Morgunblaðið - 05.05.1985, Síða 62

Morgunblaðið - 05.05.1985, Síða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1985 Vigvellir Eftir hryðjuverkatíma Rauðu kmeranna lágu slíkar beinahrúgur eftir. „Þeir áttu það til að drepa bara í reiðikasti, eins og ekkert v*ri.“ KENNINGARNAR AF SIGNUBÖKKUM Nafnið Angkar Loeu heyrist oft. Það er alvaldið sem allir eiga að hlýða skilyrðislaust. Einstakl- inganir eru ekki lengur til. En lítið er vitað um þá menn sem bera valdið. Seinna kemur í ljós að það er hópur af kambódískum náms- mönnum frá París sem hefur smíðað þessa hugmyndafræði undir forustu hagfræðingsins dr. Kieu Samphan, en aðalmaðurinn er Pol Pot, alias Saloth Sar, fyrr- verandi framkvæmdastjóri kommúnistaflokksins í Kambódíu. Seinna segir einn af ráðherrum Rauðu Kmeranna frá því að kambódísku háskólastúdentarnir * hafi sótt námskeið í selluskóla franskra kommúnista í Paris, undir stjórn Raymonds Guyots: „En þar sem við vorum ekki sam- mála franska kommúnistaflokkn- um, sem vildi nota frelsisbaráttu nýlendnanna í þágu valdabarátt- unnar í Frakklandi, þá mynduðum við okkar eigin sellu undir stjórn Pol Pots. Við komum okkur fyrir í búðum úti í Chatouskógi, úr heyrnarmáli við frönsku kommún- istana, til þess að forma okkar eig- in kenningar og herstjórnarlist fyrir framtíðina." Það er þessi stjórnlist sem þeir voru þarna að framkvæma á fólkinu. — E.Pá. íi Ljóðið um Pol Pot Gunnar Dal I í París las hann og lærði þar að leita sannleikans. 1 sannleiksleitinni sýktist hann þó af sjúkdómi hins lærða manns: Að láta alla jörðina líta út eins og lærdómsbókina hans. II Hann heimkominn sanna tók sína trú, sveipaður lárviðarkrans. Lét lifandi fólk verða lexíu úr bók. Svo lék hann sinn Hrunadans. Og tugþúsund menn urðu tilraunadýr. Svo tortímdi hann byggðum síns lands. 99 Stýrimannaskólinn í Reykjavík Endurmenntunarnámskeiö fyrir skipstjórnarmenn Endurmenntunarnámskeiö 1985 veröur haldiö í eftirtöldum greinum: Sundköfun: Frá 28. maí til 8. júní. — 10 kennsludagar. — Bókleg og verkleg kennsla. Þátttökugjald er kr. 8.000,-. Þátttakendur geta haft meö sér eigin búninga og veröa aö leggja fram læknisvottorö um aö þeir fullnægi öllum kröfum sem eru geröar til heilbrigöis og líkams- byggingar vegna köfunar. Frá 1. júní — 8. júní: 1. Siglingar í ratsjársamlíki — (RADAR SIMULATOR) og ratsjárútsetningar. 2. ARPA — Námskeið i notkun tölvuratsjár -ARPA- (Automatic Radar Plott- ing Aids) fyrir þá sem hafa lokiö fyrra námskeiöi í ratsjárútsetningu. 3. Skipagerð — Hreyfistööugleiki (dýnamískur stööugleiki), kröfur IMO um stööugleika. Kornflutningar. Kynntar reglur SOLAS og meðferö á hættu- legum farmi. 4. Ratsjá og fiskileitartæki — m.a. Kelvin-Huges — 1600. Kynning á ARPA. 5. Lóran — Gervitunglamóttakari (Satellite). Lórankortaskrifari. 6. Stórflutningar — Skipspappír (Shipping). 7. Tölvunotkun um borö í skipum og sjávarútvegi. 8. Heilsufræði — Skyndihjálp. Lyfjareglugerö, lyfjakista. — Slysadeild Borgarspítalans (væntanlega). 9. Veiðarfæri — Vörpur, vörpugerð. Fiskurinn og lífiö í sjónum umhverfis landiö. 10. Eldvarnir — Slysavarnir. 10.—15. júní. (Reykköfun, slökkvitæki, slökkviæfing, fluglínutæki, björgun meö þyrlu.) Þátttökugjald er kr. 6.000 fyrir greinar frá 1.—10. Væntanlegir þátttakendur tilkynni þaö til Stýrimannaskólans bréflega eöa í síma 13194 virka daga frá kl. 8—14 og tilkynnist þátttaka fyrir 17. maí nk. Skólastjóri. Landeigendur smáir og stórir GIRÐING ER VÖRN FYRIR VIÐKVÆMAN GRÓÐUR Pú færð allar tegundir af GIRÐINGAEFNI í BYKO Járnstaurar, tréstaurar, gaddavír og girðinganet af öllu tagi. BYGGtMGAVÖRUVERZLjUN KÓPAV0GS SF SKEMMUVEG 2 SÍMI 4100C BYKO w

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.