Morgunblaðið - 29.06.1985, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1985
13
í Listmunahúsinu
Myndllst
Valtýr Pétursson
Ungur myndlistarmaður kveð-
ur sér hljóðs í Listmunahúsinu
þessa dagana. Það er Hallgrímur
Helgason sem þar er á ferð og
hann er ekki alger byrjandi i
listinni því að hann hefur haldið
fjölda sýninga á verkum sínum
að undanförnu. Fjórar á síðasta
ári og þrjár á þessu, sem komið
er. Af þessu hlýtur maður að
draga þær ályktanir að Hall-
grímur sé á hraðferð og flýti sér
ef til vill um of. Það getur verið
erfitt og hættulegt fyrir unga
menn sem eru að byrja feril sinn
sem myndlistarmenn, að fara of
geyst. Á stundum verður að
staldra við og gera sér grein
fyrir hlutunum, það er að
minnsta kosti góð regla og of
mikið fát á þessu sviði getur orð-
ið að bókstaflegu flani.
Eina af fyrri sýningum Hall-
gríms sá ég, er hann sýndi i húsi
við Stýrimannastíg. Þar var
mikið af teikningum og enn er
stór hluti þessarar sýningar
teikningar. Þar sér maður glitta
í Picasso bæði hvað tækni og
hugmyndir snertir, og fígúrur
Hallgríms eru vel í skinn komn-
ar og minna einna helst á holda-
far hjá Botero. Báðir þessir lær-
ifeður eru ágætir listamenn og
Hallgrímur fer ekki í geitarhús
að leita ullar hvað það snertir.
Það eru þrír tugir málverka á
þessari sýningu og ég verð að
játa að málverk Hallgrims fellur
ekki í minn smekk. Hann er að
mínum dómi of hrár í litum til
að hægt sé að komast í tengsl við
þá lífsskoðun, sem Hallgrímur ef
til vill leggur sig fram við að
túlka. Það er eins og hann leggi
meiri áherslu á aðfarir manns-
ins en tilveru fígúrunnar í
myndfletinum. Bestum árangri
nær Hallgrímur er hann málar í
eintóna skala, til að mynda i
bláu, og þá vill hann fara nokkuö
nærri sjálfum Picasso, en það er
nokkuð síðan sést hafa áhrif frá
þeim galdramanni i verkum
ungra íslenskra myndlistar-
manna. Ekki vil ég erfa það við
Hallgrím að hann leitar til góðra
manna um myndlistarlegt upp-
eldi, þannig hefur það jafnan
verið og verður sjálfsagt. Ungir
menn eiga að hafa augun opin og
kunna að hafna og velja þar til
þeir ná þeim þroska að persónu-
legur stíll verður til. Popplistin á
líka sín ítök í verkum Hallgríms
einkanlega í litameðferðinni.
Það má vel vera að hann hafi
sínar skoðanir á hvað og hvernig
eigi að nota liti í málverki, en
persónulega finnst mér hann
ekki koma því til skila i þeim
verkum, sem hann sýnir að
sinni. Þessi ungi maður er að
mínu viti algerlega óráðinn sem
myndlistarmaður. Margar leiðir
virðast honum opnar; hann á því
næsta leik og enginn annar.
Listaverkabók Bennyar
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Benny Motzfeldt
Útg. Universitetsforlaget 1984
Benny Motzfeldt er einn
fremsti glerlistamaður Noregs
og hefur hlotið margs konar við-
urkenningu fyrir list sína heima
og erlendis. Bókin sem hér er á
ferð var gefin út seint á síðasta
ári í tilefni 75 ára afmæli lista-
mannsins. Það er óhætt að segja
að bókin gefi glæsilega mynd af
ferli Benny Motzfeldt frá því hún
byrjar ung að árum að fikra sig
áfram. Hún nam við Handiða og
myndlistaskólann í Osló og raun-
ar er það ekki fyrr en á fullorð-
insárum hennar, að landar henn-
ar fara að gera sér grein fyrir
þvílíka gimsteina hún hefur ver-
ið að gera um langar tíðir. Bókin
er sönn unun fyrir augað og lit-
myndirnar af listaverkunum
virðast vera forkunnarvel gerðar.
En augljóst er að til alls hefur
verið vandað: Ágætan formála
skrifar Grete Kobro, og kafli er
eftir listamanninn sem heitir En
personlig collage, fallegur kafli
og hefur í sér afar viðfelldin tón.
Anniken Thue skrifar „Bevisste
Benny Motzfeldt
tilfeldigheter" og Fritz Reese
„Paa vandring".
Af þessari bók hefur einnig
verið gerður texti á ensku og
þýzku.
Það er gott að skoða þessa bók,
þó svo að ljósmyndir hversu góð-
ar sem þær eru, skili ekki nema
broti listaverka Bennyar til okk-
ar. Þá er að beita ímyndunarafli
og forvitni.
/
Saumaðu ekki að
pyngjunni
SINCER
Enn einu sinni spori framar
Hvers vegna ad sauma að pyngjunni þegar þú
getur verid að sauma á Singer Magic sem er létt
og þægileg, ótrúlega einföld í notkun og mun
ódýrari en sambærilegar vélar.
Singer hefúr alltaf verið spori framar og jafnhliða
tækninýjungum hafa þeir þróað saumavélar sem
auðvelt er að læra á og eru einfaldari í notkun en
flestar vélar.
F Tæknilegar upplýsingar
• Frjáls armur • Zlkk-zakk • Overlock
• Rafeinda tótstig • Bllndfaldur • Vðfflusaumur
• Lárétt spóla • Stunguzikk-zakk • Tvöfalt overlock
•Sjáltvirk hnappagötun •Styrktarsaumur • Fjöldi nytja og
• Beinn saumur • Teygjusaumur skrautsauma
Singer Magic og þú þarft ekki að
hafa áhyggjur af saumaskapnum
útborgun og greiðsluskilmála
— og komumst örugglega að samkomulagi.
$ SAMBANDSINS |
ÁRMÚLA3 SÍMAR 6879/0-81266