Morgunblaðið - 14.04.1985, Side 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRlL 1985
SIF - KONA
ÞRUMUGUÐSINS
Morgunblaðið kynnir nýju Landhelgisgæsluþyrluna TF SIF
„Ef tæki þetta, í lögun sem skrúfa, er vel vandað, það er að segja úr
lérefti og þéttað með línsterkju, og snúið svo hratt aö af því komi
pilsaþytur, mun það rísa upp.“ hannig skrifaði Leonardo da Vinci árið
1493 um hugmynd sína að flugtæki sem gæti hafið sig lóðrétt upp.
Snillingurinn hafði með hugmyndaflugi sínu hitt á lögmál nýtísku þyrlu,
en alveg eins og hugmyndir hans að flugvélum voru þessir geysilegu
þekkingarfjársjóöir týndir og tröllum gefnir í rúmar þrjár aldir áður en
fyrsta flugtækið í ætt við nútímaþyrlur hófst á loft.
þægilegt og til marks um þægind-
in finnur maður varla fyrir há-
vaða eða titringi frá hreyflunum
sem eru rétt fyrir ofan og aftan
farþegarýmið. Og eins og hugur-
inn hvarflaði áður að Leonardo da
Vinci fór ég nú að hugsa um goða-
fræðina en einkennisstafir þyrl-
unnar, SIF, eru sóttir þangað. Sif
Adögunum gafst
Morgunblaðs-
mönnum tækifæri á
að fara í ferð með
hinni nýju og glæsi-
legu þyrlu Landhelgisgæslunnar,
TF SIF. Blm. hafði aldrei áður
farið í flugferð með þyrlu og á
meðan ég stóð í góða veðrinu og
virti fyrir mér „vindmyllutækið",
sem átti eftir að bera okkur um
loftin blá, hvarflaði hugurinn ein-
mitt til manna eins og Leonardos
da Vinci og hve hann hafi verið
langt á undan sinni samtíð. Á
þessu ári eru nefnilega 492 ár frá
því að hann reit á blað þau orð
sem eru upphafsorð þessarar
greinar sem þú ert nú að lesa, les-
andi góður. Sjálf flugferðin var
óvenjuleg og spennandi, eins og
ljósmyndir Árna Sæberg úr þess-
ari ferð, og tveimur öðrum, bera
með sér.
Þyrlan TF SIF er tveggja
hreyfla meðalstór þyrla af gerð-
inni Aerospatiale AS 365 N Daup-
hin (Höfrungurinn). Þessi gerð er
tiltölulega ný því aðeins fimm ár
eru liðin frá því að hún hóf sig
fyrst til flugs en þó ber þess að
gæta að hún er þróuð og byggð
samkvæmt reynslu af eldri AS-
gerðum frá árinu 1972. í dag er
hægt að fá þrjár útgáfur af þess-
ari gerð hjá Aerospatiale í Frakk-
landi. Þessar frönsku verksmiðjur
hafa fyrir löngu unnið sér sess
sem þyrluframleiðendur og um
síðustu áramót höfðu þær selt ná-
lægt 7.500 þyrlum til 579 aðila í
105 þjóðlöndum.
TF SIF er fyrst og fremst út-
búin fyrir verkefni sem krefjast
þess að flogið sé yfir sjó, s.s. við
landhelgisgæslu, björgun og ýmis
þjónustustörf en hún getur ein-
mitt náð til meginhluta 200 sjó-
mílna efnahagslögsögu íslands
svo nærtækt dæmi sé tekið. Þá
getur hún lent á þyrluþilförum
allra varðskipanna við góðar að-
stæður og til að auðveldara sé að
koma henni fyrir í þyrluskýlum
skipanna er hægt að leggja þyrlu-
blöðin aftur á skömmum tíma.
Að innan er þyrlan mjög rúm-
góð og stórir gluggarnir gera það
að verkum að hún er björt og út-
sýni verður eins og best kosið.
Rúmgott farþegarýmið má nýta á
þrjá mismunandi vegu. í fyrsta
Íagi með sæti fyrir átta farþega og
tvo flugmenn, í öðru lagi fyrir
þriggja til fjögurra manna áhöfn
sem er með ýmsan aukabúnað eft-
ir því hvaða verkefni er verið að
leggja upp í, og loks er hægt að
búa hana fjórum sjúkrakörfum,
súrefnistækjum, sjúkrakassa fyrir
ófullburða ungbörn o.s.frv., en þá
er þyrlan orðin að einskonar fljúg-
andi slysavarðstofu. Í stjórnklef-
anum sitja flugmennirnir tveir
eins og í fínustu viðhafnarstofu
enda nauðsynlegt að búa vel að
þeim og tækjunum þar. Bara
tækjabúnaðurinn þarna frammi
kostar nálægt 12,3 milljónum
króna. Farþegarýmið er vissulega
TF-SIF
Tæknilegar
upplýsingar
Gerð: Tveggja hreyfla meöalstór
þyrla af gerðinni AER0SPATI-
ALE AS 365 DAUPHIN 2.
Stcrð: Mesta lengd á bol 11,44 m (frá
nefi að afturenda). Mesta
lengd 13,46 (með skrúfuferli).
Mesta breidd á bol 2,03 m.
Mesta breidd á stéli 3,21 m.
Oyngd: Hámarksþyngd 4.000 kg (i
flugtaki) Tómaþyngd 2.502 kg.
Aröhleðsla 1.498 kg. Lyftir 272
kg í björgunarspili/1.600 kg í
'vörukrók.
Hreyflar 2x650 hestafla Turbomeca
Arriel 1 C. Hverflar (turbine)
með fjögurra blaöa aðalskrúfu
og Fenestron-stélskrúfu.
Eldsneyti: 905 kg (1.046 kg með auka-
geymum) Jet A-1 steinolía
Hraði: Hámarkshraði 175 sjómil-
ur/klst. Hagkvæmasti hraði
130 sjómilur/klst. Leitarhraði
75 sjómílur/klst.
Hém.flughæð: 4.575/15.000 fet (fullhlaðin).
Flugdrægi: 480 sjómílur (555 sjómilur með
aukageymum).
Flugtimi: 3:35 klst. (4:20 klst. með auka-
geymum).
var ein af ásynjunum og kona
þrumuguðsins Þórs. Ef ásynjan
Sif var eins hljóðlát og nett og
nafna hennar, þyrlan, hefur hún
sennilega verið ólík bónda
sínum, þrumuguðinum.
Af öðrum búnaði þyrlunnar má
nefna björgunarspil til að hífa
menn um borð, ljóskastara og
neyðarflotholt sem blásast út ef
skyndilega þarf að nauðlenda á
sjó.
TF SIF verður þó ekki framtíð-
arvél hjá Flugdeild Landhelgis-
gæslunnar því hún er leigð á með-
an framleiðendurnir eru að full-
smíða þá þyrlu sem Landhelgis-
gæslan pantaði á siðasta ári. Sú
þyrla kemur með haustinu og
verður sömu gerðar og þessi, en að
ýmsu leyti fullkomnari. T.d. hefur
reynslan af TF SIF orðið til þess
að ýmsar breytingar hafa verið
gerðar á smíðasamningi nýju
þyrlunnar. Sú nýja verður al-
mennt betur búin ýmsum grund-
vallarbúnaði en auk þess má nefna
í stuttu máli ein sjö atriði sem
gera hana færari um að sinna
verkefnum við íslenskar aðstæður:
Loran C-staðsetningartæki sem
verður tengt inn á ratsjá og
sjálfstýringu, undir miðri vél
verður vörukrókur sem getur lyft
1.600 kg, útbúnaður sem gerir
kleift að losa eldsneyti á flugi,
—
MU' "
: «V -m ■ -Ti*
jiii
'■*
..
”