Morgunblaðið - 16.06.1985, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1985
Gamlir og
þreyttir
Hljómplötur
Sigurður Sverrisson
Slade
Rouges Gallery
RCA/Skífan
Það er ekki sannfærandi
byrjun á nýrri breiðskífu að
tefla Run,. Runaway fram
nánst óbreyttu undir nýju
heiti, Hey Ho Wish You Well.
Run Runaway var að finna á
síðustu plötu Slade og var lík-
ast til aðal „hittið“ á þeirri
skífu. Svo hrifnir virðast
fjórmenningarnir hins vegar
vera af þessari lagasmíð að
þeir nota hana nánast
óbreytta í áður umræddu lagi
og hluti hennar gægist einnig
fram í laginu I’ll Be There.
Svona ofnotkun veit ekki á
gott.
Slade var á allra vörum
fyrir góðum áratug og kom
m.a. hingað til Islands i
heimsókn og trylli lýðinn í
Laugardalshöllinni. Eftir
þetta, þ.e. velgengnisskeiðið í
byrjun áttunda áratugarins,
ekki íslandsförina, hvarf
sveitin af sjónarsviðinu að
mestu en leystist þó aldrei
upp eins og svo margir héldu.
Um 1980 fór Slade að skjóta
upp kollinum á ný og þá með
sama gamla fríska rokkinu.
Diskófárið var þá að syngja
sitt síðasta og fjöldinn heimt-
aði kraftmikið rokk.
Það var svo í fyrra að þeir
Noddy Holder og félagar
hittu naglann rækilega á höf-
uðið með lögum á borð við My
Oh My og Run, Runaway.
Slade var aftur á allra vörum
en svo virðist sem þeir félag-
ar hafi gleymt því í öllu
moldviðrinu hvað það var
sem fleytti þeim á toppinn
aftur. Það voru ekki fáguð
rokklög í silkiútsetningum
með hljóðgervlum ofan á öllu
saman heldur óbeislaður
kraftur. Krafturinn er á bak
og burt. Holder og félagar eru
að verða gamlir og það heyr-
ist á þessari plötu.
Gott og vel, rödd hans er
lítið ef nokkuð breytt, hljóð-
færaleikurinn er svipaður en
það er komin þreyta í lögin.
Svo mikil að ekki eitt einasta
þeirra stendur upp úr á þess-
ari plötu. Heiðarleg tilraun er
gerð til þess að ná til fjöldans
í lögum á borð við 7 Year
Bitch og Time To Rock en hún
tekst einfaldlega ekki. Ég er
hræddur um að Slade verði
að gera betur næst ef annað
gleymskuskeið á ekki að
renna upp.
Rithöfundur í
Kína fær loks
uppreisn æru
Peking. AP.
HEILDARSAFN verka rithöfundar-
ins Qu Quibai, sem var tekinn af lífi
í Kína af Þjóðernissinnaflokki
landsins fyrir fimmtíu árum, verður
gefið út með glæsibrag innan fárra
vikna.
Stjórnvöld hafa undanfarið lok-
ið miklu lofsorði á Qu og sagt að
hann hafi með verkum sínum lagt
grundvöllinn að samtíma bók-
menntum í Kína. Auk þess hafi
hann verið einlægur marxisti og
eindreginn byltingarsinni.
Qu var líflátinn árið 1935, þá 36
ára gamall. í menningarbylting-
unni í Kína voru verk hans bönnuð
og úthrópuð.
GORI viðarvörn
Nýtt tré/
þrýstigagn-
varið tré
Meðferð á
nýjum viði.
Yfirborðsmeðferð/viðhald
GORI 88 viöhaldist aðeins
meö GORI 88
GORI 55 er haldiö viö meö
GORI 55 eöa GORI 88
GORI 44 er haldið viö meö
GORI 44, GORI 55 eða GORI 88
Þrýstigagn-
varið tré
GORI Træolie
GORI Træolie, GORI er
haldiö viö með GORI Træ-
olie, GORI 44 eða GORI 88
Notið GORI22 grunnvörn á
nýjan viðsem ekki er með GORI
vakú mgagnvörn.
GORI
22
Notið GORI44, GORI55
eða GORI88 yfirborðsefni til
viðhalds. Pað hindrar viðinn í að
rifna, mislitast og að sveppir og
skordýr komist í hann.
GORI
44
55
88
GORI verksmiðjan sérhæfir sig íframleiðslu á
viðarvarnarefnum og er stœrsta verksmiðja
sinnar tegundar á norðurlöndum.
í GORI verksmiðjunni starfar fjórði hver maður
við rannsóknir, enda framleiðir GORI bestu
fáanleg efni til viðhalds og verndunar á timbri.
Ö/GORI *
GORI Træolie, tll
viðhalds á þrýsti-
gagnvörðum við.
GORI Interiör, er
yfirborðsvörn á
innanhússvið.
GORI Alge-
Fjerner, til eyð-
ingar á sveppum
og mosa á tré.
GORI22, er
grunnur og
djúpvörn.
GORI44, er viðar-
frfskandi yfir-
borðsvörn.
GORI55, er leka-
frítt varanlegt
yfirborðsefni.
GORI88, er leka-
frftt varanlegt
yfirborðsefni,
slettist hvorki né
lekur.
Neita Bretar
að borga
bjórfroðuna?
London. AP.
BRETAR ættu ekki að þurfa aó
borga fyrir froóuna sem setzt á bjór-
inn, segir í ríkisskipaóri nefnd sem
var sett á laggirnar til þess að kanna
ástand og horfur í bjórmálum Bret-
lands.
Árlega drekka Bretar 1,4 millj-
arða lítra af bjór og borga þeir
milljónir ef ekki milljarða fyrir
froðuna eina saman. Nefndin kem-
ur með ýmsar tillögur til úrbóta
og niðurstaða hennar er að þaö sé
réttlætismál að Bretar fái það
fyrir sinn snúð sem þeir borga
fyrir — fulla kollu af froðulausum
bjór.
Um þetta hafa þegar spunnizt
miklar umræður í Bretlandi og
sýnist sitt hverjum, að sögn AP.
Sumir bjórmenn segja að froðan
sé „punkturinn yfir i-ið — það sem
ræður úrslitum um að njóta
drykkjarins". Virðist mega draga
ályktun af frásögnum og viðbrögð-
um að í uppsiglingu sé mál, sem
Bretar hyggi gott til að geta karp-
að um á krám á næstunni.
19. júní
ársrit KRFÍ
komið út
19. júní, ársrit Kvenréttindafélags
íslands, kemur nú út í 35. sinn.
I fréttatilkynningu frá kven-
réttindafélaginu kemur fram að í
blaðinu sé meðal annars að finna
greinaflokk þar sem fjallað er um
konur og ofneyslu lyfja, konur og
reykingar, konur og getnaðar-
varnir og konur og áfengi. Bent er
á að í mörgum tilfellum sé munur
á árangri sömu meðferðar vegna
ofneyslu vímugjafa eftir þvi hvort
sjúklingurinn er karl eða kona.
í blaðinu er ennfremur að finna
úttekt á því hvernig heimilisstörf
eru metin, en sum stéttarfélög eru
farin að meta þau til starfsaldurs
að einhverju leyti. Einnig er þar
að finna hringborðsumræður við
konur úr fjórum láglaunafélögum
þar sem þær lýsa andúð sinni á
bónusvinnu og bágbornum kjörum
sínum eins og segir í fréttatil-
kynningunni.
Ritstjóri blaðsins er Fríða
Björnsdóttir.