Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNl 1985
........—1 111> ! " 1"" ' ~~—r-:-
ÚTVARP / S JÓN VARP
Tveir
víkingar
r
Eg hafði mjög gaman af rabb-
þættinum á rás II í fyrrafcveld
þar sem Ragnheiður Davíðsdóttir
ræddi við Hrafn Gunnlaugsson
kvikmyndaleikstjóra og handrits-
höfund. Hrafn var einstaklega ljúf-
ur og lítillátur í þessum þætti og
saknaði ég að vissu leyti þess eld-
móðs, er einkenndi hann hér á ár-
um áður, en við eldumst jú og sjá-
um þá kannski heiminn í mildara
ljósi.
Annars virði ég Hrafn hvað mest
fyrir þá sök að hann er trúr sínu
einstaklingseðli. Kom reyndar
glöggt fram í fyrrgreindu spjalli,
að Hrafn teldi sig ætíð vera að
stikla á móti straumnum, slíkt
væri honum eðlislægt. Ég skildi
ekki orð Hrafns sem svo, að þau
væru mælt af þvergirðingshætti,
þvert á móti þá kysi hann að taka
persónulega afstöðu til hvers máls,
fremur en að fylgja einhverjum
hugsanastraumum úti í bæ. Til
allrar hamingju býr Hrafn í landi
þar sem menn hafa leyfi til að taka
persónulega og sjálfstæða afstöðu
til hvers máls, en þurfa ekki stöð-
ugt að bíða eftir því að valdhafinn
opinberi vilja sinn. í slíku and-
rúmslofti óheftra skoðanaskipta
blómstra miklir listamenn á borð
við Hrafn Gunnlaugsson. Þar sem
hugsunin er hins vegar keyrð inná
afmarkaðar brautir, er renna sam-
an við hugsanabrautir i heila
valdhafans, verða listamennirnir
annaðhvort andlegir vanskapn-
ingar eða þægir undirmálsmenn.
Já, svo sannarlega var Hrafn
heppinn að fæðast í landi vík-
inganna, þar sem menn nenna enn
að bíta í skjaldarrendur, í stað þess
að segja bara Hi-C.
Helgi
En við kynntumst ekki bara vík-
ingnum Hrafni Gunnlaugssyni í
fimmtudagsdagskránni, á rás I var
annar víkingur mættur til leiks,
sjálfur Helgi Hálfdanarson er hef-
ur öðrum fremur lagst f víking í
heimi orðsins og flutt heim ger-
semi í langskipi sínu, oft úr fjar-
lægum álfum. Helga þáttur var á
dagskrá klukkan 20.40 og var sá
fyrsti í þáttaröð er ber nafnið Er-
lend Ijóð frá liðnum árum. Kristján
Árnason er umsjónarmaður þessa
þáttar og hefir hann í hyggju að
kynna ljóðaþýðingar Helga næstu
fimmtudaga á sama tíma. 1 fyrsta
þætti lagðist Helgi í víking suður
til Róms, Frakklands og Spánar og
færði okkur sonnettur meðal ann-
ars úr smiðju Michelangelo Buon-
arroti sem hingaðtil hefir fremur
verið kenndur við höggmyndasmíð
og freskumálverk. Erlingur Gísla-
son las sonnetturnar með miklum
tilþrifum og fannst mér honum
takast best upp í hinum léttfleyg-
ari, jarðbundnari hendingum, en
meira um víkinginn Helga Hálf-
danarson síðar.
Hi-C
Ég minntist hér áðan á orðskríp-
ið Hi-C sem er nafn á nýjum svala-
drykk. Er ég sá fyrst þetta orð-
skrípi hvarflaði sú hugsun að mér
hvort hér væri stigið fyrsta skrefið
í þá átt að búa til tölvumál, eins-
konar Nýlensku að hætti Stóra-
bróður er nota mætti í sjálfvirkum
mannlausum afgreiðslustöðvum. 1
slíkum stöðvum nægði að segja við
huggulegt vélmennið: da-da-mu-
mu-mu-da-hi-c-da-h-2-0, og eftir
smástund birtust tveir Disco Fried
Chicken ásamt einu glasi af Hi-C
og einu vatnsglasi. Ég held að hér
sé brýn þörf að bíta í skjaldarrend-
ur og kveðja til vikinga á borð við
Helga Hálfdanarson nema lands-
lýður vilji liggja hundflatur fyrir
erlendri tísku.
ólafur M.
Jóhannesson
Ligga
ligga
lá
■■■■ Þátturinn
1 A 00 »Ligga ligga lá“
A — er á dagskrá
rásar 1 í dag klukkan
14.00 og er hann sá síðasti
sem Sverrir Guðjónsson
og Hrannar Már Sigurðs-
son sjá um. Nýr umsjón-
armaður tekur við í júlí,
Emil Gunnar Guð-
mundsson leikari.
Sverrir sagði í samtali
við Morgunblaðið, að
lokahljóðagetraunin yrði
leikin í þættinum í dag.
„Krakkarnir hafa verið
mjög dugleg að taka þátt í
getrauninni, en eitt af
markmiðum þáttanna var
að víkka út hljóðheim
barna og mig langar til að
hvetja foreldra barna til
að halda áfram á sömu
braut, að vera vakandi
gagnvart umhverfishljóð-
um og spila fjölbreytilega
tónlist fyrir börn sín.
Ég mun ljúka við sög-
una um hann Skjóna eftir
Nínu Tryggvadóttur og
dregið veður til verðlauna
úr síðustu hljóðagetraun.
Einnig hef ég fengið nokk-
ur bréf þar sem krakkarn-
ir segja mikið frá sjálfum
sér og hvað þau eru að að-
hafast þessa dagana. Við
Hrannar munum lesa
nokkur bréfanna, en ég
ætla bara að vona að hann
Hrannar fari nú að haga
sér almennilega. Hann er
alltaf að hverfa og hann
hefur ekki viljað skila
mér töfralampanum sem
hann tók á sínum tíma,“
sagði Sverrir að lokum.
Lögfræðingurinn og móðursystirin: Gable og Loren.
„Það hófst í Napólí
- bandarísk bíómynd frá 1960
■■■1 Bandarísk
01 05 bíómynd frá ár-
inu 1960 er á
dagskrá sjónvarpsins í
kvöld klukkan 21.05 og
heitir hún „Það hófst í
Napólí“ (It Started in
Naples). Leikstjóri er
Melvilla Shavelson og
með aðalhlutverkin fara
Clark Gable, Sophia Lor-
en, Vittorio de Sica og
Marietto.
Söguþráðurinn er á þá
leið að bandarískur lög-
fræðingur fer til Napólí
til að ganga frá málum
látins bróður síns. Munað-
arlaus drengur og fögur
en skapstór móðursystir
hans baka þó lögfræð-
ingnum ýmsa erfiðleika.
Kvikmyndahandbókin
gefur myndinni þrjár
stjörnur af fjórum mögu-
legum og segir jafnframt
að myndin sé mjög fyndin
og landslagsfalleg, en
mynd þessi var tekin á ít-
alíu. Handbókin minnist á
það einnig, að Gable og
Loren bregðist ekki í leik
sínum í þessari mynd
fremur en fyrr.
Hljómsveitin „Imperiet“
■■■■ Þáttur frá
00 30 hljómleikum
—— sænsku rokk-
sveitarinnar „Imperiet“ á
ferð hennar um Norður-
lönd í vetur verður á
dagskrá sjónvarpsins í
kvöld klukkan 20.30.
Hljómsveitin lék hér á
Norrokk-tónleikum 1984.
„Imperiet” hefur verið
starfandi í tvö ár. Hana
skipa: Joakim Tháström,
söngur og gítar, Christian
Falk, bassi, Pár Olov
Hágglund, hljómborð, og
Fred Asp, trommur.
í kynningu segir, að
hljómsveit þessi hafi allt
til að bera, sem krafist er
af góðri rokkhljómsveit:
kraft, innlifun, spilagleði
og skemmtilega sviðs-
framkomu, góð lög,
ágengni og frábæra texta.
„Imperiet“ hefur spilað
á 70 tónleikum sl. tvo og
hálfan mánuð. Einnig hef-
ur hljómsveitin gefið út
þrjár plötur.
Helgar-
útvarp
barna
■■I Helgarútvarp
| rj 05 barna verður á
M. I — rás 1 klukkan
17.05 í umsjá Vernharðs
Linnets.
í Helgarútvarpinu í dag
skipa íþróttir og útilíf enn
hæsta sess, en þar kennir
einnig fleiri grasa og hafa
starfsmenn þáttarins
komið víða við í vikunni.
Þá er einnig rétt að minna
á hina bráðskemmtilegu
framhaldssögu Þorsteins
Marelssonar sem hann
flytur sjálfur.
Hring-
borðið
■MH „Hringborðið“ í
| rr 00 umsjá Árna
1 4 — Þórarinssonar,
er á dagskrá rásar 2 í dag
klukkan 17.00.
í þættinum í dag verða
gestir þau Ómar Valdi-
marsson, leiðtogi blaða-
mannafélagsins, Eggert
Þorleifsson leikari og
tónlistarmaður og Kristín
Þorsteinsdóttir dagskrár-
gerðarmaður.
„Hringborðið" er léttur
rabbþáttur með tónlist-
arívafi. Leikin verður
tónlist sú sem helst er á
döfinni í hvert skipti og
einnig verður fitjað upp á
öðru sem upp kemur í
hvert skipti," sagði Árni í
samtali við Morgunblaðið.
UTVARP
LAUGARDAGUR
29. júnl
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. Tónleikar. Þulur velur
og kynnir 7.20 Leikfimi.
Tónleikar.
7A5 Daglegt mál. Endurt.
páttur Valdimars Gunnars-
sonar frá kvöldinu áöur
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morg-
unorð — Torfl Ólafsson tal-
ar.
8.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr).
Tónleikar
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga
Þ. Stephensen kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Óskalög sjúklinga
frh.
11.00 Drðg úr dagbók vikunn-
ar. Umsjón Páll Heiðar
Jónsson.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12J0 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
14.00 Ligga ligga lá. Umsjónar-
maður: Sverrir Guðjónsson.
14J0 Listagrip. Þáttur um listir
og menningarmál I umsjá
Sigrúnar Bjömsdóttur.
15.20 .Fagurt galaði fuglinn
sá" Umsjón: Siguröur Ein-
arsson.
164» Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
18.20 Slödegistónleikar.
Martha Argerich leikur pl-
anótónlist eftir Frédéric
Chopin. a Sónata nr. 3 I h-
moll op. 58. b. Pólonesa nr.
7 I As-dúr op. 61.
17.00 Fréttir á ensku
17.05 Helgarútvarp barnanna.
Stjórnandi: Vernharður Linn-
et.
17.50 Slðdegis I garðinum með
Hafsteini Hafliðasyni
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18j45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkyhningar.
19.35 Sumarástir. Þáttur Sig-
nýjar Pálsdóttur. ROVAK.
20.00 Harmonikuþáttur. Um-
sjón: Högni Jónsson.
20.30 Utilegumenn. Þáttur I
umsjá Erlings Siguröarsonar.
RUVAK.
21.00 Kvðldtónleikar. Þættir úr
sigildum tónverkum.
21.40 „Leyndarmár, smásaga
eftir Bernard MacLaverty.
Erlingur E. Halldórsson les
þýðingu slna.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Náttfari. Gestur Einar
Jónasson. RÚVAK.
23.35 Eldri dansarnir.
24.00 Miönæturtónleikar. Um-
sjón Jón örn Marinósson.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá rás 2 til kl.
3.00.
i
SJÓNVARP
I
16.00 Páfamessa I Péturskirkj-
unni
Bein útsending frá Vatlkan-
inu, Róm. Jóhannes Páll II
páfi vlgir biskupa og erki-
biskupa til embætta og flytur
ræðu. Viö vlgslumessuna
flytur Fllharmonluhljómsveit
Vinarborgar ásamt tvelmur
kórum og einsöngvurum
„Krýningarmessu" eftir
Wolfgang Amadeus Mozart.
Herbert von Karajan stjórn-
ar. (EBU, Mexlkanska og It-
alska sjónvarpið.) Fáist ekki
gervihnattarsamband fellur
þessi dagskrárliöur niöur en
(þróttir hefjast kl. 16.00.
184» iþróttir
Umsjónarmaður Bjarni Fel-
LAUGARDAGUR
29. júnl
19.25 Kalli og sælgætisgeröin
Fimmti þáttur. Sænsk teikni-
myndasaga I tfu þáttum gerö
eftir samnefndri barnabók
eftir Roald Dahl. Þýðandi:
Jóhanna Jóhannsdóttir.
Sögumaður Karl Agúst
Ulfsson. (Nordvision —
Sænska sjónvarpiö.)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
204Í5 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sambýlingar
Fimmti þáttur. Breskur gam-
anmyndaflokkur I sex þátt-
um. Þýðandi: Guðni Kol-
beinsson.
21.05 Það hófst I Napóll
(It Started in Naples).
Bandarlsk blómynd frá
1960.. Leikstjóri: Melville
Shavelson. Aðalhlutverk:
Clark Gabie, Sophia Loren,
Vittorio de Sica og Marietto.
Bandarlskur lögfræöingur fer
til Napóll til aö ganga frá
málum látins bróður slns.
Munaöarlaus drengur og
fögur en skapstór móður-
systir hans baka |dó lögfræö-
ingnum ýmsa erfiðleika.
Þýðandi: Veturliöi Gunnars-
son.
22.30 Hljómsveitin Imperiet
Þáttur frá hljómlelkum
sænsku rokkhljómsveitarinn-
ar „Imperiet" á ferö hennar
um Norðurlönd I vetur.
Hljómsveitin lék hér á Nor-
rokk-tónleikum 1984.
23A5 Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR
29. júní
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Anna S. Mel-
steð og Ragnheiður Davlðs-
dóttir.
14.00—16.00 Við rásmarkiö
Stjórnandi: Jón Ólafsson
ásamt Ingólfi Hannessyni og
Samúel Erni Erlingssyni,
Iþróttafréttamönnum.
16.00—17.00 Listapopp
Stjórnandi: Sigurður Þór
Salvarsson.
17.00—18.00 Hringborðið
Stjórnandi. Arni Þórarinsson.
Hlé.
20.00—21.00 Llnur
Stjórnendur: Heiðbjört Jó-
hannsdóttir og Sigrlður H.
Gunnarsdóttir.
21.00—22.00 Djassspjall
Stjórnandi: Vernharður Linn-
et.
22.00—23.00 Léttur I lundu
Stjórnandi: Einar G. Einars-
son.
23.00—24.00 Svifflugur
Stjórnandi: Hákon Sigur-
jónsson.
24.00—03.00 Næturvaktin
Stjórnandi: Kristin Björg
Þorsteinsdóttir.
Rásirnar samtengdar að lok-
inni dagskrá rásar 1.