Morgunblaðið - 02.07.1985, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.07.1985, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1985 19 Náttúruspjöll á friðlýstu landi — eftir Kristján Bersa Ólafsson Þegar menn óttast að hætta steðji að einhverjum þeim stað, sem er talinn merkilegur vegna náttúru sinnar, sögu eða einhvers annars, þá er gjarnan gripið til friðlýsingar. En friðlýsing á stað felur það í sér að hann eigi að fá að vera áfram eins og hann er, þar megi engu hrófla nema að vand- lega yfirveguðu ráði og með sam- þykki sérstakra eftirlitsaðila. Þetta ætti að vera nokkuð örugg vörn, en virðist því miður ekki vera það alltaf. Á 75 ára afmæli Hafnarfjarð- arbæjar fyrir tveimur árum sam- þykkti bæjarstjóm að óska eftir því að Hamarinn væri friðlýstur sem náttúruvætti og var formlega frá friðlýsingunni gengið á liðnum vetri. Þetta var gert án þess að sjáanleg væri nein sérstök hætta sem að Hamrinum gæti steðjað. Hann hafði fengið að vera í friði alla tíð, ef undan er skilið það rask sem var gert á sinum tíma, þegar til stóð að reisa þar húsmæðra- skóla, en þá var hamarsbrúnin stórskemmd á einum stað. { brekkunni suður af hamars- brúninni milli húsmæðraskóla- grunnsins og nýbyggingar Flens- borgarskólans hefur frá aldaöðli verið svolítill hvammur, að visu svo grunnur að ekki fannst vel hve skjólsæll hann var nema lagst væri niður. Hann var hluti af túni Hamarskots, en bæjarhúsin stóðu nokkurn veginn þar sem Flens- borgarskólinn er núna og í þessum hvammi mátti sjá minjar um gömul útihús og raunar lika um byssustæði frá stríðsárunum. Að sjálfsögðu var hvammurinn þýfð- ur eins og mest allt túnið, enda hafði búskapur lagst niður i Ham- arskoti áður en sú tiska komst á að rifa öll tún upp og gera úr þeim véltækar grassléttur. Ég nota hér þátið, af þvi að þessi hvammur er ekki lengur til. Jónsmessudaginn 24. júni sl. birt- ist allt i einu jarðýta á staðnum sem fór að róta þar til og stór vörubíll ók að henni hverjum farminum af öðrum af mold. Jarð- ýtan rótaði upp grjóti og sléttaði yfir allt með moldinni, og eftir tveggja daga vinnu var í stað hvammsins góða komið allstórt moldarflag, engu likara en ný- ræktarsléttu á sveitabýli. Þetta er framkvæmd af því tagi sem er næsta eðlileg þar sem menn hafa atvinnu af grasrækt, en hún ætti að vera óþörf á útivistarsvæði og óhugsandi á friðlýstu landi. Það má vel vera að menn venjist þessari sléttu þegar hún grær upp, alveg eins og menn hafa á rumura mannsaldri vanist húsmæðra- skólagrunninum og eru jafnvel farnir að lita á hann sem hluta af sjálfum Hamrinum, sem sögu- legar minjar er friðlýsingin hljóti einnig að taka til. Því að þrátt fyrir allt er grunnurinn vitnisb- Kristján Bersi Ólafsson „Nýræktarsléttan verð- ur sennilega aldrei ann- aö en vitnisburður um smekkleysi og skiln- ingsleysi á gildi þess að varðveita náttúruna ósnortna eftir því sem föng eru á.“ urður um hugsjónir og hann endurspeglar hluta af íslenskri skólasögu á sinn þögula hátt. En nýræktarsléttan verður sennilega aldrei annað en vitnisburður um smekkleysi og skilningsleysi á gildi þess að varðveita náttúruna ósnortna eftir því sem föng eru á. En í tilefni af þessu langar mig til að varpa fram fáeinum spurn- ingum til bæjaryfirvalda i Hafn- arfirði og náttúruverndaryfir- valda í landinu. Þær eru: 1. Hvenær var skipulagi Hamars- svæðisins breytt frá þeirri teikn- ingu sem samþykkt var fyrir nokkrum árum? 2. Hver eða hverjir tóku ákvörðun um að fara með Hamarinn á þann hátt sem nú hefur verið gert? 3. Hafa Náttúruverndarnefnd Hafnarfjarðar og Náttúruvernd- arráð lagt blessun sína yfir þessar framkvæmdir? Ég geri ráð fyrir að fleiri Hafn- firðingum en mér leiki hugur á að fá svör við þessum spurningum og þess vegna set ég þær opinberlega fram og vænti þess að svörin verði gefin á sama hátt. Höíundur er skólameistari Flens- borgarskóla í Hafnartírdi Brynjólfur heitinn Ingólfsson, en gjöfin er gefin til minningar um hann. Borgarbóka- safnið fær tónlistargjöf HJÓNIN, Ingólfur Th. Guðmundsson og Laufey Halldórsdóttir, Fornhaga 23 í Reykjavík, hafa gefið Borgar- bókasafni Reykjavíkur 1040 hljóm- plötur og 40 snældur ásamt 150 nótnabókum og öðrum bókum og tímaritum sem fjalla um tónlist. Gjöf- in er í minningu sonar þeirra, Brynj- ólfs Ingólfssöltar, sem lést 17. nóv- ember 1984. Var gjöfin afhent í Borg- arbókasafni, laugardaginn 15. júní sl. Stjórnarformaður Borgarbóka- safns, Elín Pálmadóttir, þakkaði fyrir hönd safnsins og Reykjavík- urborgar, þessa höfðinglegu gjöf og mætu minningargjöf um soninn, Brynjólf Ingólfsson, sem unni æðri tónlist og var vel heima í öllu sem henni viðkom. En svo vel háttar til þegar Borgarbókasafni berst þetta mikla og dýrmæta plötusafn með verkum mestu tónskálda veraldar og flutt af frægustu hljómsveitum og söngvurum, jafnvel heilu óper- urnar, þá er verið að útbúa í nýju útibúi í Gerðubergi, í fjölmennasta hverfi borgarinnar, aðstöðu til að hlusta á hljómlist í góðum tækjum og í ró og næði, en hljómplötukost- ur safnsins var fyrir sárafátækleg- ur. Setja bókaverðir þá hljómplöt- urnar á hjá sér, en gestir safnsins hlusta í sérstökum hlustunarkróki í heyrnartækjum eða hægt er að leika fyrir stærri hópa. Fylgja gjöf- inni nótnabækur með partitúrum af sumum óperunum, og m.a. hægt að lesa þær með eða sérstaklega. (FréU fr« Borgarbókasafni Keykjavíkur.) Nýr eða notaður? Alla sem reynslu hafa af bílavið- skiptum langar að eignast nýjan bíl. Hvers vegna? Ekki endilega vegna slæmrar reynslu af notuðum bílum. Notaðir bílar geta verið nánast eins góðir og nýir. Þú getur verið mjög heppinn og fengið vel með farinn bíl á verði sem er í litlu samræmi við aldur og útlit. En þú getur líka verið óheppinn. Þú veist aldrei fullkomlega hvort bíllinn er í því ástandi sem hann Ktur út fyrirað vera. Þú ert ekki öruggur. Og það er kjarni málsins. Þú tekur áhættu. Með nýjum bíl kaupirðu öryggi. Auk þess fylgir því sérstök án^egja að setjast undir stýri í bíl sem kemur „beint úr kassanum". Bíl sem þú kynnist betur en nokkur annar. Við bjóðum greiðslukjör sem jafnast fyllilega á við það besta sem gerist á markaði notaðra bíla - og tökum notaða bílinn þinn upp (. Láttu okkur um að taka áhættuna! BÍLVANGUR Sf= HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.