Morgunblaðið - 02.07.1985, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLl 1985
Geisla-
baugsmenn
Stundum fer veruleikinn á
skjön rétt einsog í kaffiaug-
lýsingunni. Þannig fannst mér
síðastliðinn föstudagseftirmiðdag,
að ég væri ekki lengur staddur
heima á gamla góða Fróni. Ég var
á heimleið í bílnum mínum og tek
eftir að gamalkunnug verslunar-
bygging hefur breytt um svip,
kominn tjaldhiminn yfir einn inn-
ganginn, ég ek lengra og sé þá
stærðar skilti er gnæfir af bíla-
planinu, á skiltinu er ör er bendir
í átt til tjaldhiminsins, fyrir ofan
örina stendur skýrum stöfum: Am-
erican style. Ég ek heim að húsi,
haltra í sjónvarpsstólinn og kveiki
á íslenska rikissjónvarpinu. Hví-
líkur léttir að hafa ekki lengur
fyrir augunum gráleitt bílaplan,
sem er einsog nákvæm eftirmynd
bílaplans bandarísks stórmark-
aðs... hugsa ég og lít yfir fag-
urgrænan golfvöllinn. En draug-
urinn er ekki búinn, í stað þess að
hlýða á hina stoltu tungu forfeðr-
anna, hlusta ég næsta hálftímann
á breskan þul lýsa tíðindalausri
golf-keppni, og ég sem hafði staðið
í þeirri trú að íslenskum sjón-
varpsstöðvum væri ætlað að setja
íslenskt tal eða texta við allt er-
lent sjónvarpsefni.
Nytsamir
sakleysingjar
Það má eiginlega segja að ég
hafi vaknað af fyrrgreindum
draumi (þar sem skilin milli hins
íslenska sjálfs og hins engilsaxn-
eska nánast máðust út) er ég síðar
um kveldið horfði á bresk-banda-
rísku heimildarmyndina: Úr ösk-
unni í eldinn, en sú mynd greindi
frá örlögum fjögurra bandarískra
hermanna er börðust í Víetnam-
stríðinu. Þessir menn áttu það
sameiginlegt, að hafa drýgt hetju-
dáð í þágu fósturlandsins, en er
þeir komu loksins heim og mættu
ísköldu tómlæti samlanda sinna,
fór tilveran á skjön og nú sitja
þeir í dýflissum vegna líkams-
árása. Ég held að ég hafi sjaldan
séð jafn umkomulausar mannver-
ur og þessar fyrrum stríðshetjur.
Einn þeirra brast hvað eftir annað
í grát fyrir framan myndavélina
og enn hljóma glefsur úr tilsvör-
um þessara manna: Ég var átján
ára og hreifst af glæsiauglýsingu í
dagblaði... nú sé ég á hverri
nóttu bændafjölskylduna sem ég
myrti af því að þannig vildi til að
hún var stödd á átakasvæðinu ...
Ég vona bara að þeir sem græddu
og söfnuðu gulli, á hinni 12—15
ára löngu styrjöld, verði næst
sendir inní frumskóginn... ég
óska þess eins að komast heim.
Fosshjartað
Það er ægilegt til þess að hugsa,
hversu valdsmenn hafa gegnum
aldirnar teflt fram á blóóvöllinn
hinum nytsömu sakleysingjum.
Hér heima á Fróni sendum við þá
hinsvegar uppá fjöll. Árangur
einnar slíkrar fjallaferðar barst
okkur á skjáinn á sunnudagskveld
I myndinni: Fosshjartað slær.
Mynd þessi var tekin í ríki Lands-
virkjunar og sýndi okkur virkjanir
í svo fögru veðri að þær umbreytt-
ust í helgimusteri. Éinn hinn nyt-
sömu sakleysingja samdi síðan
slíkan dýrðaróð um ríki Lands-
virkjunar að uppaf höfðum
starfsmanna óx svo mikilfengleg-
ur geislabaugur að ég fékk ofbirtu
í augun þá sjálfir stjórnarmenn-
irnir blöstu við. Landsvirkjun er
merk stofnun sem á skilið raun-
sanna umfjöllun fremur en háðskt
oflof.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / S JÓN VARP
Jack Hedley og Betty Arvaniti í hlutverkum sínum sem
Alan Haldane og Annika Zeferis.
„Hver greiðir ferjutollinn?“
■I Annar þáttur
40 breska fram-
~ haldsmynda-
flokksins „Hver greiðir
ferjutollinn?" er á
dagskrá sjónvarpsins kl.
21.40 í kvöld. Alls eru
þættirnir átta.
— annar þáttur
Með aðalhlutverkin
fara Jack Hedley og Betty
Arvaniti.
Efni fyrsta þáttar var á
þá leið að Alan Haldane
fór til Krítar þar sem
hann starfaði á stríðsár-
unum. Þar hittir hann
fyrir forna vini og fjend-
ur, áður óþekkta dóttur og
heillandi konu, sem reyn-
ist vera móðursystir
hennar. Þýðandi er Jón 0.
Edwald.
„Raddir, sem drepa“
— fimmti þáttur
■I Fimmti þáttur
35 framhaldsieik-
“ rits rásar 1,
„Raddir, sem drepa",
verður endurtekinn í út-
varpi í kvöld klukkan
22.35. Áður var hann
fluttur sl. sunnudag.
í fjórða þætti gerðist
það helst, að Alex er
boðaður á fund Holms
lögreglufulltrúa, en
Fransisca kemst að því að
um gabb er að ræða og
varar Alex við í tíma. Þau
halda til húss Tofts blaða-
manns og bregður mjög er
þau sjá að húsið er brunn-
ið til kaldra kola og Toft
látinn. Þau eru sannfærð
um að um íkveikju hafi
verið að ræða, en Holm er
ekki trúaður á það fremur
en Bermúdaþríhyrning
eða dularfullar raddir.
Afstaða hans breytist þó
þegar Ginný finnst látin
og raddirnar koma fram á
segulbandi.
Leikendur í 5. þætti eru:
Jóhann Sigurðarson, Þóra
Friðriksdóttir, Anna
Kristín Arngrímsdóttir,
Erlingur Gíslason,
Ragnheiður Tryggvadótt-
ir, Valur Gíslason, Pétur
Einarsson, Arnór Benón-
ýsson, Viðar Eggertsson,
Sigurjóna Sverrisdóttir,
Ellert Ingimundarson,
Steindór Hjörleifsson og
Jóhannes Arason. Tækni-
menn eru Runólfur Þor-
láksson og Friðrik Stef-
ánsson.
David Suzuki kynnir í þættinum „Vötn í voða“.
„Vötn í voða“
^■■H Kanadísk heim-
()A 40 ildamynd,
Li\J— „Vötn í voða“,
er á dagskrá sjónvarpsins
klukkan 20.40 í kvöld.
Myndin er um vötnin
miklu á landamærum
Bandaríkjanna og Kana-
da, mikilvægi þeirra og
uggvekjandi mengunar-
hættu sem yfir þeim vofir.
Markmið þáttarins er
m.a. það að koma því inn
hjá fólki að eiturefni bæt-
ast í vötn þessi á hverjum
degi, safnast saman og
spilla fyrir lífkeðjum. I
þættinum kemur fram
hversu lítið þingmenn
hugsa yfirleitt um um-
hverfismál. Umhverfis-
málaráðherra Kanada í
stjórn Trudeaus segir að
almúginn viti miklu meira
en ráðamenn, sem ekki
hafa enn þann dag í dag
skilið mikilvægi þeirra.
Ekki er nóg að fólkið
kvarti. Ráðamenn heimta
skýr svör varðandi heilsu-
farsáhrif hinna ýmsu efna
sem samankomin eru í
vötnum þessum. Þýðandi
er Bogi Árnar Finnboga-
son.
ÚTVARP
^—. ■
ÞRIÐJUDAGUR
2. júli
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
Morgunutvarp. 7.20 Leik-
fimi. Tilkynningar.
7.55Daglegt mál. Endurt. þátt-
ur Valdimars Gunnarssonar
fré kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá. 8.15 Veöurfregnir.
Morgunorð: — Jónas Þór-
isson, Hverageröi, talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Litli bróðir og Kalli á þak-
inu“
eftir Astrid Lindgren. Sigurö-
ur Benedikt Björnsson les
þýöingu Sigurðar Gunnars-
sonar (11).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. Þulur velur
og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
10.45 „Ljáðu mér eyra“
Málmfrlöur Sigurðardóttir á
Jaðri sér um þáttinn.
RÚVAK.
11.15 I fórum mlnum
Umsjón: Ingimar Eydal.
RÚVAK.
12.00 Dagskrá Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
13.30 Inn og út um gluggann
Umsjón: Emil Gunnar Guö-
mundsson.
14.00 Tónleikar
14.30 „ Hákarlarnir" eftir Jens
Björneboe
Dagný Krfetjánsdóttir þýddi.
Kristján Jóhann Jónsson lýk-
ur lestrinum (21).
14.30 Miðdegistónleikar
a. „Hljómsveitin kynnir sig“
eftir Benjamin Britten. Enska
kammersveitin leikur; höf-
undurinn stjórnar.
b. „Tobbi túba" eftir
George Klefeinger. Sinfónlu-
hljómsveit islands leikur; Páll
P. Pálsson. Einleikari: Bjarni
Guömundsson. Sögumaöur:
Guðrún Stephensen.
c. Tilbrigöi fyrir planó og
hljómsveit eftir George
Gershwin. David Parkhouse
og Hátlöarhljómsveit Lund-
úna leika; Bernard Herr-
mann stjórnar.
15.15 Út og suður
Endurtekinn þáttur Friðriks
Páls Jónssonar frá sunnu-
degi
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Upptaktur
Guðmundur Benediktsson.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 „Sumar á Flambards-
setri“ eftir K.M. Peyton
Silja Aöalsteinsdóttir les
þýöingu sina (9).
1925 Guðir og hetjur f fornum
sögnum
Fimmti þáttur
Astralsk-svissneskur mynda-
flokkur I sex þáttum um
grlskar og rómverskar goð-
sagnir.
Þýöandi og þulur Baldur
Hólmgeirsson.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20J0 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Vötn i voða
Kanadfek heimildamynd um
vötnin miklu á landamærum
17A5 Tónleikar
17.50 Slðdegisútvarp
Sverrir Gauti Diego
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.45 Til-
kynningar.
Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Sviti og tár
Guörún Jónsdóttir stjórnar
þætti fyrir unglinga.
20.40 A hátiöarári tónlistar
Haukur Guðlaugsson, söng-
málastjóri, flytur synodus-
erindi.
21.05 Rosalyn Tureck leikur á
sembal
a. Arfa og tilbrigöi eftir Jean
Philippe Rameau.
b. Króatfsk fantasla og fúga
I d-moll eftir Johann Sebasti-
an Bach.
21.30 Útvarpssagan: „Leigj-
andinn" eftir Svövu Jakobs-
dóttur.
Höfundur byrjar lesturinn.
ÞRIÐJUDAGUR
2. júll
Bandarikjanna og Kanada,
mikilvægi j>eirra og uggvekj-
andi mengunarhættu sem
yfir jseim vofir.
Þýðandi Bogi Arnar Finn-
bogason.
21.40 Hver greiðir ferjutollinn?
Annar þáttur
Breskur framhaldsmynda-
flokkur I átta þáttum.
Aðalhlutverk: Jack Hedley
og Betty Arvaniti.
Efni fyrsta þáttar: Alan Hal-
dane fer til Krltar þar sem
22.00 Tónleikar
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orö kvöldsins.
22.35 Leikrit: „Raddir sem
drepa" eftir Poul Henrik
Trampe.
Fimmti þáttur endurtekinn.
Þýðandi: Heimir Pálsson.
Leikstjóri: Haukur J. Gunn-
arsson. Hljóölist: Lárus H.
Grlmsson. Leikendur: Jó-
hann Siguröarson, Þóra
Friðriksdóttir, Anna Kristln
Arngrlmsdóttir, Erlingur
Glslason, Ragnheiöur
Tryggvadóttir, Valur Glsla-
son, Pétur Einarsson, Arnór
Benónýsson, Viðar Egg-
ertsson, Sigurjóna Sverris-
dóttir, Ellert Ingimundarson,
Viðar Eggertsson og Stein-
dór Hjörleifsson.
23.25 Kvöldtónleikar
a. „Vilhjálmur Tell", forleik-
ur eftir Gioacchino Rossini.
National-fllharmónlusveitin
leikur; Riccardo Chailly stj.
hann starfaöi á strlösárun-
um. Þar hittir hann fyrir forna
vini og fjendur, áður óþekkta
dóttur og heillandi konu,
sem er móðursystir hennar.
Þýðandi Jón 0. Edwald.
22.30 Óplumrækt og umhverf-
fevernd
Bresk fréttamynd um
óplumrækt I Thailandi og
eyöingu skóga af hennar
völdum.
Þýöandi og þulur Bogi Arnar
Finnbogason.
23.00 Fréttir I dagskrárlok.
b. Hátlðarforleikur op. 61
eftir Richard Strauss.
Filharmónlusveitin I Berlln
leikur; Karl Böhm stj.
c. Sigurmars úr óperunni
„Aidu" eftir Giuseppe Verdi.
Kór og hljómsveit undir
stjórn Erich Leinsdorfs flytja.
d. Akademlskur hátlöarfor-
leikur op. 80 eftir Johannes
Brahms.
Fllharmónlusveitin I New
York leikur; Leonard Bern-
stein stj.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
2. júll
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
14.00—15.00 Vagg og velta
Stjórnandi: Gísli Sveinn
Loftsson.
15.00—16.00 Meö slnu lagi
Lög leikin af Islenskum
hljómplötum.
Stjórnandi: Svavar Gests.
16.00—17.00 Þjóölagaþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
17.00—18.00 Frlstund
Unglingaþáttur.
Stjórnandi: Eðvarð Ingólfs-
son.
Þriggja mlnútna fréttir sagö-
ar klukkan: 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.
SJÓNVARP