Morgunblaðið - 25.05.1985, Blaðsíða 23
MORátorBLADID, LAUGA'RDÁGUR fe.'MAf 1985
23
Frönsk stjórnarskýrsla
styður auglýsingasjónvarp
í skýrslu, sem samin var fyrir frönsku stjórnina og birt í þessari viku, er
lagt ta, aö auk staöbundinna sjónvarpsstööva veröi komiö upp tveimur
nýjum sjónvarpsrásum meö auglýsingum, sem nái til landsins alls. Eiga
þessar stöövar aö keppa við ríkissjonvarpiö, sem ræöur nú yfir þremur
rásum.
Skýrsla þessi var samin í
janúar sl. að beiðni Laurents
Fabius, forsætisráðherra
Frakklands. Var henni ætlað að
vera stjórninni til leiðbeiningar
varðandi úthlutun leyfa til
einkaaðila um að hefja sjón-
varpsrekstur, en þá væri endir
bundinn á það einkaleyfi franska
ríkisins, sem það hefur til rekst-
urs sjónvarpsstöðva og komið
var á eftir heimsstyrjöldina síð-
ari.
„Tillögur okkar eru viturlegar,
sveigjanlegar og til þes fallnar
að koma í veg fyrir þann glund-
roða í skipulagningu sjónvarps-
mála, sem fyrir hendi er í sum-
um löndum," sagði Jean-Denis
Bredin lögfræðingur nú f vik-
unni, en hann var formaður
nefndarinnar, sem samdi skýrsl-
una.
Franskir embættismenn hafa
hins vegar ekki viljað segja neitt
um málið, en hafa samt gefið í
skyn, að forsætisráðherrann
muni innan fárra vikna tilkynna
um ýmsar ákvarðanir, er teknar
verða á grundvelli þessi, sem
fram kom í skýrslunni.
Áður hefur verið skýrt frá j
áformum um að skjóta fjögurra
rása sjónvarpshnetti á loft í júlí
1986 og áætlun stjórnarinnar að
koma á fót kapalsjónvarpskerfi, ij
sem kosta mun yfir 6 milljarða |!
dollara og á á næsta áratug að ;
ná til að minnsta kosta 4 millj.
heimila, gisthúsa, banka og |
margs konar stofnanna annarra. P
Þær tvær nýju sjónvarpsrásir, |
sem nú er rætt um, eiga að ná til
landsins alls og eiga að fá að afla
sér tekna með auglýsingum. Þær
munu hugsanlega ná til 17 millj.
manns. Er sjónvarpsshnöttur-
inn, sem gefið hefur verið nafnið
TDF-Í, hefur verið sendur á loft,
þá munu útsendingar hans nást
um allt Frakkland og nágranna-
lönd þess.
Burma:
Dularfull
sprenging
í sovéska
sendiráðinu
Rangoon, Burma, 24. maí. AP.
MIKILL sprengjugnýr heyrðist frá
nýbyggingu sovéska sendiráðsins í
Rangoon, böfuðborg Burma, á
mánudagskvöld. Lögreglumenn og
hermenn komu á vettvang, en sendi-
ráösmenn óskuöu ekki eftir aöstoö
og báðu þá að fara á brott.
Sendiráðsbyggingin, sem er
stórhýsi á sex hæðum, er utan frá
að sjá alveg óskemmd og er ekkert
vitað hvað gerðist i raun innan
veggja þar. Nokkrir sendiráðs-
starfsmenn neita þvi að nokkur
sprenging hafi orðið, en AP-
fréttastofan hefur eftir ónafn-
greindum sovéskum stjórnar-
erindreka, að smávegis sprenging
hafi orðið er verið var að brenna
gamlar kvikmyndafilmur.
Enginn starfsmanna sovéska
sendiráðsins hefur verið fluttur á
sjúkrahús, enda reka Sovétmenn
eigin spitala í nýbyggingunni.
Námaslysiö í Japan:
Stjórn Mitsubishi-
námunnar vöruð við
nokkrum dögum áður
Tókýó, 23. maí. AP.
OPINBERIR eftirliUmenn höföu var-
aö stjórn Mitsubishi-námunnar við
haettu á, aö gasmengun gæti valdiö
sprengingu eins og þeirri er varö 62
að bana og slasaöi 24 til viöbótar í
síöustu viku, aö þvi er öryggiseftirlits-
maöurí Sapporo, Akira Suzuki, sagöi í
dag.
Eftirlitsmenn höfðu hinn 10. mai
hvatt stjórn námunnar til að koma
upp loftræsilögnum og bæta úr
öðrum ágöllum, sem kunna að hafa
valdið sprengingunni þar í siðustu
viku, að þvi er Suzuki sagði.
Hinn 11. mai komu boð frá stjórn
námunnar til eftirlitsskrifstofunn-
ar um að umbeðnum breytingum
hefði verið hrint i framkvæmd.
Ekki hafði af hálfu eftirlitsins
verið gengið úr skugga um rétt-
mæti orðsendingarinnar, en það
átti að gera við næstu mánaðarlegu
skoðun.
Lögregla gerði húsrannsókn á
skrifstofum námunnar á laugardag
og lagði hald á 80 skjöl, er vörðuðu
öryggismál.
Hópur verkfræðinga vinnur að
rannsókn málsins.
Um 800 manna hópur var i dag
viðstaddur minningarathöfn um þá
sem létust í slysinu.
Misritun á nafni
í FRÉTT í blaðinu i gær um frum-
sýningu CBS-sjónvarpsstöðvarinn-
ar i Bandaríkjunum á þætti um
Kristofer Kólumbus féll niður að
fréttin var send frá New York og
ennfremur misritaðist nafn frétta-
ritarans þar, Ivars Guðmundsson-
ar.
laugardag ffrá kl. 13 tll 17
BÍLVANGUR Sf=
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
Viö kynnum fjóra OPEL bíla á bílasýninn-
unni í bÍLV'AMuualnUM a laugar-
daginn: OPEL KAPETT, sem vallnn
hefur veriö sem bíll ársins 1985, OPEL
ASCONA, sem fullnægir flestum kröfum
bílaáhugamannsins, OPBL REKOWR
bílinn sem sker sig hvarvetna úr, og OPEL
CORSA, smábílinn sem allir falla fyrir.
OPEL bílarnir eru samnefnari þess besta í
þýskri hönnun. Traustir og liprir í akstri og
einstaklega þægilegir fyrir ökumann og
farþega.
Þú kynnist þessum bilum á Opelsýning-
unni aö Höföabakka 9. Ef þú átt góöan
notaöan bíl erum viö vísir til aö vijja kippa
honum upp í einn nýjan og spegilgjjáandi
OPEL til aö auövelda þér viöskiptin.
Greiösluskilmálarnir hjá okkur eru líka
sveigjanlegri en gengur og gerist.