Morgunblaðið - 16.06.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. JtJNl 1985
7
11. jlílí
í sumar veröa farnar þrjár rútuferöir um
ítalíu, í tengslum viö leiguflug okkar til
Rimini.
Nú þegareruppseltítværferöanna,
en enn eru nokkur sæti
laus í þá þriöju.
EtDMRESSíB vR,r.;_
Feröatilhögun: Daginn eftir komuna til Rimini
er ekið sem leið liggurtil Flórens, hinnar þekktu
miðstöðvar lista og menningar. Far er gist í
tvær nætur. Þá er „hin' hliðin á Italíu skoðuð
- við förum til Siena, geysilega fallegs
háskólabæjar þar sem andrúmsloft miðalda
ríkir. Daginn eftir komum við til Römar, og um
þá borg þarf ekki mörg orð. Eftir þrjá daga í
Róm er haldið til Sorrento við Napóliflóa og út
frá Sorrento er farið í skoðunarferðir m. a. til
Capri, Pompey og Amalfi og fleiri fagurra staða.
Að lokinni þriggja daga dvöl í Sorrento og 10
daga rútuferð er aftur komið til Rimini og þar
dvalið í aðra 10 daga við sól- og sjóböð, leiki
og verslun, eða annað sem Rimini býður uppá.
Allstaðar er gist á fyrsta flokks hótelum.
Morgunverður er innifalinn, svo og skoðunar-
ferðir.
Yerð aðeins kr. 39.850
^urimiífn1’
Dubrovnik í Suður-Júgóslavíu
er ein skærasta perla sólarlanda, með fallegu
landslagi, frábærum ströndum, góöum hótelum, fyrsta
flokks aðstööu til leikja og íþrótta - og glampandi sól alla
daga'
Skelltu þér til Dubrovnik í sumar!
Brottför I hverri viku!
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆT112 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SfMAR 21400 & 23727
búinn til að láta skipið hætta veið-
um, ef félagið lýsti því yfir að það
myndi bæta áhöfn og útgerð það
tjón sem hlytist af því að útgerð
stöðvaðist, ef staðhæfing Sjó-
mannafélags Reykjavíkur reynd-
ist ekki rétt. Þessari ósk var hafn-
að, en því haldið fram eftir sem
áður, að ólögmætt væri að skipið
héldi til veiða.
Með vísan til framanritaðs er
ljóst, að ágreiningur er á milli mín
og Sjómannafélags Reykjavíkur
um lögmæti þess aö skipinu sé
haldið til veiða með yfirmenn eina
saman.
Ég get ekki fyrir mitt leyti eða
meirihluta áhafnar minnar fellt
mig við það að ágreiningur sem t
þessi verði leystur af verkfalls-
vörðum Sjómannafélags Reykja-
víkur á bryggjum Reykjavíkur-
hafnar.
Ágreininginn ber að leysa á öðr-
um vettvangi “
Yilrlýsing frá útgerðarmanni Freyju RE 38:
„Felli mig ekki við að ágrein-
ingur sé leystur á bryggjum“
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
yfirlýsing frá eiganda vs. Freyju RE
38, Gunnari I. Hafsteinssyni, sem er
svohljóðandi:
„Vegna frétta í blöðum og út-
varpi vegna meints verkfallsbrots
vs. Freyju RE 38 og ýmissa full-
yrðinga og rangfærslna í þessum
fréttum vil ég gefa eftirfarandi yf-
irlýsingu vegna máls þessa.
Vs. Freyja RE 38 er 103 rúm-
lesta togskip. Á skipinu hafa verið
síðastliðin ár frá 5 til 8 manna
áhöfn. Þegar verkfall Sjómanna-
félags Reykjavíkur hófst þann 17.
maí sl. var á skipinu 7 manna
áhöfn, þar af einn netamaður.
Þessi maður var afskráður sem
netamaður en skráður sem 2. mat-
sveinn.
Skipið lagði upp afla sinn hér í
Reykjavík í þrjú skipti á tímabil-
inu 23. maí og til 11. júní sl. Það
mun hafa verið 10. eða 11. júní að
formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur kom að máli við mig,
og sagði að eftir að athugasemd
barst mér var maðurinn afskráð-
ur. Eftir að hann var afskráður
voru á skipinu 6 menn, þ.e. skip-
stjóri, tveir vélstjórar, tveir stýri-
menn og matsveinn. Engir af þess-
um mönnum fara eftir samning-
um Sjómannafélags Reykjavíkur
og Útvegsmannafélags Reykjavík-
ur. Sjómannafélagi Reykjavíkur
var vel kunnugt um að vs. Freyja
RE 38 var í fullri útgerð og hreyfði
engum athugasemdum þar um
fyrr en að ofan getur.
Eftir að áhafnarmeðlimir voru
allt menn sem fóru eftir öðrum
samningum en Sjómannafélag
Reykjavíkur er aðili að, taldi ég
ljóst að Sjómannafélag Reykjavík-
ur hefði ekki frekari afskipti af
útgerð skipsins.
Svo reyndist þó ekki vera. Verk-
fallsverðir félagsins höfðu í hót-
unum við skipverja vs. Freyju RE
38 í gærdag, 13. júní, þegar skipið
átti að láta úr höfn. Báru þeir því
við, að það væri álit félagsins og
lögmanns þess, að ólögmætt væri
að skipið héldi til veiða. Þar sem
ekki náðist í iögmann félagsins
eða formann þess, þegar verkfalls-
verðir höfðu í hótunum ákvað ég
að fresta brottför, svo unnt yrði að
ná fundi með formanni og lög-
manni Sjómannafélags Reykja-
víkur vegna málsins.
Á fundi með formanni Sjó-
mannafélags Reykjavíkur árla á
föstudagsmorgun skýrði ég frá
sjónarmiðum mínum og afhenti
honum bréf til frekari skýringa.
Tjáði ég honum, að ég væri reiðu-
Fegrunarvikan
tókst mjög vel
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
fréttatilkynning frá Fegrunarnefnd
Reykjavíkurborgar.
I fréttatilkynningunni segir m.a.,
að fegrunarvikan í Reykjavík 1,—9.
júní hafi tekizt mjög vel. Mikil og
góð samvinna tókst með ibúum í
Reykjavik og borgaryfirvöldum um
að fegra og prýða borgina. Mikill
fjöldi manns færði sér í nyt marg-
vislega sérþjónustu borgarinnar í
tengslum við fegrunarvikuna.
Árangur varðandi hreinsun varð
að þessu sinni tífaldur á viö það
sem verið hefur í fegrunarvikum
fram til þessa. Áætlað hafði verið
að um eitt þúsund lestum af rusli
yrði ekið á haugana í fegrunarvik-
unni — ef vel tækist til. Niðurstað-
an varð hinsvegar allt önnur og enn
ánægjulegri. Samkvæmt upplýsing-
um frá hreinsunardeild borgarinn-
ar var farið með rösklega fjögur
þúsund lestir af rusli á haugana,
meðan á fegrunarvikunni stóð. Sú
tala á þó vafalítið eftir að hækka,
því að undirtektir borgarbúa við
áskorun borgaryfirvalda um
hreinsun voru svo góðar, að starfs-
menn hreinsunardeildar höfðu tæp-
ast undan og þess vegna er enn ver-
ið að sinna óskum um að fjarlægja
rusl.
Tugir manna höfðu samband við
skrifstofu garðyrkjustjóra dag
hvern í fegrunarvikunni til þess að
leita ráða í sambandi við gróður og
garða, enda er aukið ræktunarstarf
einn þáttur í því að prýða borgina
og snyrta.
Þótt fegrunarvikunni sé nú lokið
verður haldið áfram að fegra og
prýða borgina. Borgaryfirvöld og
fegunarnefnd Reykjavíkur beina
þeim tilmælum til fólks að það noti
sumarið til enn frekari fegrunar
höfuðstaðarins. Einkum er þess
farið á leit, að þau fyrirtæki, sem
enn hafa ekki tekið til á lóðum sín-
um vindi að því bráðan bug.
Reykjavíkurborg og starfsmenn
hennar munu sem fyrr leggja fólki
lið í því efni.
Þá vill Reykjavíkurborg og fegr-
unarnefnd borgarinnar koma á
framfæri þakklæti sínu til borg-
arbúa vegna hinna góðu undirtekta
sem fegrunarvikan hlaut.