Morgunblaðið - 02.07.1985, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLl 1985
61
Dalvískar kon-
ur gróðursettu
trjáplöntur
Dmlvík, 27. júní.
Kvcnréttindadaginn, 19. júní, efni af því að 70 ár eru liðin frá því
gróðursettu dalvískar konur trjá- að konur öðluðust kosningarétt og
plöntur I landi Dalvíkurbaejar í til- kjörgengi hér á landi og jafnframt til
Bæjarfulltrúarnir Guðlaug Björnsdóttir og Svanfríður Jónasdóttir gróður-
setja fyrstu plönturnar á gróðursetningardegi dalvískra kvenna.
Dráttarvélin dregin á land, óskemmd að mestu. Morgunblaíið/Ævar
Dráttarvél
heldur til hafs
að minnast loka kvennaáratugar
Sameinuðu þjóðanna.
Kvenfélagið Vaka á Dalvík stóð
fyrir fjáröflun til þessarar gróð-
ursetningar. Takmarkið var að
gróðursetja 1—2 plöntur fyrir
hverja konu á Dalvík. Mikill áhugi
var á málinu og safnaðist væn
fjárupphæð til trjáplöntukaupa.
Akváðu konurnar að gróðursetja í
gróðurreit í Böggvisstaðafjalli
ofan bæjarins. Fyrst var plantað
út í þennan reit árið 1962, en það
var vestur-íslenski Svarfdæling-
urinn Sophonias Thorkelsson sem
gaf árið 1958 allverulega fjárhæð
til þessa. Fram til þessa hefur
þessi gróðurreitur fengið litla um-
hirðu og ákváðu konurnar að nú
skyldi reynt að snúa við blaðinu og
stuðlað að því að þarna mætti
vaxa upp vænn skógarreitur.
Gróðursetningin hófst með því
að þær tvær konur sem nú sitja í
bæjarstjórn á Dalvík, Guðlaug
Björnsdóttir og Svanfríður Jón-
asdóttir, settu fyrstu plönturnar
niður, stöndugar asparplöntur.
Um 100 konur tóku þátt í gróður-
setningunni og var um 1100 plönt-
um plantað út þennan dag, en á
Dalvík eru konur um 650 talsins.
Kvenfélagskonur lýstu áhuga sín-
um á að halda áfram gróðursetn-
ingu í reitinn á næsta ári, því sýnt
væri að þar mætti vel rækta upp
sæmilegar trjáplöntur og skapa
skjólgott og skemmtilegt útivist-
arsvæði fyrir íbúa Dalvíkur.
Fréttaritarar.
EskjfírAi, 27. júní.
Á miðvikudaginn síðastliðinn
vildi það til, að stór dráttarvél í
eigu útgerðarfélagsins Þórs hf.
lagði land undir hjól og rann af
stað í átt til hafnarinnar og út af
hafnarbakkanum, þar sem er mal-
arkambur. Dráttarvélin var með
stóran tengivagn aftan í. í fjör-
unni losnaði tengivagninn frá, en
dráttarvélin hélt áfram til hafs og
ók eftir hafsbotninum uns hún var
komin á fimm til sex metra dýpi
og um 30 til 40 metra frá landi, en
marbakkinn er snarbrattur út í
höfnina. Þurfti að fá kafara til að
kafa með dráttartóg niður að vél-
inni og var hún síðan dregin í
land, óskemmd að öðru leyti en
þvi, sem sjávarseltan veldur.
Ævar.
Vöruloftið Sigtúni 3
S
^ SUMAR
Kvendeild:
Ljósar buxur og pils.
Verö 595-865
Stretchb. margir litir. Verð 990
Kvenjakkar. Verö frá 240
Jogging gallar. Verö 890
Blússur. Verö frá 325
Sundbolir. Verö 240
Bikini. Verö 240
Herradeild:
Herraföt án vestis. Verö 3.589
Herraföt með vesti. Verö 4.489
Stakir jakkar. Verö frá 990
Sokkar. Verö 85
Jogging gallar. Verö 890
Skyrtur. Verö frá 190
A barnið
í sveitina:
íþróttaskór. Verö 299
Stígvél. Verö 299
Náttföt. Verð 324
Sokkar. Verö 25
Bolir. Verö 232
Gallabuxur. Verö 195
Peysur. Verö 195
Vefnaöarvörur:
Sængurfataléreft. Verö 115 pr.m
Lakaléreft. Verö 110 pr.m
Gardínuefni. Verö 45 pr.m
Diskaþurrkur. Verö 35
Þvottapokar. Verð 36
Baöhandklæöi. Verö 249
Prjónagarn. Verö 15 kr. 50 gr
aSERTILBOÐ
^ ' Skórfrá
Opnunartími:
Mánud—miövikud. kl. 10—18.00
fimmtudaga—föstudaga kl. 10—20.00
Laugardaga kl. 10—14.00
Heitt kaffi á könnunni
og skart
miklu úrvali
Vöruloftið,
Sigtúni 3,
sími 83075.
Barnastrigaskór
meó riflás
Litur: Ijósbleikt og Ijósblátt.
St. 20—25.
Póstsendum.
TÖPg
21212
^SKORINN
VELTUSUND11
EINANGRUNAR
GLER^-
Es)ah^3
Esja
---SÍMI
666160
Þú svalar lestrarfxxf dagsins
á <jírliim Moggans! /