Morgunblaðið - 16.06.1985, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. JÚNt 1985
KUKL í
HRÓARSKELDU
í siöasta sunnudagsblaöi var aö finna á
Þungamiöjunni grein um Hróarskelduhátíö-
ina, sem haldin veröur dagana 28. til 30. júní.
Ég sleppti þvi þá alveg aö minnast á aö
hljómsveitin Kukl ætti aö koma þar fram en
þaö var vegna þess aö ég var þess fullviss aö
nafn þeirra myndi skyggja svo á hin minni
nöfn eins og Clash, Paul Young, Leonard
Cohen og hvað þaö nú heitir þetta liö, svo ég
ákvaö aö geyma þaö í viku aö minnast á
Kuklið, meöan fólk væri aö átta sig á hinu.
Þeta er auövitaö ekki satt. Þaö sanna er
aö líklega hefur þeirra nafn ekki veriö á blaöi
því sem ég fékk hjá undirbúningsnefnd há-
tíöarinnar og þó gæti þaö allt eins hafa verið
þar, því blaöiö er horfiö. Ætli þaö hafi bara
ekki einhver svartagaldraö þaö í burtu,
ásamt þeim hluta greinarinnar, sem fjallaöi
um Kukliö, og ég man ekki hvort ég skrifaöi
eöa ekki.
Nú er ég aftur farinn aö rugla. En þaö er
aö minnsta kosti gaman til þess aö vita, aö
viö munum eiga fulltrúa á þessari einhverri
virtustu rokktónlistarhátíö, sem haldin er í
Skandinavíu á ári hverju, og ég er þess full-
viss aö Kukliö á hiklaust heima meöal þeirra
nafna, sem talin voru hér upp fyrir viku síð-
an.
þungA
MIÐJAN
GUNNLAUGUR SIGFUSSON
saman og Jane Wiedlin, sem raun-
ar hætti í hljómsveitinni í október
síöastliönum, er nú stödd í Lund-
únum, þar sem hún er aö vinna að
sólóplötu.
Bandaríska hljómsveitin REM,
sem hefur hlotiö mikla athygli
fyrir plötur sínar Murmur (1983) og
Reckoning (1984), hefur nú sent
frá sér nýja breiöskífu og kallast
hún Fables of the Reconstruction
og á henni er aö finna 11 lög.
Veröur spennandi aö heyra
þennan grip, þar sem REM er
tvímælalaust einhver athyglisverð-
asta hljómsveit Bandaríkjanna í
dag.
Scritti Politti hafa sent frá sér
nýja breiöskífu en þeir sendu
sína fyrstu og jafnframt einu
breiðskífu til þessa, Songs To
Remember, frá sér áriö 1982. Nýja
platan heitir Cupid & Psyche '85
og á henni er aö finna 11 lög, þar
af hafa aö minnsta kosti þrjú
þeirra áöur komiö út á litlum plöt-
um en þaö eru lögin Wood Beez,
Absolute og Hypnotize.
HVAÐ ER AÐ GERAST?
Nýútkomin er breiöskífa meö
hljómsveit, sem kallar sig
Willie & the Poor Boys. Er þar um
aö ræöa hugarfóstur Bills Wyman,
bassaleikara Rolling Stones, en
auk hans eru í hljómsveitinni
trommuleikarinn Charlie Watts,
Andy Fairwather-Low, sem leikur á
gítar og syngur (hann var í Amen
Corner hér áöur fyrr), gítarleikar-
inn Micky Gee og Geraint Watkins,
sem leikur á hljómborð og syngur.
Þeir hafa svo fengiö til liös viö sig
góða gesti, svo sem Jimmy Page,
Paul Rogers, Ray Cooper, Kenny
Jones, Chris Rea og Henry Spin-
etti.
Mun allur ágóöi af sölu plötu
þessarar renna til sjóðs sem nefn-
ist Ronnie Lane Appeal, sem
stofnaður hefur veriö fyrir
MS-sjúklinga en MS mun vera eftir
því sem ég kemst næst einhvers
konar hrörnunarsjúkdómur.
Fyrir þá sem ekki vita var
Ronnie Lane meðlimur hljómsveit-
anna Small Paces og Faces og
hann mun þjást af þessum sjúk-
dómi.
Patrick Moraz og Bill Bruford
eru um þessar mundir aö
senda frá sér nýja plötu, sem þeir
kalla Flags. Mun Moraz á plötu
þessari m.a. leika á hljómborö
sem kallast Kurtzwell 250 en þaö
mun vera fyrsti synthesizer sem
framleiddur hefur verið, sem hefur
snertiskynjara, en Robert Moog,
sá hinn sami og fann upp Mooginn
hér um árið, hefur unnið aö gerð
þessa hljóöfæris nú um árabil. Þá
mun Bruford einnig hafa tekiö
tækmna í liö meö sér en hann not-
ar m.a. Simmons SDS7 trommur
sem munu einhverjar fullkomnustu
rafmagnstrommur sem eru á
markaönum.
Og ef einhver vissi nú ekki
hverjir þessir menn eru, þá hefur
Bill Bruford starfað meö Yes, Gen-
esis, King Crimson ofl., en Moraz
meö Refugee, Yes, og nú síöast
Moody Blues auk þess sem hann
hefur sent frá sér nokkrar athyglis-
veröar sólóskífur.
Fyrir tveimur eða þremur mán-
uðum þurftu Thompson Twins
aö taka sér hvíld frá plötuupptök-
um og aflýsa öllum fyrirhuguöum
tónleikaferöum, þar sem höfuö-
paur flokksins, Tom Bailey, þjáöist
af ofþreytu á háu stigi. Nú eru þau
hins vegar byrjuð á plötunni aö
nýju eftir aö Tom hefur hvílst á
Barbados og sagt sig tilbúinn i
slaginn að nýju. Hann mun þó ekki
halda áfram aö stjórna upptökum
plötunnar en í hans staö mun Nile
Rogers sjá um þann hluta verks-
ins. Rogers bauö sig fram þegar
hann frétti hvernig komiö væri fyrir
Bailey.
Þaö er annars merkilegt hvernig
Nile Rogers finnur sér tíma til þess
aö klára allt þaö sem hann tekur
aö sér. Hann hefur t.d. á síöast-
liönum 12 mánuöum og varla þaö,
stjórnað upptökum á plötum fyrir
Duran, Duran, Madonnu, Mick
Jagger, Jeff Beck o.fl. Auk þess
hefur hann verið aö vinna aö sóló-
plötu, sem nú er aö koma út undir
nafninu B-Movie Matinee og af
henni hefur lagiö Let’s Go Out
Tonight veriö gefiö út á lítilli plötu.
Phil Oakey hefur að undan-
förnu verið aö taka upp lög
undir stjórn Giorgios Moroder og
ný lítil plata meö laginu Goodbye
Bad Times kom á markaö í vikunni
sem nú er nýliöin. Stór plata mun
svo líta dagsins Ijós þegar nær
dregur vetrarmánuöum.
Þrátt fyrir þetta hefur Oakey
ekki gleymt sínu aöalstarfi, sem er
meö Human League, því þau eru
um þessar mundir að vinna að
nýrri breiskífu. Þau voru þrjú ár að
gera þá síöustu sem kom út í fyrra,
svo þessi litur ef til vill dagsins Ijós
einhverntíma um mitt ár 1987.
Hljómsveitn Go Go’s, sem
mikilla vinsælda naut hér á
landi fyrir nokkrum árum, er hætt
störfum. Raunar hafa þessar fréttir
komið fremur á óvart, þar sem
þær hafa alltaf selt töluvert af plöt-
um, þó svo aö sú fyrsta hafi vissu-
lega notiö mestra vinsælda. Þá
hlutu breiöskifur þeirra líka yfirleitt
fremur jákvæöa gagnrýni enda var
hér um athyglisveröa kvenna-
hljómsveit aö ræöa.
Þessar konur eru þó síöur en
svo sestar í helgan stein. Aðal-
söngkonan Belinda Carlisle ætlar
aö gera sólóplötu en henni til aö-
stoðar veröur gítarleikarinn Charl-
otte Coffey. Hinn gítarleikari
hljómsveitarinnar, Katherine Val-
entine, og trommuleikarinn, Gina
Schock, ætla aö stofna hljómsveit
Hljómsveitin Squeeze er nú
komin saman aö nýju eftir
tveggja til þriggja ára hié. Þeir hafa
nú þegar sent frá sér litla plötu
meö laginu Last Time Forever og
um þessar mundir munu þeir
dvelja lengstum í stúdíói í Belgíu,
þar sem þeir eru aö leggja síöustu
hönd á nýja stóra plötu.
Paul Hardcastle, sem um þess-
ar mundir nýtur mikilla vin-
sælda fyrir lagiö 19, hefur veriö
beöinn að semja lag í sjónvarps-
þátt, sem stendur til aö gera. Mun
þáttur þessi eiga aö fjalla um spill-
ingu innan bresku lögreglunnar.
Hardcastle mun hinn ánægöasti
yfir að hafa verið faliö þetta verk-
efni þar sem hann segir lögregluna
eilíflega hafa verið á eftir sér þegar
hann var yngri og hann hugsar sér
þess vegna sjálfsagt gott til glóö-
arinnar nú.
Hljómplötufyrirtækiö ZTT, sem
m.a. hefur gefiö út plötur
Frankie Goes to Hollywood, hefur
nú sent á markaö smáskífu með
laginu Wild Hearts, sem flutt er af
Roy Orbison. Hann var sem kunn-
ugt er (þeim eldri) helst þekktur
fyrir lagið Only the Lonely, sem
kom út fyrir 25 árum og þaö eru
15 ár síöan hann sló síöast i gegn
í Bretlandi með laginu Penny Arc-
ade. Wild Hearts hefur þegar ööl-
ast nokkrar „kúltur“-vinsældir í
Bretlandi. Já, ævintýri gerast enn.