Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÍD, LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1985 Ögmundur Kristinsson: Hættur í bili „JÁ, ég or hættur aö leika moð Víkingum, að minnsta kosti í bili, en ég vona samt að ég eigi eftir að leika marga leiki fyrir Víking,“ sagði Ögmundur Kristinsson, markvörður Víkinga til skamms tíma, þegar viö spuröum hann aö því í gær hvort hann heföi sagt skilið við 1. deildar lið Víkings. Ögmundur hvaö þetta vera leiö- indamal sem hann vildi sem minnst tjá sig um, en ástæöuna fyrir því aö hann er hættur sagöi hann vera að „mér og Birni þjálf- ara semur ekki og ég er ósáttur viö hann“. Ögmundur sagöi aö ekki væri rétt aö hann væri hættur hjá Vík- ingi fyrir fullt og allt, því hann myndi snúa aftur til liösins þegar annar maöur tæki viö liöinu, hve- nær svo sem þaö yröi. Jósteinn Kristjánsson: Lítil- mennska „ MENN eins og Ögmundur, sem hleypur í burtu fré félaginu þegar verst stendur é vegna þess aö hann greinir é viö þjálfara, eru ekki héir menn í mínum huga,“ sagöi Jósteinn Kristjánsson formaöur Víkings í samtali viö Morgunblaöiö í gær. Jósteinn sagöi aö sér þætti þaö lítilmennska aö hlaupa af hólmi núna: „Þaö heföi verið miklu nær aö standa meö félaginu nú þegar illa gengur. Björn er ekki ráöinn til eilífðar hjá félaginu. Þaö gengur illa núna hjá liöinu, eflaust er ein- hver óánægja í liöinu meö Björn en aðrir eru ánægöir með hann. Það má vera aö Birni vanti aga á liöiö en ég held aö þaö vanti líka kraft í leikmennina. Mér finnst þaö ekki lýsa góöum anda þegar menn hreinlega hætta og segja aö þaö sé vegna þess aö þjálfarinn sé leiöinlegur." Víkingur leigir bfla í LÖGBIRTINGABLAÐINU þann „Jú, þaö er rétt, þaö eru Vík- 27. júní er greint frá því aö stofn- uö hafi verið hér í bæ Bílaleigan Víkingur hf. með aösetur viö Hæöargarö, en þaö er félags- heimili Knattspyrnufélagsins Vík- ings. Til aö forvitnast nánar um þetta nýja fyrirtæki ræddum við viö Jóatein Kristjánsson formann félagsíns. ingar sem standa aö þessari bílal- eigu og þetta er einn liöur í því aö reyna aö afla einhvers staöar tekna fyrir félagiö. Viö erum þegar byrjaöir á rekstrinum og eigum nú þegar fjóra bíla. Þetta lofar góöu þaö sem af er, þaö eru aö visu byrjunarerfiöleikar eins og skortur á mannskap en þaö eru bara byrj- unaröröugleikar,” sagöi Jósteinn. Hann sagöi aö Víkingar heföu staöiö í miklum framkvæmdum viö félagsheimili sitt viö Hæöargarða aö undanförnu og einnig á hinu nýja svæöi fólagsins í Fossvogi. „Þaö er búiö aö taka allt heimiliö í gegn og auk þess hafa fariö um þrjár milljónir í nýja svæðiö. Viö höfum líka unniö mikiö í gamla svæðinu okkar en nú nýverið kom þaö uppá aö einn völlurinn hallar of mikiö og er því ólöglegur aö mati eins dómarans hér sem neit- aöi aö láta leika á honum um dag- inn. Þaö hefur veriö leikiö á þess- um velli frá því ég var smá pott- ormur en núna allt í einu er hann ekki nógu góöur.“ 1. deild kvenna í knattspyrnu í fyrrakvöld: ÍA skoraði tólf og Blikarnir sex TVEIR leikir fóru fram í 1. deild kvenna í knattspyrnu í fyrrakvöld. Bestu lið deildarinnar, ÍA og UBK, unnu bæöi stóra sigra. Meistarar ÍA þó sýnu stærri: Skagastúlk- urnar sigruóu ÍBK 12:1 á heima- velli. Breióablik sigraói Þór á Ak- ureyri 6:1. Yfirburöir Skagastúlknanna voru vitanlega algerir i leiknum gegn Keflavík eins og úrslitin gefa til kynna. Mörkin skiptust nokkuö jafnt niöur. Laufey Siguröardóttir skoraöi þrjú mörk, Vanda Sigur- geirsdóttir, Ásta Benediktsdóttir, Karitas Jónsdóttir og Ragnheiöur Jónsdóttir skoruöu tvö mörk hver og Halldóra Gylfadóttir skoraöi einu sinni. Eina mark Keflavíkur- liösins geröi Inga Birna Hákonar- dóttir úr vítaspyrnu. Á Akureyri var leikiö á mjög góöum aöalleikvanginum. Blika- stúlkurnar höföu mikla yfirburöi og léku oft á tíöum mjög vel. Erla Rafnsdóttir og Ásta María Reyn- isdóttir skiptu mörkunum bróöur- lega á milli sín. Skoruöu þrjú mörk hvor. Eina mark Þórsara geröi Anna Einarsdóttir seint í leiknum — eftir aö staöan var oröin 6:0. Markahæstar í 1. deild kvenna nú eru Ásta B. Gunnlaugsdóttir og Erla Rafnsdóttir, báöar úr Breiöa- bliki, meö 9 mörk. Laufey Sigurö- ardóttir úr ÍA hefur gert 8 mörk, Ásta María Reynisdóttir, Breiöa- bliki, hefur skoraö 7 — og þaö er athyglisvert aö Ásta María hefur skoraö í öllum leikjum Breiöabliks í sumar. Hún skoraöi eitt mark í leikjunum gegn Val, KR, ÍBK og ÍA og síöan þrjú í gær gegn Þór. Staöan i 1. deild kvenna er þannig eftir leikina í fyrrakvöld aö íslandsmeistarar Akraness eru enn efstar meö 15 stig, hafa unniö alla sína leiki. Breiöablik er í ööru sæti meö 12 stig — liöið hefur lokið fimm leikjum eins og ÍA en tapaö einum gégn (A í Kópavoginum í síöustu viku. Þór, Akureyri, er í þriöja sæti meö 9 stig, KR hefur 6, KA 3, Valur 3, ÍBK 3 en ÍBÍ situr á botninum með ekkert stig. ÍA, UBK, Þór og KR hafa lokið 5 leikj- um, ÍBK og ÍBÍ 4 hvort og KA hefur aöeins keppt tvisvar í deildinni. & Gunnlaugsdótbr er nú markahæst í 1. deéd ásamt Ertu Knattspymuskóli KR og PGL hefst á mánudagsmorgun — kennarar þekktir atvinnumenn frá Bretlandi KNATTSPYRNUSKÓLI KR og PGL hefst á KR-vellinum viö Frostaskjól á mánudaginn. Enn KR, Fram, UBK og lið frá PGL — á móti sem fram fer sam- hliða knattspyrnuskólanum SAMHLIÐA Knattspyrnuskóla KR og PGL í næstu viku fer fram mót fjögurra liða. í mótinu taka þátt lið KR, Breiöabliks og Fram í fjórða aldursflokki auk úrvals- liös PGL sem kemur frá Eng- landi. Fyrsti leikurinn í mótinu er á mánudagskvöld á Kópavogsvelli. Þar mætast liö Breiöabliks og PGL-liöiö. Hefst viöureign þeirra kl. 19. Á þriöjudag leika síöan KR og PGL á KR-velli og hefst sá leikur kl. 17.30, á fimmtudag er síöan einn leikur á dagskrá: viöureign KR og Fram á KR-velli. Sá leikur hefst kl. 20. Auk þess aö vera í mótinu telst þessi leikur einnig til Islandsmótsins þannig aö mikiö er i húfi. Á föstudag veröa tveir leikir: KR og Breiðablik leika á KR-velli og Framarar mæta PGL-strákun- um á Fram-velli. Báöir leikirnir byrja kl. 20. Á sunnudag veröur svo síöasti leikur mótsins. Fram og Breiöablik leiöa saman hesta sína á Fram velli kl. 14.45. Sá leikur er jafnframt hluti af dagsskrá Fram-dagsins. er pláss fyrir nokkra krakka ( skólann og þeir sem enn hafa ekki skráð sig en hafa áhuga é aö vera með geta mætt á KR-svæöiö þá — en skólinn hefst kl. 10. Eins og Morgunblaöiö hefur áö- ur greint frá eru kennarar viö skól- ann aö þessu sinni m.a. tveir skoskir landsliösmenn frá stórliö- inu Celtic, þeir Roy Aitken, fyrirliöi liösins, og Murdo McLeod. Aitken lék meö skoska landsliöinu hér á Laugardalsvellinum fyrir stuttu. í fyrra völdu þjálfarar í skólanum efnilegasta leikmanninn og hlaut hann aö launum ferö á knattspyrn- uskóla PGL í Ipswich. Þar bætti hann um betur, varö stigahæstur í ýmsum knattþrautum og fyrir þaö afrek var honum boöið meö úr- valsliöi PGL til Los Angeles í des- ember sem leiö. Nú munu þjálfarar velja tvo efni- legustu leikmennina — annan úr hópi þátttakenda 13 ára og yngri og hinn úr hópi þeirra sem eldri eru. Veröur þeim báöum boöiö á knattspyrnuskóla PGL i Rickm- asworth fyrir noröan London í ágúst næstkomandi. Feröaskrif- stofan Útsýn hefur einmitt skipu- lagt feröir á skóla PGL og veröur þeim tveimur efnilegustu boöiö í þá ferö. Knattspyrnuskólinn á wm • Þe*sk hreuu krakkar sóttu meöal anoarra knattspymuakóta KR og PGL é KR-veKnum í fyrrasumar. Msö þeim á myndinni, annar frá vinatri í aftari röö, er Brian Tatoot sam var meöai kennara í skótanum. Ham lák þá meö Araenal en er nú kominn t9 Watford. KR-vellinum þótti takast mjög vel í fyrrasumar. Aöalkennarar frá Bretlandi þá voru Phil Thompson, fyrrum fyrirliöi Liverpool (núver- andi leikmaöur Sheffield United), og Brian Talbot, leikmaöurinn snjalli frá Arsenal, sem nú leikur hjá Watford. Auk þeirra Aitken og McLeod mun kenna viö skólann nú Mick Lambert, sem lék lengi meö Ips- wich Town, og John Ryan, fyrrum framkvæmdastjóri Cambridge. Hann var áöur þjálfari hjá Manch- ester City og atvinnuleikmaður til fjölda ára á Englandi og einnig lék hann í Bandaríkjunum. Þá munu tveir íslenskir þjálfarar veröa þeim ensku til aöstoöar. Eins og áöur sagöi hefst skólinn á KR-vellinum á mánudagsmorgun kl. 10 og honum lýkur síöan laug- ardaginn 6. júli'.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.