Morgunblaðið - 29.06.1985, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 29.06.1985, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ1985 Nýr skáli í Surtsey MYNDIN er af hinum nýja skála í Surtsey sem Surtseyjarfélagid hef- ur látið reisa þar, en hann er stað- settur annars staðar á eyjunni en gamli skálinn, sem er á þeim hluta eyjunnar sem sjórinn hefur stöð- ugt unnið á. Ef kortið prentast vel má sjá gamla skálann við ofanverðan tangann, en stöðugt gengur á eyjuna þar og má búast við að skálinn verði hafinu að bráð er fram líða stundir. Nýji skálinn er neðarlega fyrir miðju korti og stendur hann á móbergi á þeim hluta eyjunnar sem talin er traustastur og minnst hefur lát- ið á sjá á undanförnum árum. Grænlendingar höfnuðu 7 % sem jafngildir 49 þús. tonnum: Ágreiningurinn um land- helgislínu torveldar lausn — segir Halldór Ásgrímsson, sjáyarútvegsráðherra EKKI fannst neinn flötur á að taka á nýjan leik upp viðræður um skiptingu kvóta íslandsloðnunnar á milli íslendinga, Norðmanna og Grænlendinga í Borgarnesi í gær, og héldu viðræðunefndirnar frá Borgarnesi seinni partinn í gær og ríkir nú algjör óvissa um hvert framhaldið verður. Samkvæmt heimildum Morgun- jafnframt að ekkert hefði verið blaðsins, þá héldu Norðmenn fast við það, að þeir færu ekki niður fyrir 13% heildaraflans, en þeir hafa nú 15%. íslendingar höfðu hins vegar boðið Grænlendingum að lækka sig úr 85% í 80%. Þannig hefðu 7% komið í hlut Grænlend- inga, sem jafngildir 49 þúsund lestum, miðað við upphaf þessa kvóta nú. Þetta er mun meiri loðna en líklegt er að Grænlend- ingar muni veiða eða framselja. „Ég er mjög vonsvikinn yfir því að ekki náðist samkomulag á þess- um fundum, en það gerir það að verkum að málið er áfram í óvissu,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær, eftir að ljóst varð að af frekari viðræðum nefndanna yrði ekki að ræða að þessu sinni. Halldór sagði að Grænlendingar hefðu skuidbundið sig, samkvæmt samningi sem Efnahagsbandalag Evrópu hefði gert, til þess að heimila Færeyingum að veiða 10 þúsund tonn. Hvað gerðist um- fram það, sagðist sjávarútvegs- ráðherra ekki vita. Hann sagði ákveðið um frekari fundi þessara viðræðunefnda. Sjávarútvegsráðherra sagðist verða að trúa því að hægt væri að ná samkomulagi þessara þriggja þjóða um skiptingu íslandsloðn- unnar, þótt það hefði gengið afar illa fram til þessa. „Það er erfitt fyrir mig að meta, í hvaða veru slíkt samkomulag gæti orðið," sagði Halldór, „en við höfum lagt á það áherslu að eina leiðin til þess að ná þessu saman sé að byggja á vísindalegum upplýsing- um sem við höfum. Það sem á hinn bóginn hefur gert málið allt mun erfiðara, er að ekki liggur fyrir samkomulag milli Noregs og Grænlands um landhelgislínu milli landanna. Þar af leiðandi hefur verið erfiðleikum bundið að deila magninu sem er utan við lögsögu íslands milli landanna." Kristján Páll Sigurðsson látinn LÁTINN er í Reykjavík, Kristján Páll Sigurðsson, bóndi og hrepp- stjóri á Grímsstöðum á Fjöllum. Kristján fæddist 8. febrúar 1906 á Grímsstöðum á Fjöllum, sonur hjónanna Sigurðar Kristjánssonar, bónda og hreppstjóra þar, og konu hans Kristjönu Pálsdóttur. Kristján lauk prófi frá Gagn- fræðaskólanum á Akureyri 1925 og kenndi í Fjallahreppi frá Ófremdarástand í símamálum á Suðurlandi: Fyrirtæki á Hellu með simaþjónustu í Reykjavík GLERVERKSMIÐJAN Samverk á Hellu auglýsti nýlega í útvarp- inu ásamt nokkrum öðrum fyrirtækjum þar eystra. Bentu fyrirtæk- in viðskiptavinum sínum á að hringja í umboðsskrifstofu sína hér í Reykjavík, frekar en að reyna að ná sambandi austur. Að sögn starfsmanns í Gler- verksmiðjunni Samverki er eins og símkerfið teppist yfir daginn. Þá er ómögulegt að ná austur frá Reykjavík og í símtækin eystra fæst enginn sónn. Þetta væri að sjálfsögðu mjög bagalegt fyrir fyrirtæki sem þyrftu að vera í stöðugu sambandi við viðskipta- menn sína og því hefði verið brugðið á það ráð að láta öll símaviðskipti fara gegnum um- boðsskrifstofuna í Reykjavík. Jón Skagfjörð, stöðvarstjóri Pósts og síma á Selfossi, sagði ástandið alls ekki vera svona slæmt allsstaðar á Suðurlandi; hvergi brygðist símkerfið eins gjörsamlega og kringum Hellu og Hvolsvöll. Hann sagði sím- stöðina á Selfossi vera eina af síðustu símstöðvunum með gamla laginu, sem settar voru upp áður en farið var að koma fyrir stafrænum símabúnaði hérlendis og þjónaði hún svæð- inu kringum sig ennþá allvel. Jón taldi ástæðurnar fyrir þessu ófremdarástandi í austursýsl- unni vera þær að notendum hefði fjölgað jafnt og þétt síðustu árin án þess að komið væri til móts við þá fjölgun á nokkurn hátt. Ennfremur taldi hann að fólk notaði símann mun meira nú orðið en áður hefði verið. „Við gerum okkur vel Ijóst að ástandið er sumsstaðar bágbor- ið,“ sagði Kristján Helgason, um- dæmisstjóri hjá Pósti og síma, pegar Morgunblaðið bar þetta undir hann. „Stórir símnotendur einoka kerfið þegar álagið er mest því línurnar suður eru of fáar. En hluta af vandamálinu má þó skrifa á reikning langlínu- stöðvanna hér í Reykjavík, sem eru ekki nógu öflugar til að geta annað því mikla álagi sem þær eru undir. Sagði Kristján þetta þó horfa til betri vegar, því nú um þessar mundir væri verið að setja upp stafrænar símstöðvar á Hellu og Hvolsvelli. Mætti því búast við að símamál á Suður- landi yrðu komin i viðunandi horf einhverntíma næsta vetur. Páll Björgvinsson, forstjóri Samverks á Hellu, sagði í sam- tali við blaðamann að hann hefði heyrt keimlík loforð um það bil árlega síðastliðin fimmtán ár eða svo. „Ástandið hefur lengi verið slæmt, en í stað þess að batna hefur það sífellt versnað," bætti hann við. Að hans sögn er það deginum ljósara að þessum mál- um þarf að koma í samt Iag eins fljótt og auðið er. nHér gæti heilt hús brunnið til kaldra kola án þess að nokkur hefði hugmynd um það,“ sagði hann. „Það er í rauninni mesta mildi að enn skuli ekkert slíkt hafa gerst." Páll sagðist hafa verið í Hvera- gerði nýlega og rætt þar við fólk sem hefði haft svipaða sögu að segja, svo hann áleit að þessi vandi væri ekki bundinn við Hellu og Hvolsvöll. Hann vildi að lokum taka það fram að hann sæi ekki ástæðu til að rengja yfir- menn símamála ef þeir fullyrtu að bráðum yrði bundinn endi á þetta símahallæri. Þeir yrðu þó að gera sér ljóst að öryggi fjölda fólks væri stefnt í hættu dragist lausn þessa vandamáls enn á langinn. 1925—1939, nema veturinn 1937. Hann gerðist vegaverkstjóri ár- ið 1930 og bóndi á Grímsstöðum 1939. Hann varð skólanefndar- maður 1938 og formaður nefnd- arinnar frá 1954. Settist i sýslu- nefnd 1954 og varð hreppstjóri í Fjallahreppi 1956. Hann var einn af stofnendum Ungmenna- félags Fjallahrepps og var for- maður félagsins lengi. Kristján kvæntist 1939 Aðal- björgu Vilhjálmsdóttur og eign- uðust þau 4 börn. Öruggur sigur á Hollendingum ÍSLENSKA A-landsliðið sigraði Holland 26:18 á Flugleiðamótinu í handknattleik í Hafnarfirði í gær- kvöldi. B-landslið íslands tapaði hins vegar í gærkvöldi fyrir Norð- mönnum í Keflavík, 21:22. Fiskvinnslan á Suðurnesjum: Vandinn enn hrikalegri en lýst er í svörtu skýrslunni „Erfiðleikar fiskvinnslunnar hér á Suðurnesjum eru jafnvel enn hrika- legri en lýst er í þessari skýrslu, því hér eru fyrirtækin þegar farin að leggja upp laupana," sagði Einar Kristinsson, formaður Félags fisk- vinnslumanna á Suðurnesjum, er hann var spurður álits á svörtu skýrsl- unni um sjávarútveginn, sem greint var frá í Morgunblaðinu á föstudag- inn sl. Einar sagði að það sem af væri þessu ári hefðu tvö frystihús á Suðurnesjum orðið gjaldþrota og við óbreytt ástand stefndi allt í að fleiri fiskvinnslufyrirtæki yrðu að hætta rekstri á næstu vikum og mánuöum. „Staðan hér í fiskvinnslunni er ákaflega slæm, svo vægt sé til orða tekið,“ sagði Einar enn- fremur. „Lausafé í fyrirtækjun- um er allt uppurið og grundvöll- ur fyrir áframhaldandi rekstri er ekki fyrir hendi. Verði ekkert að gert á næstu vikum þá stöðv- ast þetta af sjálfu sér og við föll- um bara hver af öðrum. Það hef- ur því miður ekkert verið tekið á þessum málum, nema að lánum var skuldbreytt til lengri tíma, en fjármagnskostnaðurinn er orðinn svo hrikalegur að hann er orðinn meiri en vinnulaunalið- irnir. Fjármagn hér á íslandi er orðið dýrasta fjármagn í heimi. við þetta bætast svo allar hækk- anir, svo sem síðasta fiskverðs- hækkun og siðustu launa- hækkanir, auk annarra hækk- ana, sem við höfum ekkert bol- magn til að rísa undir, einfald- lega vegna þess að fjármagn er ekki fyrir hendi. Á sama tíma hefur dollarinn lækkað, úr rúm- um 44 krónum í 41 krónu, sem er skref aftur á bak, og hvert eigum við að senda reikninginn?" Einar sagði að einn alvarleg- asti þátturinn í þessu máli væri að þenslan á vinnumarkaðnum hefði verið svo mikil, að fólks- flóttinn úr fiskiðnaði ykist hröð- um skrefum og að með sama áframhaldi yrði ekkert fólk eftir til að vinna í fiski. Einar kvaðst sammála mörgum atriðum skýrslunnar hvað varðaði úrbæt- ur í þessum efnum. Hann sagði að grundvallaratriði fyrir áframhaldandi rekstri í fisk- vinnslunni væri að fjármagns- kostnaður lækkaði, erlendar lán- tökur yrðu stöðvaðar og að út- sala á gjaldeyri yrði tafarlaust stöðvuð. „Það þýðir ekki að segja okkur að framleiða vöru á 10 krónur sem kostar 15 krónur að framleiða, þaö er gjörsamlega útilokað", sagði Einar Kristins- son.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.