Morgunblaðið - 05.05.1985, Page 56

Morgunblaðið - 05.05.1985, Page 56
56 MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1985 ÞINGBRÉF eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON Stjómarfrumvarp um vidskiptabanka: Betri bankaþjónusta - Frumvörp um Seðlabanka og sparisjóði væntanleg - Tillögur um sameiningu viðskiptabanka á næstu grösum Það væri bera í bakkafullan læk- inn að tíunda enn og aftur vaxandi skuldasöfnun þjóðarbús okkar er- lendis, þó „góð vísa“ sé aldrei of oft kveðin! Svo virðist sem fjölmargir geri sér ekki grein fyrir því að er- lendar skuldir þjóðarinnar skerða útflutningstekjur þegar um fjórðung og rýra ráðstöfunarfé þjóðarinnar og kaupmátt verulega. Afborganir og vextir af erlendum lánum eru í raun stórtæk fjármagns- og kjara-til- færsla úr landi. Eitt stærsta hagsmuna- og sjálf- M stæðismál þessarar þjóðar er að draga verulega úr viðskiptahalla við útlönd, ná helzt viðskiptajöfnuði út á við, og lækka erlendar skuldir í áföngum. Jafnframt þarf að skapa skilyrði fyrir sparnaði einstaklinga innanlands, sem og eiginfjármyndun fyrirtækja. Fjármunir eru vinnutæki, sem atvinnulífið þarfnast. I*eir þurfa að vera tiltækir í landinu, til að þjóð- arbúið sé síður háð erlendum fjár- magnseigendum. Efnahagslegt sjálf- stæði þjóðar og einstaklinga er und- ' ir því komið, að vel takizt til í þessu efni. Það er því miklvægt að sá laga- grunnur, sem bankar og aðrar pen- ingastofnanir eru reistar á, sé traust- ur. Matthías Á Mathiesen, ráðherra bankamála, mælti nýverið á Alþingi fyrir stjórnarfrumvarpi um við- skiptabanka, sem sitt sýnist hverjum um. í þingbrén í dag verður lítillega vikið að ýmsum efnsiatriðum, sem fram komu í framsögu ráðherrans. Bankar koma til sögunnar Alþingi íslendinga mun fyrst hafa ályktað um stofnun banka í landinu árið 1853. Landsbanki ís- lands, fyrsti viðskiptabankinn, hóf starfsemi sína 1886 og verður því hundrað ára á næsta ári. Skömmu eftir aldamót tók síðan íslands- banki hf. til starfa, en hann var forveri Otvegsbankans hf., sem síðar var breytt í hreinan ríkis- viðskiptabanka. Búnaðarbanki Is- lands, sem var ríkisbanki frá upp- hafi, var stofnaður 1930. Auk framangreindra þriggja ríkis- banka eru nú starfandi fjórir hlutafélagabankar: Verzlunar- banki íslands hf., Iönaðarbanki ís- lands hf., Samvinnubanki íslands hf. og Alþýðubankinn hf., auk fjölda sparisjóða. Sparisjóður Siglufjarðar er elzta peninga- stofnun í landinu, sem enn starf- ar, stofnaður 1873. Ef undan er skilinn Landsbanki íslands var stofnaö til banka hér á landi í þeim tilgangi fyrst og fremst að „veita tilteknum at- vinnugreinum eða þjóðfélags- hópum þjónustu", sagði ráðherra, og bætti við: „eins og ég mun síðar víkja að er þetta galli á banka- kerfinu, sem nauðsynlegt er að laga“. Sérstök lög gilda um hvern þessara banka. Fyrir 13 árum skipaði Lúðvík Jósepsson, þá ráðherra banka- mála, sérstaka bankamálanefnd til að endurskoða allt bankakerfið. Hún skilaði áliti og drögum að frumvarpi að nýrri löggjöf um peningastofnanir snemma árs 1973. Vorið 1974 var síðan flutt frumvarp til laga um viðskipta- banka í eigu ríkisins, byggt á til- lögum nefndarinnar, en náði ekki fram að ganga. Síðan hafa nokkr- um sinnum verið lögð fram frum- vörp um sama efni en öll dagað uppi. Engu að síður „er óhætt að Betri bankaþjónusta Iðnaðarbankinn tók nýlega í þjónustu sína tölvubanka, sem tryggir viðskiptavinum hans sjálfsafgreiðslu allan sólarhringinn. Bankakerfið hefur og verið að tölvuvæðast gengin ár og færa út starfskvíar; annast m.a. innheimtur (gíró) fyrir fjölda stofn- ana. Innan bankakerfis starfa nú nokkuð á fjórða þúsund einstaklingar og þar eru unn- in rúmlega þrjú þúsund ársverk. Matthías Á. Mathiesen, bankaráðherra, lagði nýlega fram á Alþingi frumvarp til laga um viðskiptabanka, sem tryggja á bet- ur hagsmuni eigenda innlánsfjár og al- menningi og atvinnulífi betri bankaþjón- ustu. Væntanlegt er frumvarp bæði um sparisjóði og Seðlabanka. ^HlW fullyrða að þróun bankamála og bankaviðskipta hér á landi hefur verið örari síðustu 25 árin en nokkurn tíma áður, en bankamál eiga alllanga sögu á íslandi." Árið 1983 vóru ársverk í peningastofn- unum hér á landi um 3.000 og þar störfuðu 3.470 einstaklingar meira en 13 vikur á því ári. Sú breyting hefur þó náð fram að nú heyra allir starfandi bankar í landinu undir eitt og sama ráðu- neytið: viðskiptaráðuneytið. Nýtt frumvarp um viðskiptabanka Frumvarp það sem nú liggur fyrir til nýrra laga um viðskipta- banka skiptist í 10 kafla og 55 greinar, auk ákvæða til bráða- birgða. Með frumvarpinu er reynt að tryggja betur hagsmuni eig- enda innlánsfjár og tryggja at- vinnulífinu betri bankaþjónustu. Samhliða er ætlunin að stuðla að aukinni hagkvæmni í rekstri bankanna. Samkvæmt fyrsta kafla frum- varpsins eiga viðskiptabankar að hafa stöðu að lögum með tvennum hætti. í fyrsta lagi ríkisviðskipta- bankar. í annan stað hlutafélaga- bankar er fullnægja vissum skil- yrðum. Ráðherra sagði í fram- sögu: „Eins og áður segir var stefna mörkuð að nefna þá við- skiptabanka, sem eru í eigu ríkis- ins, ekki með nafni í sjálfu frum- varpinu. Er það gert með tilliti til þess að vænta má tillagna frá nefnd þeirri, sem nú fjallar um sameiningu og fækkun viðskipta- banka, innan tíðar. Allir starfandi viðskiptabankar eru hins vegar tilgreindir í bráðabirgðaákvæði er fylgir frumvarpinu." Fjórða grein frumvarpsins er stefnumarkandi að því leyti að þar er horfið frá þeirri skipan að binda starfsemi hvers viðskipta- banka að verulegu leyti við til- tekna atvinnugrein, atvinnurekst- ur, eða hagsmunasamtök, eins og nú er gert í lögum um alla við- Lrtiö í gluggana Nýjar sendingar af leöursófasettum. VALHÚSGÖGN ÁRMÚLA 4, S. 685375. /----------------------------—s Frá Ferðanefnd BSRB Nokkur sæti eru laus í áöur auglýstum ferö- um til KRK Júgóslavíu 24. júní og Nizza Frakklandi 7. ágúst. Frekari upplýsingar á skrifstofu BSRB Grett- isgötu 89, sími 26688. I ------------------------------/ Bændur Tvö ungmenni óska eftir aö komast á sveitabæ á sama býli, erum vön búskap, getum hafiö störf strax. Tilboð óskast sent Morgunblaðinu sem fyrst merkt: „B — 0887“. Kvenfélag Háteigs- sóknar með kaffísölu Bladburðarfólk óskast! Austurbær: Sóleyjargata KVENFÉLAG Háteigssóknar verður með kaffisölu í Domus Medica í dag, sunnudag, og hefst hún kl. 15. I febrúar sl. var samþykkt af kvenfélaginu að greiða allan kostnað við undirbúning að gerð altaristöflu í Háteigskirkju, fram- leiðslu og uppsetningu. Margir hafa á umliðnum árum gefið góðar gjafir til þessa verkefnis og fjár- öflun kvenfélagsins hefur beinst í þessa átt undanfarin ár. Er það von kvenfélagsins að nú hilli undir að ein mesta prýði Háteigskirkju sjái dagsins ljós, en á þessum ári verða 20 ár liðin frá vígslu kirkj- unnar. Allir sem unna Háteigskirkju og Kvenfélagi Háteigssóknar eru hvattir til að líta við í Domus Medica í dag og kaupa sér og sín- um veislukaffi. Or frólulilkjnmnnu. Fréttirfmfyrstu hendi!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.