Morgunblaðið - 05.05.1985, Qupperneq 1
104SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
100. tbl. 72. árg.
SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Nætur-
bardagar
í Beirút
BeMl, 4. nui. AP.
BARIST var í Beirút í dag en þó var
kyrrara þar en í nótt þegar fallbyssu-
sknthríðin lýsti upp næturhiminfnn.
Amin Gemayel, forseti, og Rashid
Karami, forsætisráðherra, ræddu (
gær um itökin og voru sammála um
að „skera upp herör gegn hernaðin-
um“ í landinu.
í átökunum í nótt féll margt
manna og einkum óbreyttir borg-
arar sem reynt hafa að leita skjóls
í húsakjöllurum og sprengjubyrgj-
um. Þegar hlé verður á sprengju-
og skothriðinni leitar fólkið lags
og flýr úr hverfunum við „grænu
línuna", sem skiptir Beirút-borg
milli kristinna manna og múham-
eðstrúarmanna.
Líbönsk blöð skýrðu frá því í
dag, að Gemayel, forseti, og
Rashid Karami, forsætisráðherra,
hefðu rætt í gær um ástandið í
landinu og verið sammála um að
„skera upp herör gegn hernaðin-
um“, sem væri um það bil að
steypa þjóðinni út í nýja borgara-
styrjöld. Ekki var þó greint frá til
hvaða ráða þeir ætluðu að grípa.
Rajiv Gandhi:
Endurskoð-
ar afstöðu
til kjarn-
orkuvopna
Njj» Delbi, 4. mai. AP.
RAJIV Gandhi, forsætisráð-
herra Indlands, sagði í þing-
ræðu í Nýju Delhí í gær, að
áframhaldandi tilraunir Pak-
istana til að smíða kjarnorku-
sprengju neyddu Indverja til
að endurskoða „friðsamlega
afstöðu sína til kjarnorku-
vopna“.
Margir indverskir þingmenn
hafa að undanförnu hvatt til
þess, að Indverjar bíði ekki eftir
þvi að Pakistanar raski valda-
hlutfallinu í Suður-Asíu, heldur
hefji smíði eigin kjarnorku-
sprengju. Pakistanar neita því,
að þeir hyggist framleiða kjarn-
orkuvopn, en óháðar alþjóða-
stofnanir og vestrænar leyni-
þjónustur telja sig hafa heimild-
ir fyrir hinu gagnstæða.
í þingræðunni í gær sakaði
Gandhi Bandaríkjastjórn óbeint
um að beita sér ekki gegn kjarn-
orkuhervæðingu Pakistana.
Bandaríkjastjórn hefur nokkr-
um sinnum sent Pakistanstjórn
orðsendingu og lýst áhyggjum
sínum vegna kjarnorkutilrauna
hennar.
Friðarrannsóknarstofnunin í
Stokkhólmi segir, að Indverjar
hafi ekki yfir kjarnorkuvopnum
að ráða, en eigi tæknilega mögu-
leika á því, að framleiða þau.
Hestar í Biskupstungum
Morgunblaðið/Friðþjófur
Rajiv Gandhi
Leiðtogafundi lýk-
ur án samkomulags
Bonn, 4. maf AP.
Bonn, 4. maf AP.
LEIÐTOGAR sjö helstu iðnríkjanna héldu áfram fundi sínum í morgun
en honum átti að Ijúka á hádegi og nokkru síðar var að vænta sameigin-
legrar yfirlýsingar. Hafa leiðtogarnir verið sammála um margt en eftir
sem áður ber hæst ágreining Frakka og hinna þjóðanna um ráðstafanir
í gjaldeyrismálum. Sagði talsmaður Bandaríkjaforseta, að litlar líkur
væru á að samkomulag næðist um viðræður um aukið viöskiptafrelsi
þjóða í milli.
Meginverkefni þessa 11.
leiðtogafundar iðnríkjanna var að
ákveða viðræður um aukið frelsi í
heimsviðskiptum en Mitterrand,
Frakklandsforseti, gerði það lýð-
um ljóst fyrir fundinn, að á þessar
Bretland:
Hermannaveiki
— ekki inflúensa
London, 4. maf. AP.
HEILBRIGÐISYFIRVÖLD í Bretlandi hafa nú staðfest,
að sjúkdómsfaraldurinn í Staffordsskíri og nágrenni stafi
ekki af inflúensu eins og fyrst var talið, heldur sé um að
ræða svokallaða hermannaveiki.
Talið er, að 28 manns hafi ljósi að upptökum veikindafar-
látist úr veikinni en hún hefur
komið harðast niður á öldruðu
fólki í Staffordsskíri. Eru þar
68 manns veikir en eftir að
læknar greindu sjúkdóminn
rétt fá sjúklingarnir rétt með-
ul. Upphafleg einkenni her-
mannaveikinnar og inflúensu
eru mjög lík og því villti það
um fyrir læknunum.
Leitað er nú með logandi
aldursins, sem aðeins er á litlu
svæði í Mið-Englandi, og verða
sjúklingarnir að gera ná-
kvæma grein fyrir ferðum sín-
um að undanförnu. Her-
mannaveikin heitir svo vegna
þess, að hennar varð fyrst vart
á samkomu bandarískra upp-
gjafahermanna í Pennsylvaníu
árið 1976 en þá sýktist 221 og
34 létust.
viðræður féllust Frakkar ekki
nema samtímis yrði reynt að
finna leiðir til að treysta gengi
helstu gjaldmiðla innbyrðis.
Bandaríkjamenn, Vestur-Þjóð-
verjar, Bretar, Kanadamenn, Jap-
anir og að flestu leyti ítalir einnig
vilja, að viðræðurnar hefjist
snemma næsta árs. George P.
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, sagði í gær á
fréttamannafundi, að ef Frökkum
snerist ekki hugur myndu Banda-
ríkjamenn sjálfir beita sér fyrir
viðræðum á næsta ári.
Um önnur heimsmál en efna-
hagsmálin voru þjóðarleiðtogarnir
mjög sammála og í stjórnmálayf-
irlýsingu fundarins leggjast allir á
eina sveif með Bandaríkja-
mönnum í afvopnunarviðræðun-
um. Er þar skorað á Sovétmenn að
bregðast vel við skynsamlegum
tillögum Bandaríkjamanna um
fækkun kjarnorkuvopna. Leið-
togafundinum átti að ljúka um
miðjan dag en að loknum hádegis-
verði var að vænta sameiginlegrar
yfirlýsingar um það, sem áunnist
hefur, og það, sem um er deilt.
E1 Salvador styð-
ur viðskiptabann
Snn Snhndor, Wnshington, 4. mní. AP.
RfKISSTJÓRN El Salvador hefur
lýst yfir stuðningi við viðskiptabann-
ið, sem Bandaríkjastjórn hefur sett á
Nicaragua. Leiðtogar hinna svo-
nefndu Contadora-ríkja segja aftur á
móti, að viðskiptabannið auki ekki
líkur á friði í Mið-Ameríku.
í yfirlýsingu frá utanríkisráðu-
neyti E1 Salvador segir, að ef
vinstri stjórnin í Nicaragua hætti
ekki ihlutun sinni i innanríkismál
landsins, muni hún taka viðskipti
landanna til endurskoðunar.
Ráðuneytið fordæmir jafnframt
stjórnmálakúgunina i Nicaragua
og hin nánu tengsl vinstri stjórn-
arinnar þar við Sovétrikin. Stjórn-
in i Nicaragua hefur opinberlega
lýst yfir stuðningi við skæruliða,
sem berjast gegn rikisstjórn EÍ
Salvador, og hefur því verið haldið
fram, að hún útvegi þeim einnig
vopn og vistir.
Mexíkó bættist í gær i hóp
þeirra Contadora-ríkja, sem lýst
hafa sig ósamþykk viðskiptabann-
inu í Nicaragua. Segja formælend-
ur utanríkisráðuneytisins þar, að
sú leið sem Contadora-ríkin hafi
farið til að leysa ágreining Banda-
ríkjanna og Nicaragua sé hin eina,
sem fær sé.