Morgunblaðið - 29.06.1985, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNl 1985
25
:
Dómkirkjan:
Síðasta messan
með gamla orgelinu
Á MOKGUN, sunnudaginn 30. júní, verður síðasta messa í Dómkirkjunni
um sinn vegna viðgerða, sem þar munu fara fram í sumar. Jafnframt
verður þá leikið á gamla dómkirkjuorgelið í síðasta sinn á þessum stað.
Eins og lesendum Morgun-
blaðsins mun kunnugt er nýtt
orgel væntanlegt í kirkjuna á
hausti komanda. Gólf kirkjunn-
ar þarfnast endurnýjunar, og því
hefur verið ákveðið að setja í
kirkjuna nýtt furugólf sem lík-
ast því, er þar var í upphafi, og
viðurinn verður þannig með-
höndlaður, að hann skapi um
leið sem bestan hljómburð, enda
er ætlunin að gera ýmislegt
fleira í kirkjunni í sumar í þeim
tilgangi, svo að tónar hins nýja
orgels megi hljóma sem best.
Þessari viðgerð mun ljúka um
miðjan september og þá koma
orgelsmiðir með nýja hljóðfærið
frá Þýskalandi og setja það upp.
Mun væntanlega hægt að vígja
það fyrsta sunnudag í aðventu, 1.
desember nk. Orgelsmiðjan mun
lána kirkjunni lítið pípuorgel til
notkunar niðri í kirkjunni, þann-
ig að væntanlega verður hægt að
messa þar, framkvæma hjóna-
vígslur og annað slíkt um helgar
eftir miðjan september, en jarð-
arfarir og aðrar athafnir á virk-
um dögum geta ekki orðið í
kirkjunni fyrr en í desember.
Messur og kirkjuathafnir aðr-
ar en jarðarfarir fær Dóm-
kirkjusöfnuðurinn inni fyrir í
Háskólakapellunni, eins og þeg-
ar kirkjan var í viðgerð 1977, og
gafst þá ágætlega.
Er ekki að efa, að margir
Reykvíkingar munu leggja leið
sína í messuna í Dómkirkjunni
kl. 11 í fyrramálið vegna þeirra
tímamóta sem þá verða.
(Frá Dómkirkjunni)
Ingibjörg Guðjónsdóttir, söngkona:
„Afskaplega
lærdómsrík ferð“
Eins og fram hefur komið í
fréttum tók Ingibjörg Guðjóns-
dóttir þátt í undanúrslitum söng-
keppni sjónvarpsstöðva, í Card-
iff í Wales á miðvikudagskvöld.
Ekki bar hún þó sigur úr býtum
í þeirri viðureign, enda söngvar-
arnir flestir atvinnumenn og all-
ir á heimsmælikvarða, að sögn
Tage Ámmendrup, fylgdar-
manns Ingibjargar.
„Ég er engu að síður afskap-
lega ánægð með árangurinn,"
sagði Ingibjörg er blm. náði tali
af henni. „Ég var langyngst
hinna 24 keppenda og verð að
viðurkenna að það kom mér á
óvart hversu góðir þátttakend-
urnir voru. Dagarnir fyrir
keppnina fóru að mestu í langar
og strangar æfingar, en þess á
milli var ég meðhöndluð sem
einhvers konar „prímadonna“,“
sagði Ingibjörg.
„Ferðin hefur verið einstak-
lega lærdómsrík og ég er mjög
þakklát og stolt yfir því að hafa
fengið að vera fulltrúi íslands
hér. Ég fór út með því hugarfari
að ég hefði allt að vinna — engu
að tapa — og það reyndist rétt
hjá mér. Umboðsmenn víða að
voru í salnum kvöldið sem ég
keppti, svo ég sé fram á framtíð
fulla tækifæra. Einnig er þetta
heilmikil auglýsing, þar sem
keppninni er sjónvarpað um allt
Bretland," bætti hún við. „Það
má einnig geta þess að ég söng
m.a. Gígjuna eftir Sigfús Ein-
arsson og vakti hún feikilega
hrifningu. Hver veit nema það
vérk komi til með að slá í gegn,“
Ingibjörg Guðjónsdóttir
sagði Ingibjörg að lokum.
Svo vel vildi til að hjá Ingi-
björgu var staddur Kristján Jó-1
hannsson óperusöngvari þegar
blm. náði sambandi við hana.
Kristján syngur um þessar
mundir með óperunni í Wales
og var viðstaddur keppnina,
sem Ingibjörg tók þátt í. „I
salnum ríkti góð stemmning,"
sagði Kristján „og góður rómur
var gerður að söng íslendings-
ins. Það verð ég líka að segja,"
bætti hann við, „að ég vænti
mikils af þessari stúlku í fram-
tíðinni. Hef satt að segja ekki
heyrt í eins hæfileikaríkum
söngvara frá íslandi í háa herr-
ans tíð.“
Vöruskiptajöfnuðun
Óhagstæð-
ur um 315
millj. króna
I maímánuói síðastliónum voru
fluttar út vörur fyrir 2.827 millj.
króna, en inn fyrir 2.715 milljónir
króna (fob). Vöruskiptajöfnuöur var
því hagstæður um 112 milljónir
króna en var á sama tíma í fyrra
óhagstæður um 451 milljón króna.
Fyrstu fimm mánuði ársins
hafa verið fluttar út vörur fyrir
12.291 millj. kr. en inn fyrir 12.606
millj. kr. fob. Vöruskiptajöfnuður-
inn það sem af er árinu er því
óhagstæður um 315 millj. kr. en á
sama tíma í fyrra var hann
óhagstæður um 344 millj. kr.
Á föstu gengi var útflutnings-
verðmætið fyrstu fimm mánuði
ársins 12% meira en á sama tíma
í fyrra. Þar af var verðmæti sjáv-
arafurða 18% meira, verðmæti
kísiljárns var svipað og í fyrra en
verðmæti útflutts áls var 20%
minna en fyrstu fimm mánuði síð-
astliðins árs. Loks var annar vöru-
útflutningur en hér hefur verið
talinn 31% meiri að verðmæti
fyrstu fimm mánuði þessa árs en á
sama tíma í fyrra.
Verðmæti vöruinnflutningsins
(reiknað á föstu gengi) var um
10% meira fyrstu fimm mánuði
þessa árs en á sama tímabili í
fyrra. Við samanburð af þessu
tagi þarf að hafa í huga, að inn-
flutningur skipa og flugvéla, inn-
flutningur til stóriðju og virkjana
og olíuinnflutningur er yfirleitt
mjög breytilegur innan árs eða frá
einu ári til annars. Séu þessir liðir
frátaldir reynist annar innflutn-
ingur (um 75% af innflutningnum
á þessu ári) hafa verið 8% meiri
en fyrstu fimm mánuði síðastlið-
ins árs.
Innflutningurinn í maí reiknað-
ur á föstu gengi, varð minni en í
maí í fyrra.
Hluti af stúlknahópnum sem tók þátt í handboltanámskeiðinu í Mosfellssveit sem æfði undir leiðsögn Viðars
Símonarsonar og Geirs Hallsteinssonar.
Líf og fjör á Varmá
Hópur ungra handboltamanna í vikulangri
þjálfun hjá þekktum leiðbeinendum
Handknattleiksskóli Flugleiða og Handknattleikssamband íslands
gengust fyrir handholtanámskeiði í gagnfræðaskólanum að Varmá í Mos-
fellssveit í vikunni og sóttu 45 unglingar alls staðar að af landinu
námskeiðið.
Viðar Símonarson og Geir
Hallsteinsson þjálfuðu ungl-
ingana í viku og var hafist
handa strax um átta leytið á
morgnana og æft til hálf fjögur
á daginn.
Krakkarnir gistu á gagn-
fræðaskólanum og skemmtu þau
sér við skák, borðtennis, mynd-
bandagláp og kvöldvökur áður
en haldið var í draumalandið til
að safna kröftum fyrir strangar
æfingar daginn eftir.
Þegar Morgunblaðsfólk bar að
garði voru stúlkurnar rétt að
ljúka við handknattleiksæfingu
undir stjórn Viðars og virtust
þær þreyttar en sælar eftir
dagsverkið. Stúlkurnar voru all-
ar á aldrinum 13 til 14 ára og
æfa með þriðja flokki hinna
ýmsu félaga á landinu. Strák-
arnir höfðu þá þegar lokið æf-
ingum, en þeir voru flestir einu
til tveimur árum yngri en stelp-
urnar og æfa með fimmta eða
fjórða flokki.
Guðný Karlsdóttir, 14 ára,
kom á eigin vegum frá Keflavík,
en tvær aðrar stúlkur komu frá
Keflavík á vegum ÍBK.
„Það er búið að vera alveg æð-
islega gaman og ég hef örugg-
lega haft gagn af þessu," sagði
Guðný sem leikur stöðu miðju-
manns.
Ásta Sölvadóttir, einnig 14
ára, æfir með ÍBK og tók í sama
streng og Guðný um að nám-
skeiðið væri hið skemmtilegasta.
Ásta hefur æft handknattleik
síðan fyrir jól og spilar stöðu
hægri bakk. Heill hópur af
stúlkum stóðu í hnapp og sögð-
ust sumar ætla að halda sam-
bandi eftir að námskeiðinu lýk-
ur, þrátt fyrir að þær búi í tölu-
verðri fjarlægð hvor frá annarri.
„Þetta er nú of sveitalegt til að
haldin séu hér sveitaböll," sagði
Ásta, en ekki hafði hún annað út
á aðstöðuna í gagnfræðaskólan-
um að setja.
„Það er alltaf sveppasósa með
matnum,“ heyrðist einhvers
staðar úr hópnum, en þaggað var
snarlega niður í stúlkunni með
háværu lofi um matinn, sem að
sögn stúlknanna var afbragðs-
góður.
Þorbjörg Margeirsdóttir úr ÍR
og Hulda Björk Stefánsdóttir,
markvörður úr Tý, Vestmanna-
eyjum, voru einnig hæstánægðar
með námskeiðið og höfðu út á
fátt að setja.
Alls voru níu stúlkur frá Vest-
mannaeyjum og var því nóg í
heilt handboltalið með tveimur
varamönnum. Þorbjörg kom á
eigin vegum ásamt tveimur öðr-
um stúlkum úr ÍR.
Viðar Símonarson þjálfar
unglingalandslið kvenna í hand-
bolta og sagði hann að markmið-
ið með þessu vikunámskeiði væri
að reyna að byggja upp áhuga á
handbolta um land allt. Hefði
því íþróttaféiögum verið gefinn
kostur á að senda fulltrúa á
námskeiðið.
„Það hefur verið miklu betri
þátttaka utan af landi en við átt-
um von á. Við urðum fyrir tals-
verðum vonbrigðum með
Reykjavík, en ég er hæstánægð-
ur með undirtektir frá lands-
byggðinni," sagði Viðar.
„Þetta var gert bara til
reynslu í sumar," sagði hann, en
bætti við að til greina kæmi að
halda fleiri slík námskeið á
næstu árum.