Morgunblaðið - 02.07.1985, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 02.07.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐID, ÞRIDJUDAGUR 2. JtlLt 1985 51 Sólmundur Sigurðs- son — Minning Fæddur 2. júlí 1899 Dáinn 24. júní 1985 Fyrir fáeinum dögum hringdi Sólmundur frændi minn til mín. Brindið var m.a. að segja mér að nú skyldi ég koma og sjá það sem hann væri búinn að skrifa niður um móður sína, en hún var föður- systir mín og ég hafði látið í ljósi áhuga á að fá að vita meira um hennar yngri ár. Af ýmsum ástæðum dróst að ég kæmist til hans og áður en af því varð var mér tilkynnt lát hans. Hann lést 24. júní og verður jarðsunginn í dag, á afmælisdaginn sinn. Sólmundur fæddist að Smiðju- hólsveggjum í Álftaneshreppi 2. júlí 1899 og var þvf tæpra 86 ára er hann lést. Foreldrar hans voru Sigurður Otúelsson og Erlendína Erlendsdóttir sem bjuggu á Mýr- um vestur í hálfa öld, fyrst í Smiðjuhólsveggjum, síðan í Siggu- seli og eru báðir þessir bæir nú löngu komnir í eyði. Síðast bjuggu þau í Leirulækjarseli, en þar býr nú yngsti sonur þeirra, Gunnar, ásamt Reyni syni sínum. Foreldrar Sigurðar voru Otúel Guðnason og Þuríður Sigurðar- dóttir sem bjuggu á Nauthól í Álftaneshreppi, en foreldrar Er- lendínu voru Guðrún Þorkelsdótt- ir og Erlendur Erlendsson, sem bjó á Miðbýlu á Akranesi. Þau Sigríður og Erlendfna eign- uðust sjö börn. Elstur var Otúel Sólmundur, næstur var Guðmund- ur, f. 1902, d. 1905, siðan komu Guðrún, f. 1903, Þuríður, f. 1905, og Ingólfur, f. 1908. Þessi þrjú síð- asttöldu börn dóu öll úr barna- veiki á tæplega hálfs mánaðar tímabili árið 1911 og voru jarðsett samtímis. Árið 1912 fæddist þeim hjónum sonurinn Guðmundur Valgeir, sem lést á sl. ári og yngst- ur var Erlendur Gunnar, f. 1915. Sólmundur stundaði nám við Hvítárbakkaskóla veturna 1917—19 og eftir það kenndi hann einn eða tvo vetur í Álftanes- hreppnum. Síðan fluttist hann til Borgarness þar sem hann kynntist eftirlifandi konu sinni, Steinunni Magnúsdóttur frá Fossi í Stað- arsveit og giftust þau árið 1925. I Borgarnesi stundaði Sólmund- ur verslunarstörf til ársins 1933, er hann réðst til Kaupfélags Borgfirðinga og vann þar skrif- stofustörf til ársins 1955. Þá urðu mikil þáttaskil i lífi þeirra hjón- anna. Þau fluttust austur i ölfus og byggðu þar upp frá grunni ný- býlið Hlíðartungu. Það hlýtur að þurfa mikinn kjark og dugnað til þess að hefja búskap og byggja allt upp þegar fólk er komið yfir miðjan aldur eins og þau voru. Til að byrja með höfðu þau kúabú- skap, en fljótlega bættust hænsni við og síðustu árin höfðu þau ein- göngu hænsnabúskap í Hlíðar- tungu. Þau hjónin stunduðu búskapinn til 1971, en þá fluttust þau til Reykjavíkur og keyptu sér íbúð á Langholtsvegi 19 og þar bjuggu þau þar til fyrir tæpum tveim ár- um að þau fluttust til Magnúsar sonar síns. Þau voru svo búin að vera þrjá mánuði á Minni-Grund er Sólmundur lést. Eftir að þau settust að I Reykja- vík sneri Sólmundur sér að ætt- fræði og sat oft á Þjóðskjalasafn- inu. Löngum sat hann við skriftir, orti ljóð og skrifaði fróðlega frá- sagnarþætti sem sumir hafa birst í „Borgfirskri blöndu". Hann var víðlesinn og fróður um margt og átti gott safn bóka. Sólmundur og Steinunn eignuð- ust fimm börn. Elstur er Kári, f. 4. 4. 1926. Hann er búsettur í Reykjavík og stundar sjómennsku, en er lærður klæðskeri. Hann var kvæntur Ingibjörgu Gunnlaugs- dóttur og eiga þau þrjú börn. Þór- dís, f. 19. 9. 1927, búsett í Kópa- vogi. Hún er gift Mariusi Arth- úrssyni frá Akranesi og eiga þau þrjú börn. Elín, f. 28. 8. 1929, bú- sett I Reykjavík. Hún var gift Jóni Bárðarsyni og eiga þau fjögur börn. Sigurður, f. 1.10.1930, smið- ur í Hveragerði, kvæntur Auði Guðbrandsdóttur og eiga þau fimm börn. Sigurður er listfengur og hefur haldið margar sýningar á verkum sínum. Magnús, f. 14. 10. 1939, húsvörður í Iðnskólanum. Hann var kvæntur Margréti Gunnarsdóttur, sem nú er látin, og áttu þau einn son. Sambýlis- kona hans er Karen Jónsdóttir. Um fátt af mínu frændfólki á ég jafn góðar minningar og þau mæðginin Erlendínu og Sólmund. Mér fannst hún ganga næst móður minni og alltaf minnist ég hlýju og alúðar Sólmundar við mig, mömmubarnið, þegar ég var að heimsækja móður hans í Leiru- lækjarsel og þurfti að gista í Borg- arnesi, en þá voru samgöngur ekki orðnar eins góðar og nú. Fyrir þessi góðu kynni mun ég alltaf verða þakklát. Ég votta Steinunni, börnum Sól- mundar og öðrum afkomendum samúð mína og minnar fjölskyldu. Jóhanna Björnsdóttir t Eiglnkona min, LAUFEY HALLDÓRSDÓTTIR, hjúkrunarlræöingur, andaöist í Landakotsspítala 30. júní sl. Ingólfur T. Guómundason. t Elsku drengurinn okkar og bróöir minn, KRISTOFER JÓHANNSSON, lést af slysförum 22. Júni. Jarðarförin hefur farið fram. Aldía Drífa Þóröardóttir, Jóhann Sigurbergaaon, Sara JÓhannadóttir. t JÓN BJÖRNSSON, húsgagnabólstrari fré Karlsskéla viö Rayöarf jörð, andaöist föstudaginn 28. júni í St. Fransiskusspítala í Stykkishólmi. Útför hans fer fram föstudaginn 5. júli kl. 13.30 frá Bústaöakirkju. Bergur Jónsson, Halldór S. Magnússon. + Bróöir minn og mágur, SIGURÞÓR INGI ÓLAFSSON bókbindari, Hofteig 10, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 3. júli kl. 13.30. Auöur Ólafsdóttir, Ásgeir Eirfksson. + Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, ÓLAFAR GUDMUNDSDÓTTUR, Selfossi. Kærar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á Sjúkrahúsi Suöurlands fyrir góöa umönnun. Einar Hansson, Hrönn Pétursdóttir, Þorbjörg Hansdóttir, Ægir Þorgilsson, Guórún Hansdóttir, Þréndur Ingvarsson, Ólafía Hansdóttir, Péll Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, MARGRÉT GUNNARSDÓTTIR i VON, Laugavegi 55, lést í Borgarspítalanum 30. júni. Gyöa Gunnarsdóttir, Guöriöur Gunnarsdóttir, Danfel Helgason, Sigríöur Gunnarsdóttir, Jóhann Marel Jónasson, Auöur Gunnarsdóttir, Haraldur Árnason, Edda Gunnarsdóttir, Konréö Adolphsson. Sonur minn, stjúpsonur, bróöir og mágur, GUNNLAUGUR BÖRKUR ÞÓRISSON, Bragagötu 30, veröur jarösunginn frá Bústaöakirkju miövikudaginn 3. júlí kl. 13.30. Sóley Sturlaugsdóttir, Magnús Þórisson, Sigríður Jóna Eggertsdóttir, Lýöur Viktorsson, Sigurlaug Björk Jóhannesdóttir. + Útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa, ÞÓRARINS SVEINSSONAR framkvæmdastjóra, Bergstaöastræti 82, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík i dag, þriöjudaginn 2. júli, kl. 13.30. Þeir sem vilja minnast hins látna vinsamiega láti Minningarsjóö Fríkirkjusafnaöarins eöa líknarsjóöi njóta þess. Ingibjörg Árnadóttir, Árni Þórarinsson, Steinunn Þórarinsdóttir, Jón Ársæll Þóröarson og barnabörn. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu vlö andlát og útför HJÁLMARS KARLSSONAR, Stigahliö 38. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítalans. Aöstandendur. + Innilegt þakklæti fyrir auösýnda samúö viö andlát og jaröarför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur, ömmu og langömmu, SIGURLAUGAR EINARSDÓTTUR fré Brimnesi, Skagafiröi, Ölduslóö 46, Hafnarfiröi. Ólafur Einarsson, Einar Ólafsson, Guöfinna Kristjénsdóttir, Jósef F. Ólafsson, Sólveig Ásgeirsdóttir, Grétar Ólafsson, Hólmfríóur Magnúsdóttir, Sigríöur Ólafsdóttir, Hilmar Ólafsson, Rannveig Kristinsdóttir, Siguröur Ólafsson, Auöur Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Vegna jarðarfarar ÞÓRARINS SVEINSSONAR, fram- kvæmdastjóra, verður lokaö frá kl. 12 í dag, þriðjudaginn 2. júlí. Slippfélagiö í Reykjavík hf. Mýrargötu 2 og Dugguvogi 4. Tökum að okkur að rétta og lagfæra legsteina í kirkjugörðum. S.HELGASON HF STEINSMKUA SkEMMUVEOt 48 SÍMI 78677 Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteína S.HELGASON HF STEINSMKUA SKEMMUVEGI 48 SWI70877
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.