Morgunblaðið - 05.05.1985, Page 45
MQRGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 5- MAÍ 1985
45
Sex prestsembætti
laus til umsóknar
SEX prestsembieUi hafa verið aug-
lýst til umsóknar. Um er að ræða
annað embætti farprests þjóðkirkj-
unnar og fimm prestaköll víðsvegar
um landið. Umsóknarfrestur er til 1.
júní.
Prestaköllin fimm eru:
Ásar f Skaftártungum. Þar
þjónaði sr. Sigurður Árni Þórðar-
son sem tekið hefur við prestsem-
bætti á Hálsi í Fnjóskadal.
Djúpivogur i Áustfjarðarpróf-
astsdæmi. Þar hefur verið prests-
laust um skeið, en þjónað af far-
presti.
Stóri-Núpur í Árnespróf-
astsdæmi. Sr. Sigfinnur Þorleifs-
son hefur þjónað þar sl. 10 ár, en
hefur nú fengið lausn frá embætti.
Málþing um
fræðslu
kirkjunnar
Kirkjufræðslunefnd cfnir til mál-
þings f Safnaðarheimili Langholts-
kirkju þriðjudaginn 7. maí nk. kl.
13.30—17.30.
Á málþinginu verða lögð fram
drög að nýrri námsskrá íslensku
þjóðkirkjunnar og óskað eftir að
fundarmenn fjalli um þau. Er ætlun-
in að vinna þessi drög áfram í sumar
og leggja þau fyrir kirkjuþing í
haust
Sr. Heimir Steinsson formaður
kirkjufræðslunefndar mun stýra
málþinginu, en sr. Bernharður
Guðmundsson fréttafulltrúi mun
kynna drögin og leiða umræður.
Unnið verður í hópum og er
fundurinn opinn öllum áhuga-
mönnum. Sérstaklega hefur þeim,
sem vinna að kristinni fræðslu og
öðrum sem láta sig varða mótun
einstaklingsins í nútíma þjóðfé-
lagi, verið boðin þátttaka. Vænt-
anlegir þátttakendur eru beðnir
að skrá sig á Biskupsstofu.
(Úr fréttatilkynningu.)
Petra von
Morstein flyt-
ur fyrirlestur
PETRA von Morstein, prófessor í
heimspeki við háskólann í Calgary í
Kanada, flytur opinberan fyrirlestur
í boði heimspekideildar Háskóla ís-
lands þriðjudaginn 7. maí kl. 17.15 í
stofu 101 í hinu nýja Hugvísindahúsi
háskólans.
Fyrirlesturinn nefnist: „The
Survival of Art Works and Forms
of Life“ og verður fluttur á ensku.
öllum er heimill aðgangur.
Þess má geta að Petra von
Morstein flytur einnig fyrirlestur
á vegum áhugamanna um heim-
speki sunnudaginn 5. maí kl. 15.00
í stofu 101 í Lögbergi. Nefnist sá
fyrirlestur „Understanding Per-
sons“ og verður fluttur á ensku.
(Frétt frá Háxkóla fsUnda)
Sauðlauksdalur i Barðastrand-
arprófastsdæmi. Þar hefur verið
prestslaust um árabil.
Raufarhöfn í Þingeyjarpróf-
astsdæmi. Þar hefur nágranna-
prestur annast prestsþjónustu síð-
an sr. Guðmundur Örn Ragnars-
son sem þjónaði þar gerðist annar
farprestur þjóðkirkjunnar.
(Úr fréttatilkynningu)
Færeyskar
konur með
kaffisölu
FÆREYSKAR konur í Reykjavík og
nágrenni hafa lagt fram mikið fé og
vinnu við að koma upp hinu fær-
eyska sjómannaheimili hér í bænum
í Brautarholti 29.
Á hverjum vetri og vori, um
margra ára skeið, hafa þær haldið
basar og síðan kaffisöludag. Allur
ágóði hefur verið látinn renna til
byggingar sjómannaheimilisins.
Er smíði hússins hófst var hér all-
margt færeyskra vertíðarmanna.
Þó þeim hafi fækkað og fáir komi
nú hingað til lands til starfa á
vetrarvertíð, hafa konurnar haldið
sínu striki ásamt þeim Færeying-
um sem í upphafi beittu sér fyrir
því að reist skyldi færeyskt sjó-
mannaheimili í Reykjavík. í dag,
sunnudag, er kaffisöludagur fær-
eyskra kvenna í félagsskap þeirra,
Sjómannskvinnuhringnum, í sjó-
mannaheimilinu. Þar verður fær-
eyskt bakkelsi og álegg á borðum
ásamt kaffinu frá því um kl. 15 og
fram til kl. 22.30 í kvöld.
Grensáskirkja:
Biblíu-
lestrar
ÞAÐ hefur orðið að ráði að hafa
fjóra Biblíulestra í maímánuði f
Grensáskirkju. Þeir verða á þriðju-
dagskvöldum í safnaðarheimilinu
við Háaleitisbraut og hefjast með
bænastund kl. 20.30. Lesturinn á að
taka 45 mínútur, síðan verða umræð-
ur um efni kvöldsins ásamt kaffi-
sopa og öllu ætti að vera lokið kl.
22.00.
Fyrsti lesturinn verður þriðju-
daginn 7. maí og þá verður tekið
fyrir efnið: Trú og að trúa. Hinir
lestrarnir heita: Hvað á ég að
gjöra til að eignast trú? Hvað
gjörðist á krossinum á Golgata?
Og síðasti er: Kemur Jesús Krist-
ur aftur?
Allir eru velkomnir og gott er að
taka Biblíu með.
Kennsluna annast sr. Halldór S.
Gröndal.
(Frétutilkjnning frá Grennán-
Itirkju)
Þ0RIRÐU
AÐ PRÓFANN
GETUR VEfllÐ AÐ GAMLIR FORDÓMAR
VALDI ÞVI AÐ ÞÚ MlSSIfl AF BESTU
BÍLAKAUPUNUM I DAG?
Ef hægt væri að fara í reynsluakstur án þess að vita
hvaða tegund væri ekið hverju sinni er hætt við að margir myndu
rugla SKODA saman við tvöfalt dýrari bíla.
Við skorum á þig að leggja alla fordóma til hliðar
og koma og reynsluaka SKODA. Koma og kynnast aksturseiginleikum
hans og snerpu af eigin raun.
KOMDU OG TAKTU í HANN
OG REYNDU AÐ RUGLAST EKKI.
JÖFUR HF
NYBÝLAVEGI 2 KÓPAVOGI SÍMI 42600
BORGARNESDAGAR
j LAUGARDALSHÖU 2.-5. MAÍ
Nú eru síðustu forvöð að njóta krásanna á Borgarnesdög-
um ’85, eöa taka með sér heim matvæli á einstöku kynn-
ingarverði. Við lokum klukkan 22 í kvöld og það veröur allt
á útopnu þangað til. Borgnesingar þakka gestum sínum
komuna og vonast til aö sjá þá næst uppfrá.
Á Borgarnesdögum skemmta krakkarnir sér í tívolíinu í
kjallaranum meðan mamma og pabbi skoöa og smakka í
básum sýnenda, eöa fá sér kaffisopa og skoða listaverk í
veitingasalnum. Kannski skreppur pabbi líka í innigolf. Það
finna allir eitthvað við sitt hæfi í höllinni.
Síðasti dagur Borgarnesdaga ’85