Morgunblaðið - 25.05.1985, Qupperneq 39
MOkGUNBLAPIÐ, LA15&ARDAGUR 25 MAl 1986
39
HILMAR ÞORBJÖRNSSON VARÐSTJÓRI:
„Alltaf langað að vita
hvort ísland væri eyja“
Hann var á hlaupum í eina tíð
svo rækilega að metin fuku á
vellinum og ungir strákar áttu sér
þann draum að geta tekið til fót-
anna á sama hraða og Hilmar
Þorbjörnsson.
Svo lét hann af spretthlaupunum
og er nú ráðsettur varðstjóri hjá
lögreglunni með ríka starfs-
reynslu að baki, m.a. í gæsluliði
Sameinuðu þjóðanna f Israel og
sem lögreglumaður í New York.
En í „sportinu" hefur hann ekki
hætt og nú er það „bátadellan"
eins og hann segir sjálfur sem á
hug hans allan.
— Það er langt síðan ég fékk
bátadelluna og ég átti tvo báta á
undan þessum, þ.e. óskinni, sem
ég keypti í fyrra. Að vísu hef ég
átt bátana með hléum, en þegar
ég hætti öðru tómstundagamni að
mestu varð ég að finna mér eitt-
hvað annað til dundurs og þetta
frístundagaman varð fyrir valinu.
Þetta er skemmtilegt og heilbrigt,
maður eignast góða vini og víst er
þetta afslappandi frá daglegu
amstri og mér hefur alltaf þótt
afskaplega vænt um sjóinn. Hann
er svo ægilegur, en jafnframt svo
heillandi.
Þú ætlar að ferðast á bátnum í
sumar, ekki rétt?
— Jú, eitthvað. Við leggjum
nokkrir í hann vestur í júlí, en þar
verður ýmislegt að gerast, sjórall,
sjóstangaveiði og fleira í þeim
dúr. Að því loknu veit ég ekki
fyrir víst hvað við fjölskyldan ger-
um. Mig hefur alltaf langað til að
vita hvort ísland væri raunveru-
leg eyja og hver veit nema við
sannreynum það og skellum okkur
hringinn. Ég hef aldrei litið aug-
um Strandirnar, Jökuldjúpin eða
firðina frá sjó.
Stundaðirðu sjóinn hér fyrr á
árum?
— Sem krakki fór ég nokkrum
sinnum með afa mínum á bát í
Hrútafirði og þá kynntist ég sjó-
mennskunni eins og hún tíðkaðist
í þá daga. Ég veiði öðru hvoru
núna.
Ertu heppinn fiskimaður?
— Ég tók aldrei ráðleggingum
varðandi veiðar og hélt mig bara
nálægt gömlu trillukörlunum. í
fyrra fékk ég enga lúðu, í hitteð-
fyrra fékk ég einar þrettán. í ár
ætla ég að reyna að vera heppinn.
Annars er það ekki heppni ein sem
ræður úrslitum, það er einnig
mikill lærdómur í þessu sam-
bandi, það þarf að þekkja lands-
lagið í sjónum, sjávarföll, venjur
fiskanna og margt fleira.
Tekurðu sprettinn ennþá?
— Nei, ég er löngu hættur því.
Þó er það nú svo furðulegt að ég er
ennþá Islandsmeistari í sprett-
hlaupi eftir því sem ég best veit,
þó liðin séu 25 til 27 ár síðan ég
hlaut titilinn. Það er hin mesta
skömm að ég skuli ekki enn hafa
fengið tækifæri til að taka í hend-
ina á yngri manni, sem tekist hef-
ur að slá þetta met.
Ertu eitthvað viðloðandi aðrar
íþróttir?
— Einu sinni íþróttaunnandi
alltaf íþróttaunnandi. Því er nú
einu sinni þannig varið. Ég hef
COSPER
— Þú ert sannarlega heppinn, ég er læknir.
gaman af því að sigla, einnig að
leika borðtennis öðru hvoru og
fara á fjöll. Það eru nú kannski
frekar letigöngur, en það er svo
yndislegt að vera á fjöllum uppi í
góðum kunningjahópi og í nálægð
við náttúruna. Svo líður mér ekki
vel nema ég syndi nokkrum sinn-
um í viku og ...!
Toyah er
búin að
fá nóg af
frægðinni
Söngkonan Toyah Wilcox hef-
ur fengið smjörþefinn af því
hvað það kostar að vera frægur.
Hún ætlar að selja stórt hús sitt i
norðurhluta Lundúna vegna þess
að hún fær þar engan frið fyrir
átroðningi aðdáenda sinna, kaupa
minna hús og halda heimilisfang-
inu leyndu. „Við Tom (Taylor)
sambýlismaður minn, vitum varla
lengur hvað einkalíf er. Þetta er
orðið hreint helvíti. Atvikið sem
ég hygg þó að hafi fyllt mælinn
var þegar við komum eitt sinn
heim seint um kvöld og ætluðum
að hátta og fara að sofa. Er við
sviptum sænginni til, lá ung
stúlka í rúminu og bað um eigin-
handaráritun. Það er erfitt að
hemja sig við slík tækifæri, en nú
breytum við til ..." segir Toyah.
HVÍTA SUNNUMÁL TÍD
Á AUSTURLENSKUM
VEITINGA STAD
Um hvítasunnuhelgina er opiö alla
daga hjá okkur í Mandarín.
Viö bjóöum 30 girnilega rétti frá hinu
fjariæga austri. Viö mælum sérstaklega
meö:
Nautakjötssneiðum í ostrusósu
með nýjum íslenskum sveppum, bambusspírum,
zucchini og hrísgrjónum
Snöggsteiktum kjúklingi, ananas og nýju grœn-
meti í spes Mandarínsósu
GERDU ÞÉR
DAGAMUN
Manðarin
Nýbýlavegi 20
Sími 46212
SAMVINNUSKÓLINN
BIFRÖST
UMSÓKNARFRESTUR
10. MARS—10. JÚNÍ
Umsókn sendist til Skólastjóra Samvinnuskólans
Bifröst
311 Borgarnes
Áskriftcirsnninn er 83033