Morgunblaðið - 29.06.1985, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1985
HOLLUSTUBYLTINGIN/Jón Óttar Ragnarson
VINDHÖGG
Vindhögg
Skyldi nokkur íslensk stofnun
nokkru sinni hafa verið lítillækk-
uð í stærri stíl og af minna tilefni
en Alþingi Islendinga í bjórmálinu
á dögunum.
Bkki einasta mun þetta þing
verða að athlægi um víða veröld
þegar timar fram líða, heldur hef-
ur því tekist að forfæra drykkju-
siði yngri kynslóðarinnar ... e.t.v.
varanlega.
Var beinlínis stórbrotið að sjá
hinar öldnu kempur forsjárhyggj-
unnar staðráðnar í því að brjóta
unga fólkið til hlýðni við sínar eig-
in alræmdu áfengisvenjur.
Fall bjórsins var að sjálfsögðu
vindhögg. Krárnar verða aldrei
lagðar niður. Það sem máli skiptir
er einungis áhrif þessa atburðar á
innra umhverfi þeirra.
Afleiðingin
Svarið er augljóst. Bjórlíkið hef-
ur lengi staðið höllum fæti. Af
eðlilegum ástæðum hefur neyslan
því beinst jafnt og þétt yfir á hina
sterkari drykki.
Þetta hefur kallað á meiri ofur-
ölvun og tíðari ofbeldisdrykkju,
þ.e. það neyslumynstur sem ís-
lendingar hafa gert frægt að end-
emum um meira en 100 ára skeið.
En nú hafa orðið þáttaskil. Eng-
inn getur með góðri samvisku full-
yrt framar að Alþingi sé starfi
sínu vaxið. Frjálslyndir íslend-
ingar þurfa því að taka til sinna
ráða.
Hvað skal til ráða?
Allir sem koma á íslenskar krár
verða framvegis að hafa í huga að
framundan er andóf gegn stjórn-
völdum landsins allt þangað til
bjórinn kemst í gegn.
Til þess að sem flestum sé gert
fært að þreyja þorrann beini ég
eindregið þeirri ósk til kráareig-
enda að þeir endurbæti bjórlíki
sitt eftir fremsta megni.
í öðru lagi þarf að gera miklu
meira af því að gera þeim auðveld-
ara sem vilja drekka iéttvín að
kaupa það í glösum og að hafa
ávallt eina góóa tegund í því formi
af rauðu, hvítu og rósavíni.
Almenning hvet ég svo eindreg-
ið til að hafna í eitt skipti fyrir öll
þeim sterku og stórhættulegu
drykkjum sem Afengisvarnarráð
og heilbrigðisyfirvöld reyna að
troða upp á hann.
Að hafna brennivíni
Að hafna brennivíni er ekki ein-
asta andóf gegn gjörspilltum
drykkjusiðum Islendinga um alda-
bil, heldur sjálfsagður þáttur í
sókn okkar til aukinnar heilbrigði.
Það er óaðskiljanlegur liður í
hollustubyltingu nútímans að
hafna þeim drykkjum sem hafa
komið nærri því tíunda hverjum
íslendingi á kaldan klaka.
Sterkir drykkir kalla nær und-
antekningalaust á ofurölvun með
öllum þeim leiðindum, ölæði og
ofbeldi sem til skamms tíma var
fastur liður í skemmtanalífinu.
Þetta neyslumynstur mun nú
smám saman verða ríkjandi á nýj-
an leik og mun verða notað sem
rök gegn bjórnum. En allt fólk
með óbrenglaða dómgreind veit
betur.
Að sjálfsögðu er hægt að verða
ofurölvi af léttum vínum og jafn-
vel bjór, en sé sterku drykkjunum
gjörsamlega hafnað minnka lík-
urnar á því um allan helming.
Að sjálfsögðu er hægt að nota
bjór og léttvín sem stökkpall yfir í
sterkari drykki og þar með alkó-
hólisma, en sú leið er miklu tor-
sóttari ^n sú hefðbundna.
Lokaorö
Hittir þú á förnum vegi, lesandi
góður, Alþingismann á götu skaltu
beina talinu inn á aðrar brautir.
Viljir þú hins vegar endilega
beina umræðunni að bjórnum ráð-
legg ég þér eindregið að snúa þá
talinu að næstu frumvörpum í
framtíðinni.
Því er nefnilega þannig varið að
sá lærdómur sem maður dregur af
þessum tímamótum er ekki í því
fólginn að tala af sér. Hann er
fólginn í aðgerðum.
TJALDSÝNING
verður haldin í Seglagerðinni Ægi
um helgina 28.—30. júní.
1 —26 manna hústjöld, Ægistjöld, göngutjöld og samkvæmistjöld.
5 manna tjald, verfl kr. 7,669,-
fleygahiminn, verð kr. 8,688,-
Samkvæmistjöld
fyrir félagasamtök, ættarmótin, garðveisluna,
skátana og sem sölutjöld.
Hellas, 2ja manna, kr. 2.730.
3ja manna kr. 3.550.
Montana, 4ra manna,
verð kr. 14.950.
rfED rfnTO> rfOPpi
=•- 22.260.
31.360.
40.460.
Viðleguútbúnaður og
garðhúsgögn í miklu
Úrvali. Hagstætt verö.
e^ager</y
æ g 1 r
Eyiaslód 7, Reyk|avik PósthóH 659
Simar 14093 - 13320 Nafnnr 9879 - 1698
Askriftcirsíminn er 83033
W\iyaé er svona
merkilegt við
Þér er boöiö upp á
ef þú finnur
. veitingahúsiö viö Fischersund, sem liggur
_ upp meö Geysi
og er viö hliöina á Gullfiskabúöinni.
Viö bjóöum ávallt
Ijúffenga, ferska rétti
og afbragös drykki
— nánast hvaö sem er.
Opið kl. 12—14.30 og frá kl. 18 á kvöldin.
Því ekki aö reyna eitthvaö nýtt og ferskt
— sumir segja bezta pubbmat í bænum.
VELKOMIN I
-HUS
DANSNEISTINN & GYLFI ÆGISSON
FT?T7TTTTi7!TíTíT]
STAÐUR ÞEIRRA SEM AKVEONIR ERUI ÞVIAÐ SKEMMTA SÉR
Aftur í kvöld munu þær stöllur í Dansneistanum skemmta gestum
okkar, en í gærkvöldi gerðu þær stormandi lukku, einnig verður plata
Gylfa Ægissonar, Sumarplata sjómannsins kynnt en hún er ný komin
út, góð plata sem slær í gegn.
imMMM), FhÆ "85
."ISS5SSREYKJAVIK
ZJ 30 JUN)
Við bjóðum velkomna kepp-
endur og gesti fjórðungsmóts
hestamanna sem nú stendur
yfir í Reykjavík.
Hittumst ( Klúbbnum.