skartgripi
úr gulli.
Hann er maður þéttur á velli,
en hár hans er tekið að grána.
Hann er kominn af millistéttar-
fólki og var afi hans svo helgur
maður á meðal múhameðstrú-
armanna í Súdan, að honum var
valinn grafreitur í mosku í
Omdurman. Sjalfur er hershöfð-
inginn mjög trúhneigður og
haidinn dulhyggju, sem er al-
gengur eiginleiki á meðal múh-
ameðstrúarmanna í Súdan.
Swareddahab er kvæntur og á
son og dóttur, en haft er eftir
vestrænum sendimönnum, að
hann sé fastheldinn á siðvenjur
múhameðstrúarmanna. Þeir vin-
ir hans, sem oft hafa setið til
borðs með honum á heimili hans,
segjast aldrei hafa hitt konu
hans og börn, hvorki heima hjá
þeim hvað þá heldur við opinber
tækifæri, enda er Það forn hefð
á meðal múhameðsmanna, að
eiginkonur láti lítið á sér bera á
opinberum vettvangi.
„Hógvær og berst lítið á“
Haft er eftir vini hershöfð-
ingjans, að hann neyti aldrei
áfengis og honum er almennt
lýst sem nákvæmum og heiðvirð-
um manni. „Hann er hógvær
maður, sem berst lítið á,“ sagði
vestrænn sendimaður, sem
spurður var álits á hershöfðingj-
anum eftir valdatöku hans.
Ekki er þó gert ráð fyrir, að
hershöfðinginn sé því fylgjandi
að láta hin ströngu lög spá-
mannsins ráða hjá þjóð sinni.
íbúar Súdans eru nú um 22 millj.
Meiri hluti þeirra er múham-
eðstrúar en fimmti hluti lands-
manna er þó kristinn eða vætta-
dýrkendur. Er jafnvel talið, að
Swareddahab muni láta afnema
hinar ströngu refsingar spá-
mannsins, sem Nimeiri lét inn-
leiða, en þær fela m.a. í sér, að
höndin er höggvin af þeim, sem
gerast sekir um þjófnað.
Hershöfðinginn tilheyrir svo-
nefndum Khatemia-trúflokki í
Súdan, en kenningar hans leitast
við að sameina múhameðstrú,
dulhyggju og síðari tíma hag-
sýni. Er sagt, að hófsemi hers-
höfðingjans megi að nokkru
rekja þangað. Trúflokkur þessi
var stofnaður í byrjun 19. aldar
og meðlimir hans störfuðu í nán-
um tengslum við nýlenduyfir-
völd Breta, á meðan Súdan var í
reynd stjórnað frá Kairó. Trú-
flokkur þessi stofnaði sinn eig-
inn stjórnmálaflokk 1956, sem
rann svo saman við annan flokk.
Saman mynduðu þessir tveir
flokkar síðan flokk, sem var
stærsti einstaki flokkurinn á
þjóðþinginu, er Nimeiri hrifsaði
til sín völdin með stjórnarbylt-
ingu árið 1969.
Swareddahab hefur ekki orð á
sér fyrir að halda um of fram
stjórnmálaskoðunum flokks
síns. Hann hefur aftur á móti
lagt áherzlu á þjóðareiningu og
þjóðarsátt, sem kom m.a. fram í
því, að eftir valdatökuna kallaði
hann strax á sinn fund helztu
leiðtoga þeirra hópa, sem að
undanförnu hafa haldið uppi
harðri verkfallsbaráttu í Súdan.
Lofar að koma á lýðræði
í ræðu þeirri, sem Swaredda-
hab hélt fyrra laugardag, hét
hann þjóð sinni að koma á lýð-
ræði í Súdan innan sex mánaða
og sagðist myndu leita eftir
samningaviðræðum Við upp-
reisnarmenn í suðurhluta lands-
ins. Þar hefur olíuleit og olíu-
vinnslu seinkað mjög af völdum
uppreisnarinnar og á það veru-
lega sök á því, hve illa er nú
komið fyrir efnahagslífi lands-
ins.
Sem ungur maður gekk Abdel
Swareddahab í háskóla hersins í
Súdan, en fór síðan á herskóla í
Bretlandi, Egyptalandi og Jórd-
aníu. Er haft eftir háttsettum
jórdönskum herforingja, sem
hafði Swareddahab sem nem-
anda, að hann hafi skarað fram
úr í hvívetna.
Hann var skipaður aðstoðar-
yfirmaður herráðs Súdans fyrir
tæpum þremur árum og fékk þá
veruleg áhrif í stjórn hersins í
landinu, en í honum eru um
70.000 manns. Eitt helzta verk-
efni hans þar var að stjórna
hernaðaraðgerðum stjórnar-
hersins í innanlandsstyrjöldinni
í suðurhluta landsins.
Þegar Nimeiri forseti skipaði
Swareddahab í embætti varn-
armálaráðherra og yfirmanns
herráðsins fyrir þremur vikum,
áður en hann hélt til Bandaríkj-
anna í opinbera heimsókn en
jafnframt til að leita sér þar
lækninga, áleit hann vafalaust,
að hann væri að fá yfirstjórn
hersins í hendur dyggum stuðn-
ingsmanni sínum. Annað er nú
komið á daginn.
Það er hins vegar endalaust
hægt að velta því fyrir sér, hvað
knúið hefur Swareddahab til
stjórnarbyltingarinnar. Vanda-
málin, sem við landinu blasa, eru
gífurleg. Hlutfallslega er það
eitt af skuldugustu löndum
heims. Aðstreymi fólks úr ná-
grannalöndunum Chad og
Eþíópíu hefur verið gífurlegt og
ekki hafa þurrkarnir i Súdan
sjálfu að undanförnu orðið til
þess að bæta úr skák. í suður-
hluta landsins geisar mannskæð
styrjöld. Swareddahab fær því
ærin verkefni til að glíma við í
framtíðinni. Hvernig honum
tekst í þeirri baráttu, skal ósagt
látið. (Heimild: New York Times.)
Fyrirliggjandi í birgðastöð
SVARTAROG
GALVANISERADAR
PÍPUR
Samkv.:Din 2440-B.S.1387
oOO° °°o o O OOo
Sverleikar: svart, 3/8 - 5“
galv., 3/8 - 4“
Lengdir: 6 metrar
SINDRAi rM .STÁLHF
Ðorgartúni 31 sími 27222
Fyrirlestur um erfða-
tækni á morgun
ROBERT Williamson prófessor í líf-
efnafræði við læknaskólann á St.
Mary's Hospital í London er staddur
hér á landi.
Hann mun halda erindi sem
nefnist „The Application of Gen-
etic Engineering to the Study of
Human Disease" í stofu 157, húsi
verkfræði og raunvísindadeildar,
á morgun, mánudag, og hefst kl.
16.15.
Einnig mun hann tala á mál-
stofu um notkun kjarnsýruþreif-
ara (DNA probes) við greiningu
cystic fibrosis og fleiri erfðakvilla
í fundarherbergi Blóðbankans
(kjallara) á þriðjudaginn kl 14.00.
Robert Williamson tók B.Sc.-
próf í efnafræði við University
College í London og lagði síðan
stund á framhaldsnám í lifefna-
fræði þar. Að loknu doktorsprófi
árið 1963 varð hann kennari við
lífefnafræðideild Glasgow-há-
skóla, en flutti sig um set á Beat-
son-krabbameinsrannsókna-
stofnunina þar í borg 1967. Frá
1976 hefur hann verið prófessor
við Lundúnaháskóla.
Williamson hefur hagnýtt sér
aðferðir lífefnafræði, erfðatækni
og sameindaliffræði við greiningu
arfgengra sjúkdóma og blóðsjúk-
dóma sem kallast thalassaemias,
en nefndir hafa verið marblæði á
íslensku. Nýlega veitti The Bio-
chemical Society í London honum
viðurkenningu sem nefnist Wel-
come Trust Award og veitt er fyrir
rannsóknir í lífefnafræði sem
leiða til framfara í læknavísind-
um.