Morgunblaðið - 02.07.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.07.1985, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 146. tbl. 72. árg. ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins ísraelar sleppa brátt shítunum Bandarísku gíslarnir lausir úr 17 daga prísund Washington, JerúsaJem, 1. júlf. AP. ÍSRAELAR hafa ákveðið að láta lausa 300 shíta af um 700, sem þeir hafa í haldi, fyrir miðvikudagskvöld, að sögn embettismanna í Jerúsalem. Þess var krafizt, að fangarnir yrðu leystir úr haldi í skiptum fyrir 39 Bandaríkjamenn, sem amal-shítar í Líbanon tóku gíslingu er þeir rendu þotu TWA fyrir 17 dögum. Reagan Bandaríkjaforseti til- kynnti i kvöld „lokun“ flugvallar- ins i Beirút í þeim tilgangi að stöðva hryðjuverkastarfsemi það- an, en langflest flugrán í seinni tíð byrja þar ýmist eða lýkur. öllum bandarískum flugfélögum hefur verið bannað að fljúga til Beirút og önnur riki, þ.á m. Sovétrikin, verða beðin að stöðva flug þangað. Líbönsk flugfélög hafa verið svipt lendingarleyfi í Bandaríkjunum. Gíslarnir 39 komu í morgun til Frankfurt frá Damaskus í Sýr- landi á leið sinni til Bandarikj- anna. George Bush varaforseti Bandaríkjanna tók á m óti gislun- um í Frankfurt. Við það tækifæri fordæmdi hann ránið á TWA-þot- unni og sagði verknaðinn sýna enn betur fram á nauðsyn þess að upp- ræta hryðjuverkastarfsemi. Gíslarnir skýrðu frá því að þeir hefðu verið lamdir og barðir fyrst eftir flugránið, en læknisskoðun í Frankfurt leiddi í ljós að þeir væru við hestaheilsu. Flestir báru shitunum vel söguna og þökkuðu þeim að þeir væru í tölu lifenda. Shimon Peres, forsætisráðherra Ísraels, hrósaði Ronald Reagan, Bandaríkjaforseta, fyrir hvernig Bandaríkjamenn tóku á gíslamál- inu, og kvaðst ánægður að gíslarn- ir væru á brott úr hinu ótrygga landi, sem Líbanon væri. Sjá nánar fréttir af lyktum gíslamálsins á bls. 30—31. AP/Símamynd Kampakátir gislar komnir til Frankfurt eftir 17 daga í haldi amal-shíta í Líbanon. I prísundinni stökk gíslunum ekki bros á vör en hér sýna þeir ánægju sína. Einn þeirra veifar nelliku til velunnara, sem mættir voru í Rín-Main-flugstöðinni að fagna frelsi þeirra. Harðar efnahagsaðgerðir í ísrael: AP/Símamynd Sprengt í Madrid Kona fórst og 23 menn slösuðust þegar sprengja sprakk í skrifstofu- húsi bandarísku og bresku flugfélaganna Trans World Airways og British Airways í Madrid, höfuðborg Spánar, í gær. Skrifstofurnar eru í miðborg- inni og við fjölfarna verzlunargötu, sem krökk var af fólki. Stuttu eftir sprenginguna hjá TWA og BA sprungu tvær sprengjur í skrifstofu jórd- anska flugfélagsins, í næsta nágrenni. Engan sakaði í þeirri sprengingu. Neyðaráætlun gegn 300% JerúnJem, 1. jálf. AP. RÍKISSTJÓRN ísraels beitti neyð- arlögum í fyrsta sinn í sögu ríkisins til að koma í kring ýmsum efnahags- ráðstöfunum, sem ætlað er að draga úr verðbólgu. Ríkisútgjöld verða skorin niður sem nemur 750 millj- ónum dollara, en fjárlög hljóðuðu upp á jafnvirði 23 milljarða dollara. Tilkynnt var um ráðstafanirnar eftir sólarhringsfund ríkisstjórnarinnar. Ráðherrar Likud-bandalagsins lögð- ust gegn neyðaráætluninni í stjórn- inni. Boðað hefur verið allsherj- arverkfall á morgun, þriðjudag, í mótmælaskyni við neyðaráætlun stjórnarinnar. Þýðir það m.a. lokun flugvalla landsins og fjölmiðla. Meðal ráðstafana stjórnarinnar eru 18,8% gengislækkun og afnám vísitölubindingar launa, sem olli víxlhækkun verðlags og launa. verðbólgu Lenti indverska þotan í heilu lagi í sjónum? Cork, London, l.júll. AP. Lundúnablaðið Obaerver segir rannsókn á líkum farþega ind- versku þotunnar, sem fórst undan írlandsströndum, og braki úr henni ekki benda til þess að um skemmdarverk hafi verið að ræða, heldur fremur að þotan hafi hrap- að í hafið í heilu lagi. Embættis- menn, sem fást við rannsóknina, vildu ekki tjá sig um frétt blaðsins ídag. Að sögn Observer eru rann- sóknarmenn fremur að komast á þá skoðun að annaðhvort hafi brestur orðið í flugvélinni eða hún farizt fyrir yfirsjón flug- mannanna. Þeir haldi nú að þot- an hafi lent i heilu lagi í sjónum. Krufning líka farþega hafi leitt i ljós að þeir hafi ýmist dáið vegna skyndilegrar þrýstings- minnkunar eða drukknað. Á lík- unum fundust hvorki brunasár né málmflísar, sem bent hefðu til sprengingar. Blaðið Sunday Times sagði að sprengja i fremri farangurslest hefði getað eyðilagt stjórntæki þotunnar og gat á skrokknum valdið þrýstingsfalli. Skortur á brunasárum á likum sem fundizt hafa megi ef til vill skýra með þvi að viðkomandi hafi verið i þeim hluta þotunnar, sem ekki skemmdist i sprengingu. Leit að flugritunum var stór- aukin í dag, en ef þeir nást upp munu þeir leiða i ljós hvað f raun og veru gerðist. Sérbúnum skip- um með leitar- og björgunartæki fjölgaði á slysstaðnum um helg- ina og leitin aö flugritanum því ákafari en fyrr. Bannaðar eru allar verð- og launa- hækkanir f þrjá mánuði. Reyndar hækka matvæli, s.s. brauð, mjólk og kjötvörur, í dag um 45—75%, þar sem dregið var úr niður- greiðslum á þeim. Aðrar vörur og þjónusta hækka að jafnaði um 17%. Bensínverð var hækkað um 27% og kostar lítrinn þá jafnvirði 29 króna islenzkra. Bönnuð var út- tekt af gjaldeyrisreikningum og er það áfall fyrir marga, sem notað hafa slika reikninga til að verð- tryggja sparnað sinn. Loks verður opinberum starfsmönnum fækkað strax um 3%. Launþegasamtökin segja verðhækkanirnar þýða 30% rýrnun kaupmáttar en stjórnin segir hann minnka um aðeins 12%. Shimon Peres forsætisráðherra kveðst setja pólitíska framtíð sína að veði til þess að árangur náist í viðureigninni við verðbólguna. Fyrri aðgerðir stjórnar hans hafa reynst árangurslausar. Verðbólga komst í 445% í fyrra og er nú um Sprengja á flugvellinum í Rómaborg Róauborx, I. júlí. AP. ÖFLUG sprengja sprakk í flugstöðinni á flugvellinum í Rómaborg f kvöld. Sex manns a.m.k. slösuðust. Gifurleg hræðsla greip um sig í flugstöðvarbygg- ingunni. Talið er að sprengjan hafi verið i ferðatösku, sem átti að fara um borð í flugvél Alitalia, sem heldur til Ind- lands í fyrramálið, þriðjudag. Talið er að það hafi komið i veg fyrir manntjón að hlaðmenn voru f kvöld- mat er sprengjan sprakk. 300%. Stefndi hún upp á við fyrir neyðaráætlunina. Vegna verð- hækkana mun verðbólgan aukast um 30 prósentustig i júlí, miðað við 6,8 í maí. Neyðaráætlunin ger- ir hins vegar ráð fyrir talsverðri hjöðnun síðsumars og er spáð að- eins 3ja prósentustiga hækkun verðbólgunnar í október. Reyndi Romanov að flýja? Moskra, l.júlí. AP. GRIGORI Romanov, sem álitinn var annar valdamesti maður Sovét- ríkjanna og væntanlegur leiðtogi Sovétmanna, var rekinn úr stjórn- málaráði (forsætisnefnd) sovézka kommúnistaflokksins. Blöð í ísrael segja orðróm á kreiki í Moskvu um að Romanov hafi verið settur af eftir að sovézk herskip stöðvuðu hann og hjákonu hans í finnskri lögsögu á flótta á snekkju leiðtog- ans. Romanov var í hópi yngstu manna í stjórnmálaráðinu, sem er æðsta valdastofnun Sovétríkj- anna. Við sæti hans tekur Edu- ard Shevardnadze, 57 ára leiðtogi kommúnistaflokksins í Georgíu, en hann þykir hafa staðið sig vel í baráttu gegn mútum og svarta- markaðsbraski í heimahéraði sínu. Romanov hefur á stundum valdið hneykslan með breytni sinni og braut hann gegn flokks- reglum nýlega er hann hóf sam- búð með ungri og þekktri dæg- urlagasöngkonu frá Leningrad. Sjá nánar „Romanov vikið úr forsætisnefndinni" á bls. 31.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.