Morgunblaðið - 29.06.1985, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNl 1985
—-----------|---|---- - -----------
Málstefna og skákfræði
Ingólfur Pálmason skrifar:
Allir skákmenn og hernaðar-
fræðingar vita að í tvísýnni stöðu
er baráttan vonlítil, ef enginn er
kostur sóknar; vörnin ein saman
bilar oftast fyrr eða síðar.
Eins og allir vita eiga tungur
smáþjóða um þessar mundir mjög
í vök að verjast víða um heim, is-
lenskan ekki undan skilin. Miklar
umræður hafa nýlega farið fram í
blöðum um málstefnu á landi
voru, og er það gleðilegur vottur
þess, að enn lætur þjóðin afdrif
tungu sinnar sig miklu varða.
Margir menn halda að íhalds-
semi, jafnvel „gífurleg íhalds-
semi“ séu fyrsta og annað boðorð
málverndar, ef ekki hin einu boð-
orð hennar. Morgunblaðið hefur
vitnað í hin auðkenndu orð hér á
undan — í forustugrein, ef ég man
rétt, og virðist ánægt með að gera
þau að kjörorði íslenskrar mál-
stefnu.
Þetta tel ég fjarri lagi. Málrækt
þarf að vísu á hóflegri íhaldssemi
að halda eins og menningarstefn-
ur yfirleitt, en framsókn og endur-
nýjun eru engu ónauðsynlegri
þættir. Ég er hræddur um að örlög
íslenskrar tungu yrðu senn ráðin,
ef málræktarmenn yrðu að láta
sér vörnina eina nægja. En sem
betur fer er ekki svo illa komið. Sú
nýyrðamyndun sem nú fer fram
undir forustu íslenskrar mál-
nefndar og fleiri stofnana er e.t.v.
ljósasti votturinn um lífsmagn ís-
lenskunnar. Þar er sókn í fullum
gangi sýnist mér.
Ég held að það gæti orðið
dragbítur á íslenskri málrækt og
lítt til þess fallið að laða æsku
landsins að máiefninu, ef aðal-
áherslupunktar stefnunnar eru
óskilgreind íhaldsemi. „Iss, þetta
er bara nöldur í gömlum karl-
fauskum," er pískrað í ýmsum
hornum og skúmaskotum.
En sem betur fer mætir starf-
semi málræktarmanna líka skiln-
ingi hjá unga fólkinu. Ég hef til
dæmis góða reynslú af samstarfi
mínu við nemendur í Kennara-
háskóla tslands og tel að af þeim
gróðri mætti nokkurs vænta, ef að
honum væri hlúð á réttan hátt.
Tungumál þurfa sífelldrar
endurnýjunar við. Orð slitna og
missa ferskleika sinn og fyllingu;
auk þess sem ekki er alltaf hægt
að vera hátíðlegur og formlegur.
Slanguryrði gegna sínu hlutverki í
málinu, þó að margur geri sig að
angurgapa með ofnotkun þeirra.
Miklu hættulegri en hneigð ungu
kynslóðarinnar fyrir „götumál“ er
vangeta sumra langskólamanna
og hálærðra, karla bæði og
kvenna, að hugsa og ræða fræði-
grein sína á íslensku. Á þetta hafa
góðir menn bent.
Hér þarf aukið vandlæti að
koma til. Ungir fræðimenn og rit-
höfundar verða að taka sjálfum
sér tak og verða ekki eftirbátar
bestu fyrirrennara sinna. Mörg
lausatök, sem nú eru á ýmsum rit-
verkum, mætti laga með betri
vinnubrögðum. Þar höfum við til
viðmiðunar þau stórvirki sem
unnin hafa verið í íslenskum
bókmenntum á þessari öld. En í
öllum bænum, kallið það ekki
ihaldssemi að sækja í smiðju for-
tíðarinnar. Það er aðeins skylda
og kvöð þess fólks sem á fornar
bókmenntir og göfuga þjóðtungu
að móðurmáli.
✓
Iþróttastyrkur
Sambandsins
Um íþróttastyrk Sambands ísl. samvinnufélaga fyrir
árið 1986 ber að sækja fyrir júlílok 1985.
Aðildarsambönd ÍSÍ og önnur landssamhönd er starfa
að íþróttamalum, geta hlotið styrkinn.
Umsóknir óskast sendar Kjartani P. Kjartanssyni,
framkvæmdastjóra, Fræðslu- og kaupfélagsdeild Sam-
bandsins, Sambandshúsinu, Reykjavík.
^ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
Járnsagir
fyrir prófíla, rör, vinkla. flatjárn og massíft stál
★ eins og þriggja fasa
★ skífur 355 og 405 mm
★ skurðarþvermál 110—150 mm
L-1405
x þyngd 18—32 kg
L-150C
Verö frá kr. 12.190,-
G.J. Fossberg,
vélaverzlun hf.
Skúlagötu 63, Reykjavík.
Sími18560.
Blaí)burdarfólk
óskast!
Konur, skrifið
undir friðarávarpið
Sjálfstæóiskona í Austurbænum
skrifar:
Sjálfstæðiskonur, takið undir
með Salóme, skrifið undir friðar-
ávarp íslenskra kvenna.
Er Salóme undirskrifaði ávarp-
ið, sagði hún í viðtali við Mbl: „I
þessu ávarpi er ekkert, sem allar
friðelskandi konur geta ekki verið
sammála um, hvar í flokki sem
þær standa..."
Hvort sem konur eru á hægri
eða vinstri væng íslenskra stjórn-
mála og alls staðar þar á milli
geta þær allar skrifað undir þetta
ávarp, sem hvetur til minnkandi
vígbúnaðar og sérstaklega minnk-
andi kjarnorkuvígbúnaðar beggja
risaveldanna og jafnvel minnk-
andi vígbúnaðar allra valdasvæða
og allra landa, einkum kjarnorku-
vígbúnaðar.
Konur, lesið ávarpið, kynnið
ykkur efni þess og skrifið undir.
Otvecsmenn
Handfæravindan frá DNG hefur nú sýnt þaö og sannaö
aö hún er sú fullkomnasta og besta sem
fáanleg er í heiminum í dag.
Einn maöur með 2
vindur fiskar auðveld-
lega 3 tonn af fiski á
dag. Með þessum gifurlegu
afköstum ætti hver maður að
geta séð að hagstæðari kaup
er vart hægt að hugsa sér.
DNG handfæravindan er al-
sjálfvirk og með beinu drifi,
enga kúplingu eða gír og er
sérstaklega einföld og örugg í
notkun.
2ja ára ábyrgð.
Verðið er ótrúlega hagstætt,
eða 2—4 tonn af fiski!
Hafið samband og
kynnið ykkur kjörin.
SÍMI 96-26842 AKUREYRI
Leifsgata
Sörlaskjól
Fornastekkur o.fl.
r
Austurbær
Úthverfi
JHttgnnfrlfiMfc
Þú svalar lestrarþörf dagsins
' jKfum Moggam!