Morgunblaðið - 29.06.1985, Page 27
27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNl 1985
Fjölskylduhátíð
í Mývatnssveit
Mývatnssveit, 24. jum.
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ Kiwanismanna á Óðinssvæðinu var haldin í Seljadal í
Mývatnssveit 21.— 23. júní. Hátíðin var sett á fóstudaginn kl. 20:30. Á laugardag
hélt samkoman áfram kl. 10 og stóð allan þann dag og endaði með varðeldi kl. 23
um kvöldið. Hátíðarslit voru á hádegi á sunnudag.
Alls komu um 270 manns á hátíð-
ina, þar á meðal milli 30 og 40 úr
Grímsey. Veðrið var allgott um helg-
ina, þurrt en frekar svalt á laugar-
dag, en á sunnudag var glampandi
sólskin.
Seljadalur er um 3 km. frá þjóð-
vegi, norðan við Grímsstaði, í svo-
kallaöri Hlíðarheiði. Frá náttúrunn-
ar hendi er þarna kjörinn staður
fyrir útisamkomur, hlíöar dalsins
skógi vaxnar beggja vegna og dalur-
inn opinn að sunnanverðu svo auð-
velt er að aka niður í hann.
Þessi Kiwanishátíð tókst með af-
brigðum vel, mikill fjöldi barna og
unglinga kom með foreldrum sínum
og virtust allir hafa ánægju af dvöl-
inn í dalnum. Svæðisstjóri Óðins er
Snæbjörn Pétursson.
— Kristján.
Ráðstefna um fituefni:
Fjallað um líftækni
og næringarfræði
Myndin sýnir málverkið „Snjór og gjá“ sem Kjarval málaði árið 1954.
Kjarvalsstaðir:
Sýning á 30 verkum '
eftir Kjarval í sumar
LIPIDFORUM eru skandinavísk
samtök vísindamanna sem vinna
Leiðrétting
í TEXTA við mynd sem tekin var
í áttræðisafmæli Maríu Markan
var ranglega farið með nafn Unn-
ar Eyfells. Var hún þar sögð
heita Unnur Valfells. Er hún beð-
in velvirðingar á þessum mistök-
um. Einnig gleymdist að geta
þess að Ólafur Vignir Albertsson
lék undir á píanó og Sigfús Hall-
dórsson lék undir á píanóið í einu
lagi.
Leiðrétting
ÞAU mistök urðu í gær að Sigrún
Ágústsdóttir, formaður Kennarafé-
lags Reykjavíkur, var ranglega feðr-
uð í fyrirsögn á viðtali við hana og
biðst blaðið velvirðingar á því.
að rannsóknum og framleiðslu á
fituefnum. Ráðstefna verður
haldin á vegum þessara samtaka
á Hótel Loftleiðum dagana 1. til
3. júlí næstkomandi.
Á ráðstefnunni verður fjallað
um lífefnafræði, líftækni, nær-
ingar- og matvælafræði fituefna,
ýmis tæknileg vandamál í fitu-
iðnaðinum og fleira, segir í
fréttatilkynningu. Þátttakendur
eru frá 11 löndum en haldin
verða 40 erindi á ráðstefnunni.
íslensk fyrirtæki og stofnanir
á sviði matvæla- og fituefnaiðn-
aðar styrkja ráðstefnuna, en
Sigmundur Guðbjarnason,
Raunvísindastofnun Háskólans,
Páll Ólafsson, Rannsóknastofn-
un fiskiðnaðarins og Jón Óttar
Ragnarsson, Rannsóknarstofnun
Landbúnaðarins, hafa séð um
undirbúning hennar.
SÝNING verður haldin á málverk-
um og teikningum eftir Jóhannes
Sveinsson Kjarval á Kjarvalsstöð-
um nú í sumar. Sýningin verður
opnuð um helgina og stendur út
júlí.
í fréttatilkynningu kemur
fram að hér er um að ræða 30
verk sem Kjarvalsstaðir eiga.
Sum þeirra séu nýlega fengin, og
hafi ekki komið fyrir almenn-
ingssjónir.
Einnig er í undirbúningi mikil
yfirlitssýning á verkum Kjar-
vals, segir ennfremur í fréttatil-
kynningunni. Hún verður opnuð
á 100 ára afmælisdegi málarans
15. október í haust. 1 tengslum
við hana hafi verið unnið að
skrásetningu verka Kjarvals og
sé nú búið að skrá og ijósmynda
um 3.000 verk í eigu fólks víðs-
vegar um landið. Því verki sé þó f
enn ekki lokið og menn hvattir til
þess að gefa starfsfólki Kjarvals-
staða upplýsingar um myndir
eftir Kjarval sem þeir viti til að
hafi enn ekki komist á skrá.
Nú um helgina bjóðum við allar garðplöntur
á stórlækkuðu verði.
20-50% afsláttur.
Áður Nú
Sumarblóm 18 kr. 14 kr.
Sumarblóm í pottum 90 kr. 72 kr.
(Petunia)
Fjölærar plöntur 90 kr. 45 kr.
Gott tækifæri fyrir þá sem eiga eftir
að planta í garðinn sinn eða vilja
bæta við.