Morgunblaðið - 02.07.1985, Blaðsíða 64
KEILUSALURINN
OPINN 10.00-00.30
tfgmtdafrlfe
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR.
Bensínhækkunin:
FÍB fær ekki
upplýsingar
FÉLAG íslenskra bifreiðaeigenda fær ekki upplýsingar um forsendurnar
fyrir síðustu bensínverðhækkun, eins og félagið hafði óskað eftir við verð-
lagsyfirvöld. Skýringin er sú að forsendurnar eru trúnaðarmál milli verðlags-
yfirvalda og olíufélagana, en FÍB er velkomið að fá skiptingu bensínverðs,
eins og það hefur fengið á undanförnum árum.
„Ég fékk þessar upplýsingar hjá
aðstoðarverðlagsstjóra, Gunnari
Þorsteinssyni, í dag,“ sagði Jónas
Bjarnasson, framkvæmdastjóri
FÍB, í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi. „Það virðist sem þessar
forsendur séu leyndarmál og þess
vegna munum við í FÍB reyna að
reikna út eðlilegt bensínverð sam-
kvæmt öðrum gögnum sem okkur
eru tiltæk. Mér skilst að trúnaður
ríki á miili Verðlagsstofnunar og
olíufélaganna um forsendurnar
sem olíufélögin byggja kröfur sín-
ar um hækkun bensínverðs á. Við
vildum að fulltrúi FÍB fengi að-
gang að þessum gögnum, svo að
hægt væri að leggja óvefengjan-
legar upplýsingar fyrir almenn-
ing. Það pukur sem hefur ríkt í
þessum málum er óþolandi, en því
miður er þessu svona háttað,"
sagði Jónas að lokum.
Hvítá í Borgarfirði:
Mjög góð lax-
veiði í netin
MJÖG góð laxveidi hefur verið að undanfbrnu hjá netabændum við
neðri hluta Hvítár í Borgarfirði. Lítil veiði var í byrjun laxveiðitíma-
bilsins en fyrir rúmri viku fór hún að glæðast og var mjög góð í
síðustu viku. Aftur á móti hefur stangveiðin verið treg fram undir
þetta og margir veiðimenn komið
ekki tómhentir heim.
Þorkell Fjeldsted bóndi í
Ferjukoti sagði að veiðin nú
væri vel yfir meðallagi hjá þeim
og Morgunblaðið hefur fregnir
af því að „mokveiði“ sé hjá sum-
um bændum. Þorkell sagði að
laxinn væri heldur léttari en oft
á þessum tíma, eða 8—10 pund í
stað 10—12 punda. Hann væri
við hjá netabændum til að koma
hins vegar mjög fallegur og góð-
ur. Þá sagði hann að farið væri
að bera á smálaxi, 5—6 punda,
þannig að nýjar göngur virtust
vera á ferðinni. Þorkell sagði að
stangveiðin hefði verið léleg í
borgfirsku ánum, en taldi að það
væri núna að lagast.
MorKunblaöið/Bjarni.
Seiðin háfuð úr flotkvíum Laxalóns í Hvammsvík í Hvalfirði.
Fyrsti seiðafarmurinn frá
Laxalóni farinn til Noregs
NORSKT tankskip, Gunnar Junior, kom til landsins í fyrrinótt og sótti
fyrsta farminn af seiðum sem laxeldisstöðin Laxalón hefur selt til
fiskeldisstöðva í Norður-Noregi. Seiðin voru háfuð úr flotkvíum Laxa-
lóns í Hvammsvík í Hvalfirði og sett þar um borð í skipið.
Alls fara 50 þúsund laxaseiði og 350 þúsund regnbogasilungsseiði
frá Laxalóni til Noregs í ár og eru það 3 skipsfarmar. í þessari ferð
fóru öll laxaseiðin og 50 þúsund regnbogasilungsseiði. Að sögn
Ólafs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Laxalóns, gekk vel að koma
seiðunum um borð. Sagði hann að allt virtist vera í lagi. Sagði hann
að silungur yrði nú settur í kvíarnar og hann alinn þar fram á
haust, og tilraunir yrðu ef til vill einnig gerðar með að ala lax í
þeim í sumar og næsta vetur.
Kanadísk stjómvöld opna fyrir erlenda fjárfestingu í fiskiðnaði:
Taka íslendingar þátt
í fyrirtækjum í Kanada?
„KANADASTJÓRN ætlar sér að I á meðal er ráðgert að opna fyrir I hvort til greina kæmi að íslend- I þessa stefnu þegar hann var í
opna í mun meiri mæli fyrir er- erlenda fjárfestingu í flskiðnaðin- ingar fjárfestu í flskiðnaði í Kan- opinberri heimsókn í Kanada nú
lenda fjárfestingu í landinu, og um,“ sagði Halldór Ásgrímsson ada. fyrir skömmu. „Þegar þessi stefna
markmiðíð með því er að draga úr sjávarútvegsráðherra í samtali við Halldór sagði að kanadísk kemst til framkvæmda má gera
atvinnuleysi því sem þar ríkir. Þar | Morgunblaðið, er hann var spurður | stjómvöld hefðu upplýst sig um | ráð fyrir að ýmsar þjóðir hugi að
því að fjárfesta í þessum atvinnu-
vegi,“ sagði Halldór.
Halldór var spurður hvort hann
teldi slíka fjárfestingu fýsilegan
kost fyrir okkur íslendinga: „Við
eigum náttúrlega afar lítið fjár-
magn í slíkt, og auk þess verðum
við að gera okkur grein fyrir að
t.d. á Nýfundnalandi eiga þeir við
mikil staðbundin vandamál að
etja. Það getur verið erfitt fyrir
erlenda aðila að eiga við slík mál,
svo sem launamál og verkalýðs-
mál. Hins vegar held ég að rétt
verði að athuga hvort íslenskir að-
ilar gætu hugsað sér að eiga hlut í
fyrirtækjum þar, með það í huga
að selja vörur þeirra að einhverju
leyti á erlendum mörkuðum, því
ég tel að við höfum yfir meiri
markaðsþekkingu að ráða en mörg
þessara fyrirtækja í Kanada.“
Réðst á 14 ára pilt
Tvítugur maður handtekinn vegna málsins
UÐLEGA tvítugur maður réðst á
14 ára pilt í ísbúðinni á Suður-
landsbraut 12 og nefbraut, auk
þess sem hann veitti honum aðra
áverka á andliti. Árásarmaðurinn
vatt sér fyrirvaralaust að piltinum
og sló niður og hafði sig síðan á
brott. Hann var handtekinn í gær.
Árásarmaðurinn var í bifreið
á Suðurlandsbraut ásamt félaga
sínum, sem ók, og vinkonu þegar
þau sáu þrjá pilta við götuna.
Einn þeirra stökk út á götuna,
eins og til að ögra þeim, en sneri
síðan við. Mennirnir töldu
ástæðu til að brýna fyrir piltin-
um hve leikur þessi væri hættu-
legur, að sögn ökumanns, og
hófu því leit. físbúðinni sáu þeir
pilt, sem þeir töldu að væri hinn
sami og ögraði þeim. Þegar öku-
maðurinn hafði stöðvað bifreið-
ina fyrir utan ísbúðina vatt fé-
lagi hans sér út, gekk inn í búð-
ina og sló piltinn fyrirvaralaust
niður.
Pilturinn var fluttur í slysa-
deild til aðgerðar og var þar enn
í gær. Rannsóknarlögregla ríkis-
ins hóf rannsókn málsins og
hafði upp á ökumanni bifreiðar-
innar á sunnudag og var árásar-
maðurinn handtekinn I gær.
Lögreglan hafði í gær ekki haft
tal af piltinum, sem ráðist var á.
Starfsmaður
Pósts og síma:
Játar að
stela fé
úr bréfum
STARFSMAÐUR Pósts og síma á
pósthúsi á Reykjavíkursvæðinu hef-
ur játað að hafa tekið fé úr bréfum,
sem stfluð voru á fyrirtækið B.
Magnússon og leikur grunur á að
hann hafl á undanförnum mánuðum
jafnframt fyrirkomið bréfum til
fyrirtækisins. Óvíst er hve miklu fé
hefur verið stolið, en grunur leikur á
að það sé um 30 þúsund krónur.
Rannsóknarlögregla rikisins
hefur að undanförnu rannsakað
hvarf peninga úr bréfum sendum í
almennum pósti til B. Magnússon-
ar. Fyrirtækið hefur sent út vöru-
lista og er um að ræða staðfesting-
argjald á pöntunum til fyrir-
tækisins. Staðfestingargjaldið
mun vera 200 krónur. Vegna þessa
skal fólki bent á að ekki er ætlast
til að peningar séu sendir i al-
mennum pósti.
Reykhólasveit:
Talið að
elding
hafi kveikt
í húsinu
MtAhÚNum Rejkhóiureit, 1. júlí.
UM hádegisbilið kom upp eldur í
íbúðarhúsinu á Seljanesi. Magnús
Jónsson, bóndi þar, var staddur í
fjárhúsum og heyrði frá heimtaug
rafveitunnar eins og skotið væri af
haglabyssu. Hann hljóp heim til að
athuga hvað um væri að vera og
lagði þá reyk úr veggnum skammt
frá eldhúsglugganum. Rafmagni
hafði slegið út, en í þessum vegg
hússins eru engar raflagnir.
Slökkviliðið í Reykhólasveit
kom á staðinn, en þá var búið að
slökkva eldinn að mestu. Ekki er
talið ósennilegt að eldingu hafi
lostið niður og munu menn frá
rafmagnseftirlitinu koma á stað-
inn og reyna að grafast fyrir um
orsakir.
Skemmdir urðu ekki mjög
miklar og er það því að þakka
hvað eldsins varð fljótt vart.
íbúðarhúsið á Seljanesi er járn-
varið timburhús.
Sveinn
Ekið á átta
ára dreng
EKIÐ var á átta ára gamlan dreng í
Kópavogi um sexleytið í gær. Slysið
átti sér stað í Reynihvamminum.
Drengurinn hafði verið að koma
eftir hjólreiðagötu, sem liggur milli
Reynihvamms og Heiðahvamms, er
hann varð fyrir bifreiðinni.
Drengurinn var fluttur á slysa-
deild. Ekki var vitað í gærkveldi
hversu alvarleg meiðsli hans
voru, en um höfuðmeiðsl mun
hafa verið að ræöa.